Bændablaðið - 13.05.2015, Page 20
20 Bændablaðið | Miðvikudagur 13. maí 2015
Það er nú kannski að bera í
bakkafullan lækinn að ræða
meira um áhyggjur manna
af neysluvatnsmálum í
Bandaríkjunum og víðar um
heim. Þær hljóta samt að vekja
spurningar um stöðu mála á
Íslandi og stefnu yfirvalda hvað
varðar nýtingarrétt á vatni.
Í Bandaríkjunum horfa menn fram
á endalaus dómsmál vegna sterks
eignarréttar á grunnvatnslindum
sem stangast á við rétt viðkomandi
ríkja til nýtingar yfirborðsvatns sem
hverfur ofan í jörðina.
Íslendingar ásamt Norðmönnum
búa hvað best Evrópuríkja hvað
vatnsauðlindir varðar. Hér hafa menn
samt haft litlar áhyggjur af skorti á
neysluvatni, enda virðist ofgnótt
vatns um nær allt land.
Nýting mengaðs yfirborðsvatns
var talsvert vandamál
Það er helst að áhyggjur hafi risið
í Vestmannaeyjum á árum áður
vegna neysluvatns sem þangað er
nú flutt í pípum frá meginlandinu.
Einnig höfðu menn áhyggjur vegna
mengunar yfirborðsvatns sem nýtt
var til neyslu og við matvælavinnslu
á Ísafirði, Akranesi og í Keflavík. Þar
var lengi reynt að kæfa umræðuna
um mengað vatn m.a. á forsendum
fjárhagshagsmuna fiskvinnslunnar.
Var það þrátt fyrir að ítrekaðar
sýnatökur, eins og á Ísafirði, sýndu
að neysluvatnið væri stundum jafnvel
óhæft til að baða sig upp úr því.
Vakti þessi staða spurningar um
svokallaða umhverfissjúkdóma, þar
á meðal um blóðkrabbamein, sem
líka var reynt að kæfa í fæðingu af
íslenskum heilbrigðisyfirvöldum á
þeim tíma. Úr þessu var sem betur fer
leyst á Akranesi og í Keflavík með
hreinsibúnaði. Þá duttu Ísfirðingar
aldeilis í lukkupottinn þegar vatnsæð
opnaðist við gerð Vestfjarðaganga
á tíunda áratug síðustu aldar með
óhemju magni af mjög hreinu
bergsíuðu vatni. Er það nú bæði
nýtt til neyslu og raforkuframleiðslu.
Óljóst er hvernig staðan er á landinu
öllu í dag hvað varðar nýtingu á
yfirborðsvatni.
Útflutningur á vatni
Útflutningur á fersku vatni
hefur verið mörgum uppspretta
athyglisverðra viðskiptahugmynda
sem flestar hafa orðið að engu.
Stundum hafa frumkvöðlar þó
lagt af stað með háleit markmið
en jafnharðan orðið að engu. Í
dag er þó svo komið að reynslan
hefur kennt mönnum hvernig eigi
að standa að slíkum útflutningi.
Nokkur fyrirtæki eru þegar að gera
þar ágæta hluti og áhugi útlendinga
mun örugglega aukast á komandi
árum. Á að minnsta kosti tveim
svæðum á landinu hafa menn farið
þá leið að gera nýtingarsamninga
við vatnsútflytjendur, sem hlýtur
að vekja spurningar þegar litið er til
stöðunnar í Bandaríkjunum.
Orkustofnun ber ábyrgð á
stjórnsýslu vegna nýtingar á vatni
Vatn er nauðsynlegt til að æðra líf fái
þrifist og kemur við sögu á mörgum
og ólíkum sviðum mannlegrar
tilveru. Orkustofnun ber ábyrgð á
stjórnsýslu á tveimur afmörkuðum
sviðum vatnamála á Íslandi. Þar er
annars vegar um að ræða vatn sem
auðlind til beinna nytja og hins vegar
vatn sem orkubera fyrir vatnsafl og
jarðhita.
Fram kemur á heimasíðu
Orkustofnunar að náin samvinna
sé við aðra opinbera aðila sem bera
ábyrgð hver með sínum hætti á
skyldum sviðum vatnamála.
„Þar má nefna Veðurstofu
Íslands sem ber ábyrgð á
almennum rannsóknum á vatnafari,
Umhverfisstofnun sem hefur umsýslu
með vatnatilskipun ESB og almennt
eftirlit með heilbrigðisnefndum
sveitarfélaga, sem aftur bera
ábyrgð á hreinleika neysluvatns,
Veiðimálastofnun sem rannsakar líf
í vatni og Skipulagsstofnun sem fer
með umhverfismat og skipulagsmál.
Einnig er gott samstarf við orku- og
veitufyrirtæki og samtök þeirra,
Samorku, svo og við hin ýmsu
sveitarfélög. Hér er ekki um tæmandi
upptalningu að ræða, enda kemur
vatnið víða við og frá mörgum
hliðum.“
Réttur almennings á Íslandi
er mjög sterkur
Jónas Ketilsson, yfirverkefnis stjóri
hjá Orkustofnun og staðgengill
orkumálastjóra, segir að staða
nýtingarréttar á vatni hér á landi sé
með talsvert öðrum hætti en þekkist
víðast í Bandaríkjunum. Hér sé réttur
almennings til aðgengis að vatni
tryggður þrátt fyrir nýtingarrétt
mögulegra landeigenda. Við þetta
hafa bæst ný lög um stjórnun
vatnamála sem Umhverfisstofnun
er gert að framfylgja. Með þeim
lögum er verið að reyna að innleiða
vatnatilskipun Evrópusambandsins
sem reyndar hefur gengið hægt.
Hugsunin með lögunum er að eftirlit
og meðferð á þessari auðlind verði
bætt.
Sveitarfélög hafa einkarétt á
rekstri vatnsveitna
„Landeigendur eiga að öllu jöfnu þær
auðlindir sem eru innan landareignar.
Það breytir því þó ekki að hver sem
er getur sótt um nýtingarleyfi. Ef
nauðsyn ber til þá getur maður sem
ekki hefur aðgengi að vatni á eigin
landareign farið fram á það við
nágranna sinn að komast í vatn hjá
honum og greiða fyrir það lágmarks
bætur. Réttur almennings er því mjög
ríkur til að komast í gott vatn. Að
öðru leyti er nýtingarrétturinn hjá
landeigandanum, en viðkomandi
sveitarfélag hefur þó forgangsrétt á
rekstri vatnsveitu og staða þess er því
mjög sterk í slíkum málum.“
Samkvæmt 1. grein laga um
vatnsveitur sveitarfélaga gildir ákvæði
um einkarétt sveitarfélaga til að reka
vatnsveitur ekki um landsvæði þar
sem ekki er talið hagkvæmt að leggja
vatnsveitu.
Jónas segir að varðandi mál er
snúa að nýtingu vatns til útflutnings
þá gildi í raun sömu reglur. Hann
telur því varla mögulegt að t.d.
erlend vatnsfyrirtæki geti öðlast slík
vatnsréttindi hér á landi sem yfirtæki
rétt almennings til aðgengis að vatninu
líkt og þekkt er í Bandaríkjunum.
Til að tryggja meirihlutarétt
sveitarfélaga og ríkis við rekstur
vatnsveitna er í 4. grein laganna um
heimild til ráðstöfunar á einkarétti
sveitarfélaga, eftirfarandi ákvæði:
„Sveitarfélag hefur einkarétt á
rekstri vatnsveitu og sölu vatns sem
hún getur fullnægt innan staðarmarka
sveitarfélagsins, sbr. þó ákvæði 3. og
4. mgr. 1. gr. Sveitarstjórn er heimilt
að fela stofnun eða félagi, sem að
meiri hluta er í eigu ríkis og/eða
sveitarfélaga, skyldur sínar og réttindi
samkvæmt þessum lögum.“
Sveitarfélög geta ekki selt frá sér
auðlindaréttinn
Sambærilegt ákvæði gildir að sögn
Jónasar um hitaveitur sveitarfélaga.
Þá sé sveitarfélögum ekki heimilt að
selja frá sér auðlindaréttindi, þó þau
geti selt frá sér land. Til að slík sala
á landi án auðlindaréttinda geti farið
fram þarf samt samþykki ráðherra.
Jónas segir að það hafi flækt málið
þegar jörðum var skipt upp í mörg
býli, þá hafi auðlindaréttinum og
þar með vatnsréttindum ekki alltaf
verið skipt upp um leið í samningum.
Því sé auðlindarétturinn og almenn
hlunnindi sameiginleg sem margir
hafi ekki áttað sig á.
Mikilvægt að fara varlega
Jónas segir að þótt Íslendingar búi
vel hvað aðgengi að hreinu vatni
áhrærir, þá sé auðvelt að spilla
þeirri stöðu. Ekki þurfi t.d. nema eitt
óhapp þar sem olíubíll færi á hliðina
á viðkvæmu vatnasvæði til að gera
vatnsból ónýtanleg um langan tíma.
Afar mikilvægt sé því að fólk láti
strax vita ef slík óhöpp verða svo
hægt sé að bregðast við.
Aðgengi að hreinu vatni er ekki lengur sjálfsagt mál víða um heim:
Íslenskum almenningi er tryggt
aðgengi að vatni með lögum
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Fréttaskýring
Brúarfoss. Myndir / HKr.
Tært lindarvatn rennur undan kletti í Miðdal.