Bændablaðið - 13.05.2015, Síða 1
9. tölublað 2015 ▯ Miðvikudagur 13. maí ▯ Blað nr. 442 ▯ 21. árg. ▯ Upplag 32.000
630 tonn af svínakjöti og 300 tonn af kjúklingakjöti í frystigeymslum:
Um 1.200 til 1.400 tonn af svína-
og kjúklingakjöti hafa safnast upp
Miklar birgðir af kjúklinga- og
svínakjöti safnast upp í landinu
vegna verkfalla BHM. Gera má
ráð fyrir að magnið verði milli
1.200 og 1.400 tonn í lok vikunnar.
Verkfall dýralækna hófst 20. apríl
og stendur enn.
„Svínabændur fengu undanþágu
til að slátra í frost í síðustu viku
og sú undanþága hefur náð fram í
þessa viku. Eftir undanþáguna sem
nú er í gildi á ég ekki von á að það
verði slátrað meira í frost. Vandi
svínabænda er orðinn það mikill
að áframhaldandi undanþága til að
slátra og frysta kjötið hefur orðið
lítið að segja. Framleiðendur eru
ekki að fá neinar tekjur og velferð
dýranna er í húfi,“ segir Hörður
Harðarson hjá Félagi svínabænda.
Dregur lögmæti skilmála á
undanþágum í efa
Frystigeta framleiðenda svínakjöts
er á þrotum og svo ber að hafa í huga
að eignarhald á afurðunum er með
mismunandi hætti eftir að dýrið fer
í sláturhús. Sumir framleiðendur
eiga kjötið alveg þangað til það
fer á markað en í öðrum tilfellum
verða eigendaskipti um leið og
slátrun hefur farið fram.
Hörður dregur í efa lögmæti
þess að leyfa undanþágur til
slátrunar með því skilyrði að
kjötið fari í frost og segir það mál
í skoðun.
„Samkvæmt samantekt hafa
safnast upp rúm 630 tonn af
svínakjöti í landinu hvort sem við
erum að tala um dýr á fæti eða kjöt
í frystigeymslum,“ segir Hörður.
Jón Magnús Jónsson, bústjóri
hjá Ísfugli, segir að kjúklinga-
framleiðendur hafi fengið
undanþágu til að slátra viku eftir
að verkfall dýralækna hófst.
„Slátrunin er í takti og kjötið fer
allt í frost og framleiðendur farnir
að leigja frystipláss til að koma
kjötinu fyrir.
Árleg framleiðsla á kjúklingakjöti
er um 7.000 tonn, eða 135 tonn
á viku. Verkfall dýralækna hefur
staðið í á fjórðu viku en undanþága
til slátrunar í frost fengist í um þrjár
vikur. Því má gera ráð fyrir að 300
tonn af kjúklingakjöti hafi safnast í
frystigeymslur vegna verkfallsins.
Höfum engar tekjur
„Magnið sem fer í frost eykst með
hverjum deginum sem líður og
á meðan höfum við engar tekjur
og erum eins og steinar í vatni og
getum ekkert gert. Ef verkfallið
leysist ekki fljótlega liggur ekkert
annað fyrir en að framleiðendur
fari á hliðina með allar geymslur
fullar af afurðum sem hægt væri
að selja.
Hefðum skrifað undir
hvað sem er
Í mínum huga eru verkfallsaðgerðir
dýralækna að bitna þyngst á
matvælaframleiðendum sem eru
þriðji aðili og hafa í raun ekkert með
deiluna að gera og enga aðkomu að
samningunum. Undanþágan til að
slátra er skilyrt því að afurðirnar
fari í frost og satt best að segja
hefðum við skrifað undir hvað sem
er og jafnvel farið berrassaðir niður
Laugaveginn til að geta haldið
framleiðslunni áfram.“ /VH
Hér eru mörg hundruð tonn af kjúklingakjöti frá einum framleiðanda.
Svína- og kjúklingakjöt hrannast upp í frystigeymslum með tilheyrandi kostnaði og eftir sitja tekjulausir bændur sem sitja líklega uppi með skaðann af verkfallsaðgerðunum. Myndir / VH
Egg, eplatré
og býflugur
10
Nú eru 126 ár liðin frá stofnun
búnaðarskóla á Hvanneyri
Matvælalandið Ísland
býður til ráðstefnu
27–3224