Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2009, Side 42
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 85. árg. 200938
Aðalfundurinn 2009 verður með gjör
breyttu sniði. Í fyrsta sinn eru þeir sem
sækja fundinn ekki fulltrúar svæðisdeilda
heldur geta allir félagsmenn sótt fundinn
með atkvæðisrétt. Mörgu öðru var breytt
í lögunum í fyrra og er til dæmis stjórn
félagsins orðin talsvert fjölmennari. Allt
þetta kallar á breytingar á starfsháttum
félagsins og hefur milkil vinna verið lögð
í að sníða verklag og störf félagsins að
nýjum lögum. Síðastliðið haust var málið
rætt á félagsráðsfundi og fundarmönnum
gefið tækifæri að skrá sig í samtals sex
vinnuhópa.
Skipulagsbreytingar
Einn hópur hefur starfað ötullega að
því að tína saman allt sem gera þarf
fyrir aðalfund og félagsfundi. Hann hefur
meðal annars búið til gátlista og skoðað
verklag við skráningu á fund.
Annar hópur átti að endurskoða nafn og
merki félagsins. Vegna efnahagsstöðunnar
hefur þó stjórn félagsins ákveðið að falla
frá verkefninu. Ekki þótti verjandi að eyða
fé í endurhönnun merkis, bréfsefnis og
svo framvegis þegar allir þurfa að spara.
Í nýju skipulagi verða tvö svið á
skrifstofu félagsins, fagsvið og kjara og
réttindasvið. Einn hópur hefur unnið að
því að skilgreina helstu verkefni sviða og
búa til starfsreglur og starfslýsingar.
Í hópi um hlutverk og starfsreglur
fagdeilda skráðu sig upphaflega 14
manns en 68 hafa að jafnaði mætt á
fundi hópsins. Hópurinn gerði gæðaskjöl
varðandi stofnun fagdeildar, úthlutun
styrkja til fagdeilda, merki fagdeilda og
hlutverk og stefnu fagdeilda. Slíkum
Kjörnefnd að störfum í febrúar 2009.
skjölum er ætlað að vera fagdeildum til
leiðbeiningar þegar þær móta sínar reglur
og markmið. Formenn fagdeilda fengu
um miðjan janúar tækifæri til umsagnar.
Nokkrar fagdeildir svöruðu og gerðu
athugasemdir. Litið var svo á að hinar
hefðu engar athugasemdir að sinni.
Hópurinn um svæðisdeildir hefur rýnt í
hlutverk og skiptingu svæðisdeilda
samkvæmt nýjum lögum og endurskoðað
starfsreglur svæðisdeilda. Þar sem lagt er
til að falla frá skiptingu Reykjavíkurdeildar í
undirdeildir þurfti hópurinn ekki að komast
að niðurstöðu varðandi það.
Að lokum fór einn hópur yfir verk lag varð
andi kosningu nýrrar stjórnar og hvernig
aðal fundir fag og svæðis deilda standi best
að því að tilnefna fulltrúa í stjórn.
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga verður í ár haldinn 12. maí, á
alþjóðadegi hjúkrunarfræðinga. Þetta er fyrsti fundurinn eftir að lögum félagsins
var breytt á aðalfundi 2008. Fundurinn hefur verið í undirbúningi síðan í september
sl. og fjöldi hópa að störfum.
Christer Magnusson, christer@hjukrun.is
AÐALFUNDURINN NÁLGAST
Nefndir lagðar niður
Nokkrar fastanefndir hætta störfum á
aðalfundinum í maí nk. Ákveðið var að
leggja þær niður á aðalfundi 2008 en
lagabreytingin öðlast fyrst gildi nú og
verður ekki lengur kosið í þessar nefndir.
Um er að ræða fræðslunefnd, siða
og sáttanefnd, gæðastjórnunarnefnd og
vinnuverndarnefnd.
Vinnuverndarnefnd hefur ekki starfað
eftir að aðalfundurinn 2008 ákvað að
leggja hana niður. Formaðurinn, Sigrún
Gunnarsdóttir, segir að nefndarmenn
hafi verið mótfallnir breytingunni á sínum
tíma og komið rökum sínum á framfæri
við stjórnina. Í nefndinni störfuðu hins
vegar nokkrir helstu sérfræðingar
hjúkrunarfræðinga í vinnuverndarmálum