Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2009, Qupperneq 55

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2009, Qupperneq 55
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 85. árg. 2009 51 Ritrýnd fræðigrein eftir í 5 til 15 ár, hafa sýnt að góð blóðsykurstjórn dregur úr líkum á fylgikvillum sykursýki (The Diabetes Control and Complications Trial Research Group, hér á eftir skammstafað DCCT, 1993; UK Prospective Diabetes Study, hér á eftir skammstafað UKPDS, 1998) og að áhrif góðrar blóðsykurstjórnunar geta varað í mörg ár (EDIC study group, 2003). Best er að blóðsykur sé eins nálægt eðlilegum mörkum og kostur er til að draga úr fylgikvillum sykursýkinnar. Alþjóðlegar leiðbeiningar (IDF, 2006) sem og klínískar leiðbeiningar frá Landlæknisembættinu (Hörður Björnsson o.fl., 2002) ráðleggja að langtímablóðsykurstjórn­ unargildið (HbA1c) sé ekki hærra en 7%. Almennt er álitið að ef HbA1c­gildið er hærra en 7,5% sé blóðsykurstjórnun ónóg og það eykur hættu á fylgikvillum sykursýkinnar (Hörður Björnsson o.fl., 2002). Fylgikvillar draga úr vellíðan fólks með sykursýki og auka kostnað við meðferð. Evrópsk rannsókn sýndi að kostnaður vegna fylgikvilla sykursýkinnar var um 55% af öllum kostnaði vegna sykursýki en kostnaður vegna sykursýkislyfja var einungis um 7% af kostnaðinum (Del Prato o.fl., 2005). Sambærileg niðurstaða fékkst úr bandarískum gögnum um kostnað við læknismeðferð 16,3 milljóna manna, en þar kom í ljós að af heildarútgjöldum vegna sykursýkinnar var kostnaður vegna fylgikvilla frá 50­61% og heilbrigðiskostnaður fólks með sykursýki var 2,3 meiri en ef fólk var laust við sjúkdóminn (American Diabetes Asociation ADA, 2008). Almennt virðast fylgikvillar sykursýki vera álíka algengir á Íslandi og annars staðar en þó er blinda vegna sykursýki sjaldgæfari hérlendis en annars staðar (Ástráður B. Hreiðarsson, 2008) og taugakvillar eru með því minnsta sem þekkist (Friðný Heimisdóttir o.fl., 2008). Oft reynist erfitt að ná markmiðum um góða blóðsykurstjórnun. Sigríður Björnsdóttir og félagar (2004) skoðuðu blóðsykurstjórn hjá fólki með sykursýki af tegund 2 sem kom inn á göngudeild sykursjúkra á Landspítalanum árin 2001 og 2002. Þau fundu að árið 2002 voru 41,7% sjúklinganna með HbA1c­gildi ≥ 7% en árið 2001 voru það 57%. Fleiri hafa bent á að hlutfall þeirra sem ná að hafa HbA1c­gildið ≥ 7% hafi ekki breyst mikið undanfarin ár (Bailey o.fl., 2005; Del Prato o.fl., 2005). Það gefur til kynna að hægt sé að bæta líðan fólks með sykursýki sem og að draga úr kostnaði vegna sjúkdómsins með því að bæta sjálfsumönnun og blóðsykurstjórnun. Ein leið til að aðstoða fólk með sykursýki til að bæta líðan og blóðsykurstjórnun og um leið að draga úr hættu á fylgikvillum er kennsla. Einn tilgangur greinarinnar er kynna hvernig kennsla byggð á hugmyndafræði sjálfseflingar getur gagnast fólki með sykursýki. KENNSLA UM SyKURSýKI Kennsla um eðli og meðferð sykursýkinnar hefur lengi verið hluti af umönnun fólks með sykursýki. Árið 1924 tilkynnti Elliott Joslin að kennslustofa væri tiltæk í skóla í Boston til að fræða fólk með sykursýki (Wilson­Barnett, 1983). Nú er talið ómögulegt að aðskilja kennslu frá annarri umönnun fólks með sykursýki því sykursjúkir þurfa að skilja eðli og meðferð sykursýkinnar og hvað þarf til svo þeir nái og geti viðhaldið góðri blóðsykurstjórn. Alþjóðlegar klínískar leiðbeiningar staðhæfa að kennsla fólks með sykursýki eigi að vera óaðskiljanlegur hluti umönnunar og æskilegt er að fólk með sykursýki sé virkir þátttakendur í kennslunni (IDF, 2006). Kerfisbundin yfirlit sýna að kennsla um sykursýki og meðferð hennar eykur þekkingu (Brown, 1999; Norris o.fl., 2001) og bætir sjálfsumönnun og blóðsykurstjórnun (Ellis o.fl., 2004; Norris o.fl, 2002). Hins vegar hefur reynst erfitt að greina með óyggjandi hætti hvaða þættir eða aðferðir í fræðslunni skili mestum árangri til að bæta sjálfsumönnun og blóðsykurstjórnun (Knight o.fl., 2006; Norris o.fl., 2002; Sigurdardottir o.fl., 2007). Rannsóknir hafa sýnt að þekking einstaklinga á sykursýkinni og meðferð hennar er oft næg þó sjálfsumönnun og blóðsykurstjórnun sé áfátt (Brown, 1999; Knight o.fl., 2006). Talað er um að heilbrigðisstarfsfólk þurfi að breyta aðferðum sínum við að nálgast einstaklinginn í umönnun og fræðslu til fólks með sykursýki þar sem ráðlagt er að meðferðin taki mið af kenningum um sjálfseflingu (Anderson og Funnell, 2000; Funnell o.fl., 2008). Sjálfsefling sem aðferð til kennslu í sykursýki Mikið hefur verið ritað um hugtakið sjálfseflingu sem hefur sannað gildi sitt innan hjúkrunar (Sigurdardottir og Jonsdottir, 2007). Sýn fræðimanna á hugtakið er mismunandi, en sameiginlegt er þó að hugtakið sjálfsefling er eitthvað jákvætt sem vísar til aukinna möguleika og sjálfsstyrkingar (Coates, 1999; Ryles, 1999). Fræðimenn leggja áherslu á að sjálfsefling eigi sér stað, hvoru tveggja innra með fólki og milli manna (Anderson og Funnell, 2000; Gibson, 1991) og jafnvel í kringum fólk (Kuokkanen og Leino­Kilpi, 2000). Forsenda sjálfseflingar er sú að fólkið sjálft taki virkan þátt í sjálfseflingarferlinu, hjúkrunarfræðingar geta einungis aðstoðað fólk til að fá aukinn styrk eða sjálfseflingu (Anderson og Funnell, 2000; Gibson 1991). Hugtakið sjálfsefling hefur líka verið tengt valdi og hvaða vald þekking veitir fagstéttum (Foucault, 1980; Kuokkanen og Leino­Kilpi, 2000). Í umönnun fólks með sykursýki hefur sjálfseflingarhugtakið oftast verið notað til samræmis við kenningu Carls Rogers (1980) um persónuleikaþroska. Kenning Rogers gerir ráð fyrir að sjálfsefling og sjálfskennd aukist við samskipti á þann hátt að fólk öðlist aukna þekkingu og hæfni til að taka ábyrgð á sjúkdómi sínum og aukna sjálfsstjórn og hæfni til að taka upplýsta ákvörðun um sjúkdómsmeðferð sína (Anderson og Funnell, 2000; Coates, 1999). Kenning Anderson og Funnell um sjálfseflingu í sykursýki gengur út á að aðstoða fólk við að uppgötva og nota innri styrk til að ná tökum á meðferð sykursýkinnar. Lögð er áhersla á þá hugmyndafræði að markmið sjálfseflingar og kennslu sé að hvetja til upplýstrar ákvarðanatöku þar sem fólkið með sykursýkina beri ábyrgð á og stjórni meðferð sinni í samvinnu við fagfólk. Þeir staðhæfa að sjálfsefling auki þekkingu og persónulegan þroska en ígrundun er nauðsynleg til að fólk nái að auka persónulegan þroska sinn (Anderson og Funnell, 2000). Heilbrigðisstarfsfólk, sem vinnur eftir hugmyndafræði sjálfseflingar, aðstoðar skjólstæðinginn við að fá betri skilning og innsýn inn í líf með sykursýki með því að hinn sykursjúki ígrundi gildi og markmið sykursýkismeðferðarinnar. Einnig hvetur það skjólstæðinginn til að setja sér raunhæf markmið með meðferðinni og aðstoðar skjólstæðinginn við að setja markmiðin um leið og það hvetur

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.