Bændablaðið - 13.05.2015, Blaðsíða 40
40 Bændablaðið | Miðvikudagur 13. maí 2015
Á hádegi hinn 15. nóvember
1766 lögðu tvö frönsk skip upp
í leiðangur frá höfninni í Nantes
í Frakklandi, freigátan La
Boudeuse og birgðaskipið Étoile.
Um borð voru 330 óbreyttir
sjóliðar og um fjörutíu yfirmenn,
skipslæknar og náttúrufræðingar
af ýmsu tagi.
Leiðangursstjóri var franskur
aðalsmaður að nafni Louis
Antoine de Bougainville. Markmið
leiðangursins var að sigla umhverfis
jörðina til að kanna og skrásetja
veröldina fyrir konunginn Lúðvík
fimmtánda.
Útúrdúr um sænska drottningu
og karlinn hennar
Að sjálfsögðu var grasafræðingur
með í för, læknirinn og
grasafræðingurinn Philibert
Commerson, þá 39 ára gamall.
Commerson þessi, á frönsku
Commerçon, hafði haft einhver
samskipti við náttúrufræðinginn
Carl Linné hinn sænska, sem
mælti með honum við sænsku
drottninguna Lovísu Úlriku sem
var gift Adólfi Friðrik sem var
Svíakóngur á árunum 1751 til 1771.
Bæði voru þau þýsk, (eiginlega
prússnesk, að uppruna, en á þessum
árum þótti sjálfsagt að redda sér
kóngum yfir landamæri, ef skortur
var á þeim heima fyrir.
Lovísa Úlrika var frekja og systir
Friðriks annars Prússakonungs.
En hún var menningarlega sinnuð
og mjög rómantísk og kom
upp ýmsum söfnum í Svíaríki
meðan hennar naut við. Meðal
annars því sem nú er grunnurinn
að sænska náttúrugripasafninu.
Lovísa Úlrika fékk Commerson
hinn franska til að safna fyrir
sig fiskum frá Miðjarðarhafi,
sem síðan voru prepareraðir
fyrir náttúrugripasafnið. Þar eru
nokkrir þeirra til enn. Eiginlega
var Lovísa Úlrika algjör beturviti
og lá ekki á skoðunum sínum um
menn og málefni. Hún vildi leggja
niður þing og ríkisráð í Svíþjóð
og koma þar á einvaldsstjórn hins
„upplýsta einvalds“ með mann sinn
í aðalhlutverki. Það tókst henni samt
ekki. Adólf Friðrik var ekkert að
styrkja hana í þeirri baráttu. Hann
var friðsemdarmaður sem leiddist
pólitík og allt sem henni fylgdi.
Notalegast þótti honum að fá að
vera í friði að dunda sér við að
gera tóbaksdósir. Fyrir því hafði
hann ástríðu. Og mat. Banamein
hans var ofát. Í opinberri skýrslu
um andlát hans, við aðeins tæpra
sextíu og tveggja ára aldur, stendur
að hann hafi varpað lífsandanum
eftir ríkulega máltíð þar sem á
borðum var: Humar, kavíar, súrkál,
rófur, vogsíld og kampavín. Með
rjómabollum í eftirrétt. En þá var
Commerson hvergi nærri. Hans
sögu lauk á eynni Máritíus tveim
árum síðar.
Okkar kona kemur til sögunnar
Í þessum vísindalega, franska
hnattleiðangri var Commerson
aðal grasafræðingurinn. Sem
slíkur þurfti hann aðstoðarmann.
Og ekki leitaði hann langt yfir
skammt, því ráðskonan hans var
býsna fróð grasakona. Vel greind
og bæði læs og skrifandi, sem
var óvenjulegt fyrir alþýðukonur
á þessum tíma. Konan hét Jeanne
Baret, nafn hennar er til í mörgum
útgáfum og með ýmsum rithætti.
Hún var fædd af alþýðufólki í
afskekktu þorpi í Búrgúndíhéraði
árið 1740. Skírnarvottorð hennar
er enn til og á því virðist sem að
hún hafi komið undir utan hlýju
hjónasængur. Faðirinn mun þó
hafa gengist við henni og hún
notaði ættarnafn hans lengst af
ævinnar. Hann var daglaunamaður
ef marka má kirkjubókina. Meira
er svo ekki vitað um líf og afdrif
foreldranna. Né heldur um uppvöxt
hennar. En ágiskanir hafa komið
fram um það að móðir hennar,
Jeanne Pochard, hafi tilheyrt
hópi húgenotta. Meðal þeirra var
áhersla lögð á lestrarkunnáttu og
barnafræðslu. Mun frekar en meðal
annarra „lægri“ þjóðfélagshópa
þessa tímabils.
Einhvern tíma á árunum 1760–
1764 mun Jeanne Baret hafa komið
til Commersons og tekið að sér
heimilisreksturinn. Líklega þó ekki
fyrr en eftir að Commerson hafði
misst konu sína af barnsförum árið
1762. Ungfrú Baret var fróðleiksfús
og var fljót að læra af húsbónda
sínum hvernig sinnt var um
herbaríumarkir, skipulag þeirra sem
og annarra náttúrugripa. Námsfýsin
og hæfileikarnir voru kannski ekki
það eina sem dró Commerson að
henni.
Í desember 1764 fæddi hún son
sem Commerson játaði svo sem
ekki að hann væri faðir að. Og
hún gaf ekki upp faðernið, heldur
skráði soninn á sitt ættarnafn og
kallaði hann Jean-Pierre Baret.
Honum var komið í fóstur þar
sem hann lést nokkrum mánuðum
seinna. En Commerson hafði sett
hjónabandsson sinn í fóstur til
skyldmenna sinna og sá hann aldrei
síðar.
Ráðabrugg
Árið 1765 fékk Commerson tilboð
um að taka þátt í fyrirhuguðum
hnattleiðangri. Hikandi og hikstandi
hugleiddi hann málið. Heilsa hans
var ekki upp á það besta og hann
sá ekki fram á að komast í þetta
nema með því móti að Jeanne kæmi
með honum sem hjúkrunarkona,
húshaldari og aðstoðarmaður við
söfnunina og pappírsvinnuna. En
tilboðinu og stöðu hans fylgdi réttur
til að hafa með sér einkaþjón. Nú
lögðu þau höfuðið í bleyti, líklega
Jeanne þó mest, og fundu upp á
því þjóðráði að hún myndi klæða
sig í karlmannsföt og fylgja með í
leiðangurinn sem karl. Leiðangurinn
var í nafni franska hersins og þar
gilti algjört bann við að konur væru
skráðar í áhafnir franska flotans.
Til að trixið yrði sem
trúverðugast, skyldu þau haga
því þannig til að hún kæmi ekki
um borð fyrr en rétt í þann mund
sem leyst væri frá bryggju. Þann
aukavarnagla höfðu þau líka á að
látast sem þau væru alveg ókunnug
og að hittast þarna í fyrsta sinni.
Þetta gekk upp. Meira að segja
eftirlét kapteinn birgðaskipsins
Étoi le grasafræðingnum
Commerson og aðstoðarmanni
hans káetu sína til að „þeir“
hefðu betra rými og meira næði
til vísindastarfanna. Í þessu
fyrirkomulagi kom líka upp sá
aukabónus að í káetunni var
einkasalerni. Ekki skemmdi það
heldur að káeta kapteinsins var
vel aðskilin frá öðrum vistarverum
skipsins. Þvi var lítil hætta á að
hljóðskraf grasafræðinganna
bergmálaði fram í skut þar sem aðrir
höfðust við.
Felublómið
Í fyrstu rannsóknarhöfninni í
Brasilíu uppgötvuðu þau klifurrunna
sem var nýr fyrir vísindin.
Þyrnóttur var hann, með stórum
skermum af litríkum háblöðum
sem lífguðu upp á skógarjaðra og
vöfðu sig um trjákrónur. Þetta er
fyrsta plantan sem Commerson
greindi í leiðangrinum og gaf nafn
leiðangursstjórans.
Bougainvillea er kominn
inn á spjöld vísindanna með
rithönd Jeanne Baret. Margir
halda því fram að eiginlega eigi
hún heiðurinn af fundinum og
nafngiftinni og áætla það vegna
persónulegra athugasemda
hennar á herbaríumörkinni. Við
köllum plöntur af þessari ættkvísl
felublóm á íslensku, vegna þess að
blómin eru hulin milli háblaðanna
sem liggja utan um þau. Sjálfur
vildi Commerson síðar heiðra
samstarfskonu sína með því að
gefa nýfundinni ættkvísl á eynni
Madagaskar nafn hennar og kalla
Baretia. Það gerði hann vegna
þess hve honum þótti plantan
hafa margbreytileg birtingarform
í laufgerð og vaxtarlagi. En hann
var of seinn. Aðrir voru fyrri til
að lýsa þeirri ættkvísl og kalla
hana Turraea. Til hennar reiknast
um sjötíu tegundir dreifðar um
Suðurhvel. Þær koma þessum pistli
ekkert við að öðru leyti.
Afhjúpunin
En það kom að því að hið rétta
kynferði aðstoðarmannsins var
afhjúpað. Eiginlega fyrir slysni. Því
þrátt fyrir að þrjú hundruð karlar
væru í leiðangrinum grunaði engan
þeirra að eitthvað væri athugavert
við aðstoðarmann grasafræðingsins.
En á Tahítí gerðust innfæddir full
forvitnir um leiðangursmenn og
fylgdust með hverri hreyfingu
þeirra. Sennilegt er að Jeanne
hafi þurft að „fara baksviðs“ eins
og gerist hjá fólki. Á byggðum
úthafseyjum hitabeltisins er lítið
um skýlandi runnagróður undir
gisnum krónum pálmatrjáa. Þannig
að ekki hefur farið framhjá þeim
af háttalaginu að þar var ekki karl
á ferð. Og þar sem þeir höfðu
alveg farið varhluta af vestrænni
kurteisisinnrætingu og siðuðu
uppeldi gátu þeir ekki á sér setið.
Með flissi, hrópum og köllum tókst
þeim að vekja alla viðstadda til
vitundar um hinn augljósa og rétta
kynstaðal aðstoðarmannsins.
Það mega Frakkar eiga að þeir eru
yfirleitt upp til hópa fordómalausir
séntilmenn. Leiðangurstjóranum, de
Bougainville, þótti atvikið jafnvel
nokkuð spaugilegt og gerði ekkert
veður út af málinu þrátt fyrir að
dálítið uppistand hafi orðið meðal
meðstjórnenda hans vegna þessa.
En Commerson var ekki skemmt,
þótt hann reyndi að útskýra málið á
hinn besta máta. En eftir þetta ákvað
hann að draga sig í hlé og snúa ekki
aftur til Frakklands. Hann settist
að á Máritíus ásamt Jeanne Baret
og hún var þar með honum þar til
hann lést árið 1773. Eftir það tók
hún saman við franskan sjómann.
Þau giftust og hún bjó með honum
það sem eftir var. Reyndar var
sjómaðurinn á heimleið þótt hann
gerði þarna stuttan stans. Saman
fóru þau svo til Frakklands og
settust að í fæðingarþorpi hans.
Þannig lauk hún hringferð sinni um
hnöttinn, fyrst kvenna í sögunni.
En Commerson hafði verið ansi
huggulegur við hana og gerði
henni erfðaskrá þar sem hún fékk
allar eigur hans og ógoldin laun
fyrir leiðangurinn. Þessi auður
beið eftir henni við heimkomuna
og hann notaði hún til að koma
fótunum undir rekstur á dálítilli
veitingakrá sem hún rak síðan með
bónda sínum.
Sögulok
En Jeanne kom ekki tómhent til
Frakklands, því þangað færði
hún allt safn Commersons og
vísindagögn hans og kom þeim í
hendur akademíunnar. Skipulögðu
og vel upp settu. Og það verður seint
skafið af sanngirni Frakka. Þeir eru
vesenislaust fólk yfirleitt, þegar
allt kemur til alls. Franska stjórnin
sá gilda ástæðu til að gera vel við
vísindakonuna Jeanne Baret og
þakka afrek hennar með því að greiða
henni góðan lífeyri til æviloka. En
þá var vísindastörfum hennar lokið,
þótt hún sinnti vinum og nágrönnum
áfram með grasakunnáttu sinni
meðfram veitingarekstrinum. Dauða
hennar bar að 5. ágúst árið 1807, þá
var hún 67 ára gömul.
Fróðleiksbásinn
Hafsteinn Hafliðason garðyrkjufræðingur
Felublóm, hnattsigling og frúin kæna
– Gróður og saga – Klók kona í karlagervi
Bougainvillea glabra - Felublóm.
Jeanne-Baret. Myndin var gerð 10
árum eftir andlát hennar.
Philibert Commerson.
Louis Antoine de Bougainville.
Tegund:
Bougainvillea spectabilis og B.
glabra.
Ísl. heiti:
Felublóm / þríburablóm.
Notkun:
Klifurplanta, blómplanta.
Birta:
Mikil birta, við suður lg ugga.
Hiti:
Stofuhiti á sumrin; svalt (12–15°C)
á veturna.
Vökvun:
Mikið mars-okt. Lítið okt-mars.
Umpottun:
Eftir þörfum í stærri potta.
Áburðargjöf:
Hálfsmánaðarlega á sumrin. Ekkert
á veturna.
Almennt:
Felublóm fella megnið af laufinu á
veturna. Þá þarf að draga úr vökvun.
Plönturnar þarf að venja á grind
eða hring. Plönturnar klipptar til
eftir þörfum. Henta vel í upphitaða
og bjarta gróðurskála. Langur
blómgunartími frá fyrri hluta sumars.
Solanum baretiae samsett vaxtar-
skeið.