Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2009, Síða 44
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 85. árg. 200940
Í þessari grein mun ég fjalla um ýmsar hugleiðingar
mínar sem komu upp við lestur greinarinnar
og minnast á atriði sem ég tel mikilvægt að
hjúkrunarfræðingar og ljósmæður hafi í huga í
tengslum við ofbeldi í nánum samböndum. Í starfi
mínu á Áfallamiðstöð við Landspítala í Fossvogi
sinni ég þolendum heimilsofbeldis en það hugtak
hefur nýlega verið endurskilgreint og er nú kallað:
Ofbeldi í nánum samböndum (Ingólfur V. Gíslason,
2008).
Greinin gefur innsýn í skilning barna á hugtakinu
og styrkti vissu mína á hversu mikilvægt það er
að vinna gegn ofbeldi með fræðslu og forvörnum.
Í rannsókninni kom fram að börn og unglingar
höfðu heyrt um heimilisofbeldi í skóla (óskilgreint),
sjónvarpi, blöðum, bókum eða hjá vinum. Ég velti
þess vegna fyrir mér hvort samræmi sé á milli
þess hvernig börn skilja ofbeldi í tölvuleikjum eða
afþreyingarefni og ofbeldi í nánum samböndum.
Æ fleiri börn og unglingar, sem hafa verið beitt ofbeldi
af öðrum börnum, fá þjónustu Áfallamiðstöðvar.
Einnig hefur komum vegna hópnauðgana í
unglingahópum fjölgað hjá Neyðarmóttöku vegna
nauðgunar á síðustu árum en í þeim hópi eru oftast
unglingsstúlkur sem líða miklar andlegar þjáningar
í kjölfarið. Forvarnir og meðferð fyrir gerendur eru
mjög mikilvægar til að koma í veg fyrir að þeir beiti
aftur ofbeldi og nýlega tilkynnti Barnaverndarstofa
áform um göngudeildarmeðferð fyrir unga gerendur
í kynferðisbrotamálum. Það er mikið fagnaðarefni
enda löngu tímabært.
Athyglisvert var að lesa í greininni að eldri stúlkur
í rannsókninni skilgreindu heimilisofbeldi m.a. sem
kynferðislegt ofbeldi. Ekki kom fram hvort átt var
við að börn eða fullorðnir væru beittir kynferðislegu
ofbeldi. Þetta er raunveruleiki í þeim málum sem ég
sinni í starfi mínu á Áfallamiðstöð að margar konur,
sem beittar eru ofbeldi í nánum samböndum, búa
Margrét Blöndal, marblond@landspitali.is
PRAXÍS
HEIMILISOFBELDI OG ÁFALLARÖSKUN
Hér byrjar nýr dálkur í Tímariti hjúkrunarfræðinga sem nefnist „Praxís“. Í þessum
pistlum munu hjúkrunarfræðingar fara yfir fræðigreinar sem hafa áður birst í
Tímariti hjúkrunarfræðinga og skoða niðurstöður rannsókna í ljósi reynslu sinnar.
Margrét Blöndal ríður á vaðið og skrifar um grein Guðrúnar Kristjánsdóttur og
Ingibjargar H. Harðardóttur um þekkingu og skilning barna á heimilisofbeldi.