Bændablaðið - 13.05.2015, Qupperneq 22

Bændablaðið - 13.05.2015, Qupperneq 22
22 Bændablaðið | Miðvikudagur 13. maí 2015 „Við erum á fullu í að byggja þennan rekstur upp, en förum okkur hægt, það verða engar kollsteypur teknar í þeim efnum, við tökum eitt skref í einu,“ segja þau Karl Jónsson og Guðný Jóhannesdóttir sem reka ferðaþjónustuna Lamb Inn á Öngulsstöðum í Eyjafjarðarsveit ásamt Jóhannesi Geir Sigurgeirssyni, föður Guðnýjar, og Ragnheiði Ólafsdóttur. Lamb Inn og Gamli bærinn á Öngulsstöðum hlutu á dögunum Hvatningarverðlaun Búnaðarsambands Eyjafjarðar. Rekstur ferðaþjónustu hófst á Öngulsstöðum III árið 1996 eftir að fjósi og hlöðu hafði verið breytt í gisti- og veitingaaðstöðu, en áherslum og nafni var breytt árið 2012. Gistirými er fyrir 38 manns og hefur undanfarin misseri verið unnið að endurbótum á herbergjum, m.a. hefur nýtt parket verið lagt á öll gólf. Í vetur hafa herbergi verið máluð og skipt um náttborð og skrautmuni. Þeim framkvæmdum lýkur innan tíðar. Eitt fjölskylduherbergi er í boði og rúmar það 4–6 manns og segja þau Guðný og Karl að mikil eftirspurn sé eftir herbergjum af þeirri stærð. Tvö herbergjanna eru sérstaklega útbúin með aðgengi fyrir fatlaða í huga. Keyptu Öngulsstaði 3 og bæta við gistirými Fyrir áramótin keypti fyrirtækið Öngulsstaði 3, sem foreldrar Jóhannesar byggðu árið 1950. Þau Karl og Guðný fluttu þangað ásamt fjölskyldu sinni í hluta hússins. Framkvæmdir standa nú yfir við innréttingu á 6 herbergjum til útleigu, en þau verða með sameiginlegu baði. „Þetta hús hefur staðið autt í nokkur ár og ég held að það hafi blundað í okkur öllum að gera eitthvað skemmtilegt við það. Það varð því úr að fyrirtækið okkar keypti það og við hófumst handa við að breyta hluta þess í gistirými til útleigu,“ segir Karl. Þau segjast hafa fundið fyrir ákveðinni þörf fyrir gistirými í aðeins lægri klassa en er á gistihúsinu, þó öll aðstaða og aðbúnaður verði þar góður. Hefðbundið íslenskt lambalæri slær í gegn Rúmgóður matsalur er til staðar og í takt við nafn staðarins kemur ekki á óvart að eigendur sérhæfa sig í lambakjöti, einkennisrétturinn er hið hefðbundna íslenska lambalæri og nýtur það mikilla vinsælda. „Við bjóðum upp á sérvalið og verkað lambalæri, eldum það lengi við vægan hita og berum fram með heimalögðuðu rauðkáli, grænum baunum, brúnuðum kartöflum, sósu og rabarbarasultu sem við búum til sjálf hér heima. Þessi hefðbundna sunnudagssteik Íslendinga hefur algjörlega slegið í gegn, útlendingar sem hér hafa snætt eru sólgnir í lambalærið okkar,“ segir Guðný. Til að toppa máltíðina geta gestir gætt sér á „gamaldags“ rjómatertu í eftirrétt, en hún samanstendur af svampbotnum, þeyttum rjóma og kokteilávöxtum. Sunnudagssteikin er í boði alla daga yfir sumarmánuðina en panta þarf sérstaklega yfir veturinn. Áhersla er lögð á matvæli úr heimabyggð, þorsk og bleikju úr nágrenninu er að finna á matseðlinum, ís sem búinn er til í Holtseli í Eyjafjarðarsveit er einnig í boði og bjórinn sem þeir gestir sem það kjósa geta skolað matnum með niður kemur líka úr Eyjafirði, Kaldi frá Bruggsmiðjunni á Árskógssandi. „Við réðum afar færan ástríðukokk í eldhúsið okkar í sumar, Unni Maríu Axelsdóttur, og með hennar aðstoð ætlum við að auka veg veitingastaðarins á þessu ári. Við verðum með sama gamla góða matseðilinn í gangi í sumar, en bryddum nú upp á þeirri nýjung að bjóða fastan sérrétt á hverjum degi til viðbótar við matseðilinn og látum það rúlla eftir vikudögum,“ segir Karl. Góð aðstaða fyrir fundi og ráðstefnur Prýðisgóð aðstaða er á Öngulsstöðum til að halda fundi og smærri ráðstefnur eða námskeið og hefur hún að sögn Karls verið nýtt í auknum mæli. Sæti er fyrir 20 til 30 manns í fundarsal, en þar er allt til staðar sem til þarf, tölvutengingar, skjávarpi, töflur og netaðgangur. Eins er hægt að nýta aðstöðu í veitingasal þar sem um 40 manns komast fyrir í sæti. „Við erum með þrjá fundapakka í boði eftir því hvað hverjum og einum hentar hverju sinni. Sumir þurfa aðeins part úr degi fyrir sinn fund, aðrir heilan dag og svo eru einnig fundir eða námskeið sem taka lengri tíma og þá er gistingin komin inn. Veitingar eru svo einnig til reiðu eftir því sem hverjum hópi hentar best,“ segir Karl. Fundaraðstaðan hefur verið mikið nýtt nú í vor, undir námskeið og fundi þar sem fólk hefur m.a. dvalið í 1–2 daga. „Í janúar fengum við m.a. heilan kvennakór í æfingabúðir og gátum þá nýtt aðstöðuna fyrir æfingar kórsins,“ segja þau Guðný og Karl. Samningur við stéttarfélög Yfir sumarið er meirihluti gesta útlendingar, en Íslendingar sækja staðinn heim í meira mæli yfir veturinn. Gerður hefur verið samningur við stéttarfélög á Austurlandi, í Þingeyjarsýslum og Skagafirði, sem niðurgreiða gistingu fyrir sína félagsmenn og segir Karl að fyrirkomulagið hafi gefist einstaklega vel. „Þetta hefur mælst vel fyrir og margir nýta sér það að skreppa í heimsókn í Eyjafjörðinn, fara á skíði, njóta menningar eins og að fara í leikhús eða á tónleika og slaka á í sveitasælunni. Við höfum fengið fjöldann allan af Austfirðingum til okkar og Skagfirðingum líka undanfarna vetur.“ Markmið að auka nýtingu árið um kring Sumarið 2013 var sérlega gott í rekstri ferðaþjónustunnar, það besta frá upphafi, en sumarið 2014 toppaði það og útlit er fyrir áframhaldandi velgengni því bókanir fyrir komandi sumar eru góðar að sögn eigenda. „Það má segja að hér sé nánast allt fullt yfir sumarið, erlendum ferðamönnum hefur sem kunnugt er fjölgað mjög undanfarin ár og virðist ekki lát á þeirri þróun. Okkar markmið er því að auka nýtingu árið um kring og við höfum einbeitt okkur að því að Ferðaþjónustan Lamb Inn á Öngulsstöðum í Eyjafjarðarsveit: Byggjum upp hægt en örugglega – segja þau Karl Jónsson og Guðný Jóhannesdóttir Fjölskyldan á Öngulsstöðum, frá vinstri Árdís Eva, Guðný, Karl, Þórhallur Jón, Skírnir Már og Haukur Sindri. Myndatexti: Mynd MÞÞ Alls er gistirými fyrir 38 manns hjá ulsstöðum og hefur verið unnið við misseri.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.