Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2009, Síða 43
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 85. árg. 2009 39
Frestur til þess að skila inn tillögum að lagabreytingum var ekki runninn út þegar þetta tölublað fór
í prentun en eftirfarandi tillögur hafa verið afgreiddar úr stjórn.
Í 8. grein um aðalfund segir að fundargerð skuli lesin upp í fundarlok og borin undir atkvæði.
Þetta er augljóslega tafsamt og í staðinn er lagt til að fundarritarar gangi frá fundargerð að loknum
aðalfundi.
Lagt er til að ákvæði í 15. grein um undirdeildir í svæðisdeild höfuðborgar svæðisins falli niður og í
stað þess ákvarði hver svæðisdeild skipulag deildarinnar. Rökin eru þau að ávinningur af þessari
skiptingu sé óljós og gangi gegn því markmiði að einfalda skipulag félagsins. Þá eru einnig taldar
líkur til þess að aðrar svæðisdeildir myndu vilja skipta sínu starfssvæði upp í undirdeildir og það
myndi leiða til flóknara skipulags en ekki einfaldara eins og markmið hinna nýju laga er.
Þá er lagt til að bráðabirgðarákvæði í 38. grein falli niður. Þar er sagt að ákveðnar lagareglur gildi
til bráðabirgða fram að aðalfundi 2009 en þær verða nú óþarfar.
og fagdeildir og svæðisdeildir geta eflaust
leitað til þeirra þegar þær skipuleggja sín
vinnuverndarstörf.
Þóra I. Árnadóttir, formaður siða
og sáttanefndar, hefur áhyggjur af
niðurfellingu siðanefnda en segist
sætta sig við lýðræðislegar ákvarðanir
aðalfundar félagsins. „Eins og við höfum
tjáð formanni óttumst við að í nýju
skipulagi félagsins verði ekki vettvangur
fyrir siðfræðileg álitamál. Við teljum
sérstaklega mikilvægt að siðfræðileg
umræða innan hjúkrunar sé virk, ekki
síst nú á tímum mikilla breytinga,“
segir Þóra. Hún bendir á að formenn
siðanefnda norrænu hjúkrunarfélaganna
hafi í september 2008 lýst yfir miklum
áhyggjum yfir því að félagið skyldi ekki
lengur hafa siðanefnd. Á sama tíma séu
siðanefndir á hinum Norðurlöndunum að
eflast.
Siðanefnd hélt fimm fundi árið 2008.
Þar voru meðal annars rædd tvö mál
frá félagsmönnum og eitt frá njótanda
í heilbrigðiskerfinu. Nefndin tók þátt í
ráðstefnu SSN í Færeyjum í september
og formaður sat fund siðanefnda frá
hjúkrunarfélögum Norðurlandanna.
Nefndarmenn bíða nú eftir tilmælum
frá stjórn félagsins varðandi starfslok
nefndarinnar.
Síðasti aðalfundur ákvað einnig að leggja
niður gæðastjórnunarnefnd og að það
yrði „hlutverk fagdeilda að gangast fyrir
umræðu um öryggi sjúklinga og þróun
gæðavísa í hjúkrun“ eins og sagt var í
tillögum umbótanefndar. Ágústa Benný
Herbertsdóttir, formaður nefndarinnar,
segir gæðastjórnunarnefnd vera sammála
því að gæðamál og öryggi sjúklinga séu
nátengd fagmennsku. Hluti gæðamála
geti hér eftir sem hingað til verið í
fagdeildum félagsins en miðlæga stjórnun
á málflokknum þurfi til að framfylgja
stefnu félagsins varðandi gæðamál og
einnig vegna þátttöku í norrænu sem
og alþjóðlegu gæðasamstarfi. Finnst
nefndinni að einn starfsmaður á skrifstofu
FÍH þurfi að vera hjúkrunarfræðingur með
sérþekkingu á gæða og öryggismálum
og að stofna þurfi fagdeild um öryggi
sjúklinga og gæðamál.
Helstu verkefni nefndarinnar hafa
verið ráðgjöf við stjórn FÍH varðandi
gæðamál, fræðsla og vinna á vegum
SSN í samnorrænu gæðastarfi. Formaður
gæðastjórnunarnefndar hefur verið fulltrúi
FÍH í vinnuhópi SSN um gæðamál.
Hvað mun gerast á aðalfundinum?
Eins og áður sagði hefur fastanefndum
fækkað og verður nú á aðalfundinum bara
kosið í þrjár: ritnefnd, stjórn orlofssjóðs og
kjörnefnd. Það verður samt sem áður af
nógu að taka. Frestur til þess að bjóða sig
fram í stjórn og nefndir félagsins rann út
30. mars. Í nýrri félagsstjórn verða nú 18
manns en ekki eru allir kosnir á aðalfundi.
Formaður er kosinn í allsherjarkosningu
og sjö fulltrúar svæðisdeilda, að jafnaði
formenn þeirra, eru kosnir á aðalfundum
svæðisdeilda. Á aðalfundi félagsins eru
hins vegar kosnir sjö fulltrúar fagdeilda
og þrír félagsmenn að auki. Einungis fjórir
fulltrúar voru tilnefndir frá fagdeildum
þegar framboðsfresturinn rann út en
margar fagdeildir eiga eftir að halda
aðalfund. Í hin þrjú sætin hafa fimm boðið
sig fram þannig að hér má gera ráð fyrir
spennandi kosningum.
Kjörnefnd hefur haft veg og vanda af að
leita að frambjóðendum fyrir aðalfund.
Þetta er mikilvæg nefnd sem lítið fer fyrir
nema þegar þarf að kjósa fulltrúa eða
vegna kjarasamninga. Guðrún Jónas
dóttir, formaður kjörnefndar, segir hlut
verk nefnarinnar vera að annast undir
búning og framkvæmd formannskjörs,
kosningu til stjórnar félagsins, í nefndir
þess og önnur þau störf sem kosið er um.
Nefndin annast einnig talningu atkvæða
og sker úr vafamálum. Nefndarmenn
voru til dæmis viðstaddir kynningar á
stofnanasamningum á vegum félagsins,
önnuðust atkvæðagreiðslur um þá og
talningu atkvæða.
Fyrir utan kosningar verða á aðalfundinum
teknar fyrir lagabreytingar, starfsáætlun
stjórnar og fjárhagsáætlun. Að loknum
fundi verður haldið upp á alþjóðadag
hjúkrunarfræðinga með því að afhenda
styrki úr Bhluta vísindasjóðs. Tíl sýnis
verða einnig veggspjöld sem tengjast
degi hjúkrunarfræðinga. Eins og áður
sagði er nú ekki lengur fulltrúalýðræði á
aðalfundinum heldur eiga allir félagsmenn
rétt til setu og atkvæðisrétt. Það er því
um að gera að nýta tækifærið að hafa
áhrif á hverjir stýra félaginu og hvað það
á að gera næstu árin. Nauðsynlegt er
að skrá sig á fundinn til þess að hafa
atkvæðisrétt en skráningu lýkur 5. maí.