Bændablaðið - 13.05.2015, Blaðsíða 1

Bændablaðið - 13.05.2015, Blaðsíða 1
9. tölublað 2015 ▯ Miðvikudagur 13. maí ▯ Blað nr. 442 ▯ 21. árg. ▯ Upplag 32.000 630 tonn af svínakjöti og 300 tonn af kjúklingakjöti í frystigeymslum: Um 1.200 til 1.400 tonn af svína- og kjúklingakjöti hafa safnast upp Miklar birgðir af kjúklinga- og svínakjöti safnast upp í landinu vegna verkfalla BHM. Gera má ráð fyrir að magnið verði milli 1.200 og 1.400 tonn í lok vikunnar. Verkfall dýralækna hófst 20. apríl og stendur enn. „Svínabændur fengu undanþágu til að slátra í frost í síðustu viku og sú undanþága hefur náð fram í þessa viku. Eftir undanþáguna sem nú er í gildi á ég ekki von á að það verði slátrað meira í frost. Vandi svínabænda er orðinn það mikill að áframhaldandi undanþága til að slátra og frysta kjötið hefur orðið lítið að segja. Framleiðendur eru ekki að fá neinar tekjur og velferð dýranna er í húfi,“ segir Hörður Harðarson hjá Félagi svínabænda. Dregur lögmæti skilmála á undanþágum í efa Frystigeta framleiðenda svínakjöts er á þrotum og svo ber að hafa í huga að eignarhald á afurðunum er með mismunandi hætti eftir að dýrið fer í sláturhús. Sumir framleiðendur eiga kjötið alveg þangað til það fer á markað en í öðrum tilfellum verða eigendaskipti um leið og slátrun hefur farið fram. Hörður dregur í efa lögmæti þess að leyfa undanþágur til slátrunar með því skilyrði að kjötið fari í frost og segir það mál í skoðun. „Samkvæmt samantekt hafa safnast upp rúm 630 tonn af svínakjöti í landinu hvort sem við erum að tala um dýr á fæti eða kjöt í frystigeymslum,“ segir Hörður. Jón Magnús Jónsson, bústjóri hjá Ísfugli, segir að kjúklinga- framleiðendur hafi fengið undanþágu til að slátra viku eftir að verkfall dýralækna hófst. „Slátrunin er í takti og kjötið fer allt í frost og framleiðendur farnir að leigja frystipláss til að koma kjötinu fyrir. Árleg framleiðsla á kjúklingakjöti er um 7.000 tonn, eða 135 tonn á viku. Verkfall dýralækna hefur staðið í á fjórðu viku en undanþága til slátrunar í frost fengist í um þrjár vikur. Því má gera ráð fyrir að 300 tonn af kjúklingakjöti hafi safnast í frystigeymslur vegna verkfallsins. Höfum engar tekjur „Magnið sem fer í frost eykst með hverjum deginum sem líður og á meðan höfum við engar tekjur og erum eins og steinar í vatni og getum ekkert gert. Ef verkfallið leysist ekki fljótlega liggur ekkert annað fyrir en að framleiðendur fari á hliðina með allar geymslur fullar af afurðum sem hægt væri að selja. Hefðum skrifað undir hvað sem er Í mínum huga eru verkfallsaðgerðir dýralækna að bitna þyngst á matvælaframleiðendum sem eru þriðji aðili og hafa í raun ekkert með deiluna að gera og enga aðkomu að samningunum. Undanþágan til að slátra er skilyrt því að afurðirnar fari í frost og satt best að segja hefðum við skrifað undir hvað sem er og jafnvel farið berrassaðir niður Laugaveginn til að geta haldið framleiðslunni áfram.“ /VH Hér eru mörg hundruð tonn af kjúklingakjöti frá einum framleiðanda. Svína- og kjúklingakjöt hrannast upp í frystigeymslum með tilheyrandi kostnaði og eftir sitja tekjulausir bændur sem sitja líklega uppi með skaðann af verkfallsaðgerðunum. Myndir / VH Egg, eplatré og býflugur 10 Nú eru 126 ár liðin frá stofnun búnaðarskóla á Hvanneyri Matvælalandið Ísland býður til ráðstefnu 27–3224
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.