Jón á Bægisá - 01.02.2007, Blaðsíða 85

Jón á Bægisá - 01.02.2007, Blaðsíða 85
Maður má ekki Ijúga í Ijóði sífellt eru að misþyrma henni. Karl Kraus hefur sagt þessa ágætu setningu: „Menn skilja ekki þýzkuna sem notuð er í blaðamennskunni, og ég get ekki sagt þeim að þeir skilji hana ekki.“ Svo slæmt er ástandið að verða, haldið þér það ekki? Og ennfremur segir hann: „Mál mitt er alþjóðahóra, sem ég verð að gera að virgin.“ „Virgin,“ endurtók ég á ensku. Eg kem ekki fyrir mig hvaða orð það er á íslenzku." „Jæja,“ sagði Auden og hló. „Það er kannski ekki til í íslenzku! Hvílíkt land.“ Og það var eins og honum þætti allt í einu skemmtilegt að lifa. „Jú, það hlýtur að vera til,“ fullyrti ég. „Skiljið þér það?“ spurði hann. „Já, auðvitað. Látum okkur nú sjá. Það þýðir víst mey, já ósnortin, hrein.“ Það var eins og skáldið væri ekkert sérstaklega ánægður með að við ættum þetta íslenzka orð. En hann lét það ekki frekar í ljós. „Yður þykir gaman að fást við málið?“ Já,“ svaraði hann ákveðið. „Fátt skemmtilegra. Það hefur líka orðið atvinna mín að vinna með málið, ekki sízt enskuna, sem er mjög auðug á margan hátt. Það er skemmtilegt að velta fyrir sér, hvað þetta orð merkir eða hitt.“ „Ætli ljóðið haldi velli?“ spurði ég hikandi. „Það er að vísu ekki mjög vinsælt sem stendur. Því miður get ég ekki gert að því, en ég hef unun af ljóðinu. Og enn er fjöldinn allur af góðu fólki sem ann Ijóðinu. Það hefur einn kost, að það er ekki hægt að gleypa það með húð og hári eins og margar skáldsögur, og kasta því svo. Of margar nútíma skáldsögur eru þannig, að fólk étur þær eins og súpu og hugsar ekki frekar um þær. Ef manni geðjast að ljóði, býr það um sig í huganum og lifir þar áfram. Og maður leitar þess aftur og aftur.“ „Finnst yður Island póetískt land?“ „Já, það hefur haft djúp áhrif á mig. Fyrir mér er Island heilög jörð. Minningin um það er ávallt bakgrunnur þess, sem ég geri. Það skiptir ekki máli þó ég minnist ekki oft á landið, það er jafn mikill partur af lífi mínu fyrir því. Ég get verið að skrifa um eitthvað allt annað, en samt er það ein- hvers staðar nálægt. Það er öðruvísi en allt annað. Það er stöðugur hluti af lífi mínu, þó ég sé ekki alltaf með það milli tannanna. Ég sagði að það væri eins konar bakgrunnur, það er rétt. Ég gæti líka sagt að Island væri sólin sem bregður lit á fjöllin án þess hún sé neins staðar nærri, jafnvel horfin bak við sjónhring." Við minntumst aftur á skáldskapinn. Auden sagði að það væri bjána- legt að halda því fram, að öll ljóð ættu að hafa sams konar form, annaðhvort á Jföœpeðá — Hann gat ekki hætt að ríma 83
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Jón á Bægisá

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.