Bændablaðið - 13.05.2015, Side 27
27Bændablaðið | Miðvikudagur 13. maí 2015
OPIÐ UM HELGAR FRÁ
KLUKKAN 12 TIL 16
FIMMTUDAGINN
20. MARS
KL. 12.00-16.30
21. MAÍ
KL. 12:00-16:00
MATVÆLALANDIÐ ÍSLAND BÝÐUR TIL RÁÐSTEFNU
UM ÚTFLUTNING MATVÆLA:
Aukin verðmætasköpun í matvælageiranum með útflutningi
– til mikils að vinna
Samstarfsvettvangur um
Matvælalandið Ísland býður til
opinnar ráðstefnu um tækifæri í
útflutningi matvæla fimmtudaginn
21. maí á Hótel Sögu kl. 12–16. Að
samstarfinu standa atvinnuvega-
og nýsköpunarráðuneytið,
Bændasamtök Ís lands ,
Íslandsstofa, Matís, Samtök
ferðaþjónustunnar, Samtök
fyrirtækja í sjávarútvegi,
Samtök iðnaðarins og fyrirtæki
í þessum samtökum. Yfirskrift
ráðstefnunnar er: Útflutningur –
til mikils að vinna.
Sami hópur hefur áður staðið
fyrir tveimur fjölsóttum og vel
heppnuðum ráðstefnum. Árið
2013 stóð samstarfshópurinn fyrir
ráðstefnunni Matvælalandið Ísland
– fjársjóður framtíðar þar sem fjallað
var almennt um þau tækifæri sem
felast í aukinni framleiðslu og sölu á
matvælum. Á síðasta ári var yfirskrift
ráðstefnunnar Vöxtur í ferðaþjónustu
– er maturinn tilbúinn? og áhersla
lögð á matartengda ferðaþjónustu og
sölu íslenskra matvæla til erlendra
ferðamanna hér á landi.
Útflutningur íslenskra matvæla
Íslendingar hafa framleitt og
flutt út matvæli – einkum fisk – í
margar aldir og skapað sér þannig
lífsviðurværi og aukin lífsgæði.
Í dag skipta gjaldeyristekjur sem
byggja á hráefnisauðlindum lands
og sjávar enn gífurlega miklu máli
fyrir lífsgæði Íslendinga. Verðmæti
útfluttra matvæla árið 2013 var
tæplega 300 milljarðar króna sem
vegur þungt í heildargjaldeyrisöflun
Íslendinga. Til viðbótar má nefna að
kortavelta erlendra ferðamanna af
veitingaþjónustu árið 2014 var 12,2
milljarðar króna, en það er aðeins
hluti af matvælatengdum tekjum sem
hljótast af erlendum ferðamönnum.
Útflutningur – til mikils að vinna
Ráðstefnunni er ætlað að
vekja athygli á tækifærum til
aukinnar verðmætasköpunar í
matvælageiranum með útflutningi,
miðla reynslu og hvetja þannig fleiri
til að vinna með markvissum hætti
að því að sækja á erlendan markað
með matvælaafurðir.
Efni ráðstefnunnar er tvískipt. Í
fyrri hluta fjalla sérfræðingar um þá
vinnu sem þarf að inna af hendi áður en
ráðist er í útflutning. Guðný Káradóttir
hjá Íslandsstofu fjallar um mikilvægi
þess að marka sér skýra stefnu áður
en haldið er af stað og framfylgja
henni. Jón Georg Aðalsteinsson
hefur rekið umboðsfyrirtæki fyrir
íslenskar vörur á meginlandi Evrópu
um árabil og þekkir vel þær kröfur sem
erlendir kaupendur gera. Hann mun
miðla af þeirri reynslu sinni. Hrönn
Jörundsdóttir og Arnljótur Bjarki
Bergsson hjá Matís hafa víðtæka
reynslu við að meta gæði matvæla og
rannsaka umhverfisaðstæður ásamt
því að aðstoða fyrirtæki við vöruþróun
og nýsköpun fyrir innlenda og erlenda
markaði. Þau munu fjalla um þetta efni
í sínu erindi.
Í síðari hluta ráðstefnunnar
koma nokkur fyrirtæki úr ólíkum
greinum, sem náð hafa árangri á
erlendum mörkuðum, og miðla af
reynslu sinni af útflutningi matvæla,
hindrunum sem þarf að yfirstíga og
lykilárangursþáttum.
Sigurður Ingi Jóhannsson,
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
setur ráðstefnuna en Guðrún
Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka
iðnaðarins flytur samantekt í lokin.
Fundarstjóri er Alda Gylfadóttir,
framkvæmdastjóri Einhamar
Seafood.
/Ragnheiður Héðinsdóttir
Forstöðumaður matvælasviðs
Samtaka iðnaðarins
Sami hópur hefur áður staðið fyrir tveimur fjölsóttum og vel heppnuðum ráðstefnum. Myndir / HKr.