Bændablaðið - 13.05.2015, Qupperneq 7
7Bændablaðið | Miðvikudagur 13. maí 2015
ram skal haldið kveðskap
frá hagyrðingasamkomu
Karlakórs Eyjafjarðar
um sl. páska. Jóhannes
á Gunnarsstöðum fyllti allan
síðasta þátt, og þar sem hann var
lengst að kominn og frekastur, þá
fær hann þennan þátt einnig alveg
óskiptan. Birgir Sveinbjörnsson,
stjórnandi samkomunnar, vildi
næst vita hug Jóa til múslima:
Mörg þess hefur maður séð
merki hér í jarðlífi,
að þeir sem trúa á Múhameð
muni þjást af harðlífi.
Jóhannes var svo spurður hvort
hann vildi heldur, eiga banka eða
stjórna banka:
Ég held að það sé hættuspil
og hugnast illa að prófa.
Langar ekki að teljast til
tugthúslima og þjófa.
Birgir skipaði síðan svo fyrir,
að hagyrðingar skyldu hafa
heimilisskipti um vikutíma.
Jóhannesi skipaði hann að
heimili mínu og Petru Bjarkar
söngstjóra, og skyldi hann rækja
þar stöðu mína og störf í eina viku.
Ekki kveið Jói þeim vistaskiptum:
Væri eftir viku dæmt
um verklægni og getu,
ætti tæpast afturkvæmt
Árni í rúm til Petru.
Konur sitja nú öll helstu embætti
yfirlögreglustjóra. Jóhannes orti:
Víst er það skýlaus skoðun mín
og skal ekkert við það slóra,
að lekamál séu grátlegt grín
fyrir götótta lögreglustjóra.
Á síðustu samkomu karlakórsins
var ég ekki með í hópnum.
Birgir vildi vita afstöðu Jóa um
endurkomu mína:
Er nú kominn Árni minn,
elskaður og dáður,
heim í gamla hópinn sinn
hálfu verri en áður.
Hjálmar Freysteinsson var
nýlega búinn að læknisskoða Birgi
stjórnanda, og tókst að greina hann
lítið gallaðan. Jóhannes efaðist
um þá greiningu:
Hjálmar kann með lagni og leynd
að létta af margri plágu
fyrst í Birgi fann hann greind
sem fáir áður sáu.
Birgi finnst skólabróðir sinn,
Björn Ingólfsson, eldast
sérlega vel. Jóhannes gat vel tekið
undir það:
Þó að eitthvað eldist Björn,
ekki fatast honum.
Stendur enn og steytir görn
og starir á eftir konum.
Birgir Sveinbjörnsson átti
svo sjötugsafmæli fáum dögum
síðar. Björn Ingólfsson vildi vita
hvort yrði ekki nokkurt tilstand.
Jóhannes sá þetta þannig fyrir:
Birgir hann er ennþá að,
öllum framar vonum.
Mér finnst þó að minnisblað
mætti gefa honum.
Birgir spurði svo um
trúverðugleika hagyrðinga svona
almennt. Jói orti:
Þeir munu ekki af sér draga,
og engu trúandi.
Menn sem alla aðra daga
eru ljúgandi.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
Líf og starf
Eyfirskir hestamenn efndu á
dögunum til viðburðar sem
nefndist Norðlenska hestaveislan
og tókst hún vel.
„Þetta lukkaðist einstaklega
vel og erum við ákaflega sátt
við helgina,“ segir Andrea
Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri
Hesta mannafélagsins Léttis.
Hestaveislan var samvinnuverkefni
Léttis, Hrossaræktarsambands
Eyfirðinga og Þingeyinga og
Hrossaræktar. Þátttaka á alla
dagskrárliði var góð, troðfull
Reiðhöll bæði kvöldin sem dagskrá
fór þar fram.
Fákar og fjör
Helgin var hlaðin hestatengdum
viðburðum af ýmsu tagi og
fóru þeir fram á Akureyri og í
nærsveitum.
Sá fyrsti var dagskrá í Reið-
höllinni á Akureyri sem nefndist
Fákar og fjör. Andrea segir að um
hafi verið að ræða góða sýningu á
hrossum úr nærumhverfi, en einnig
hafi frábærir gæðingar annars staðar
frá komið við sögu.
Ræktunarbú heimsótt
Ræktunarbú á svæðinu buðu
gestum í bæinn og þáðu margir
boðið, litu inn og kynntu sér
öfluga starfsemi búanna. „Það var
alveg frábært að eiga þess kost að
heimsækja ræktunarbúin og sjá
hversu kraftmikið starf fer þar
fram, það var tekið einstaklega vel
á móti okkur sem var yndislegt,“
segir Andrea.
Þá var efnt til stóðhestasýningar
í Reiðhöllinni á Akureyri sem tókst
í alla staði vel. „Hún var hrikalega
flott og virkilega gaman að sjá alla
þessa frábæru stóðhesta í bland
við afkvæmi þeysa um höllina.
Almennt tókst þessi veisla mjög
vel og vonandi er þessi viðburður
kominn til að vera.
/MÞÞ
Norðlenska hestaveislan
tókst sérlega vel
F
MÆLT AF
MUNNI FRAM
129
50 gráir skuggar. Þessi vinahópur er fæddur 1965 og fögnuðu 50 ára afmælisárinu svona.
Heimsókn á Ræktunarbúið Garðshorn.
Gestir í góðum gír á Ræktunarbúinu Litlu Brekku.
Gestir brugðu sér í dans í heimsókn sinni í Ræktunarbúið á Skriðu.
Daníel Jónsson og Nói frá Stóra Hofi. Helga Árnadóttir í atriði sem nefnist Eyfirsku gæsirnar.
Stefán Birgir og Eldborg frá Litla
Garði.