Morgunblaðið - 24.09.2015, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2015
KANARÍ – Enska ströndin
tvær vikur (17. nóv. – 2. des.) frá
99.900 kr.
á mann m.v. tvo fullorðna.
PLÚS
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Stórmeistararnir Helgi Ólafsson og Jóhann
Hjartarson endurtefldu í gærkvöldi í Há-
skólabíói tvær skákir úr einvígi Bobbys Fischers
og Boris Spasskís í Reykjavík 1972. Að skák-
unum loknum hófst forsýning fyrir Skák-
samband Íslands á stórmyndinni Pawn Sacrifice
sem fjallar um skákeinvígið. Spiderman-
stjarnan Tobey Maguire fer með hlutverk Fisch-
ers í myndinni, sem hefur fengið góða dóma.
Endurtefldu tvær skákir úr einvígi aldarinnar
Morgunblaðið/Golli
Sérstök forsýning var á kvikmyndinni Pawn Sacrifice fyrir Skáksamband Íslands
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
„Við erum núna að sjá hlutfalls-
hækkanir launa, sem hafa ekki sést
síðan það var óðaverðbólga á Ís-
landi,“ segir Halldór Halldórsson,
formaður Sambands íslenskra sveit-
arfélaga. Launakostnaður er orðinn
mjög þungur baggi í rekstri sveitar-
félaga og fer vaxandi. Fjallað verður
um þau mál á fjármálaráðstefnu
sveitarfélaga sem hefst í dag.
Sveitarfélögin með fleira
starfsfólk í vinnu en ríkið
Halldór segir að þær launahækk-
anir sem sjá megi í kjarasamningum
bæði á almennum markaði og hjá
ríki og sveitarfélögum séu svakaleg-
ar. ,,Við erum einhvern veginn búin
að missa tökin,“
segir hann. Hall-
dór segir að yfir-
standandi við-
ræður á milli
heildarsamtaka á
vinnumarkaði,
sveitarfélaga og
ríkisins um leiðir
út úr þeim vanda
sem upp er kom-
inn í kjaramálum,
séu góðar og óhjákvæmilegt sé að
smíða nýtt vinnumarkaðsmódel.
Sveitarfélögin eiga ólokið á sjötta
tug kjarasamninga en samningar
allra starfsmanna sveitarfélaganna
að frátöldum grunnskólakennurum
eru lausir.
„Eftir því sem við tökum fleiri
verkefni fjölgar starfsfólki okkar.
Sveitarfélögin eru sífellt stærri aðili
á launamarkaðinum. Staðan er orðin
þannig í dag að við erum með fleira
fólk í vinnu en ríkið. Það eru fleiri
stöðugildi hjá sveitarfélögunum en
hjá ríkinu,“ segir Halldór.
Fulltrúar Sambands ísl. sveitarfé-
laga hafa rætt við fjármálaráðherra
um nauðsyn þess að tekjustofnar
sveitarfélaga verði breikkaðir. „Við
viljum fá aðkomu að fleiri tekju-
stofnum, til dæmis varðandi ferða-
þjónustuna. Sveitarfélögin kvarta
undan því að tekjur af ferðaþjónustu
skili sér ekki til þeirra. Það er sam-
hljóða álit sveitarfélaganna að ferða-
þjónustan skili nánast engu til
þeirra.“
Matthías Rögnvaldsson, forseti
bæjarstjórnar Akureyrar, tekur í
sama streng og Halldór í viðtali í
Morgunblaðinu í dag. Launahækk-
anir þyngja róður sveitarfélaganna
og er því spáð að rekstur sveitarfé-
laga verði almennt þungur á þessu
ári. Laun kennara vega þungt, en
grunnskólinn er stærsti útgjaldalið-
ur flestra sveitarfélaga.
Fái hluta virðisauka- og
fjármagnstekjuskattsins
„Bærinn hefur líklega aldrei feng-
ið á sig eins miklar hækkanir og
raunin verður á þessu ári. Útgjöldin
vegna launa hækka líklega á bilinu
500 til 600 milljónir króna, þannig að
það stefnir í að A-hluti bæjarsjóðs
verði gerður upp með halla á árinu,“
segir Matthías. Hann telur sann-
gjarnt að sveitarfélögin fái hluta
virðisaukaskattsins til sín og líka
hluta fjármagnstekjuskattsins. »34
Erum ,,búin að missa tökin“
Hlutfallshækkanir launa um þessar mundir hafa ekki sést síðan á tímum óða-
verðbólgu að sögn Halldórs Halldórssonar Laun sveitarfélögum þungur baggi
Halldór
Halldórsson
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Byggingarfulltrúinn í Reykjavík
hefur tekið jákvætt í beiðni eigenda
Herrafataverslunar Kormáks &
Skjaldar um leyfi til að opna versl-
un á Skólavörðustíg. Athygli vekur
að í umsókninni er „spurt hvort
innrétta megi herrafataverslun,
sem selur enga lunda, í kjallara
húss á lóð númer 28 við Skóla-
vörðustíg“.
Umrætt hús er tveggja hæða og
hvítmálað steinhús, á horni Skóla-
vörðustígs og Baldursgötu. Undir
hæðunum tveimur er kjallari og
var þar lengi bakarí, síðar
hannyrðaverslun. Guðjón Sam-
úelsson húsameistari teiknaði húsið.
Kormákur Geirharðsson kaup-
maður segir þá Skjöld hafa lengi
velt því fyrir sér hvar þeir gætu
opnað verslun sem væri sýnilegri en
núverandi verslun þeirra í kjallara
gamla Kjörgarðs á Laugavegi.
Þeir hafi átt húsnæðið á Skóla-
vörðustíg og komist að þeirri nið-
urstöðu að þar væri ágætur staður
fyrir verslun, sem jafnframt gæti
verið auglýsing fyrir hina versl-
unina. Ef tilskilin leyfi fást verður
verslunin opnuð snemma á næsta
ári. Hann segir að í nýju versluninni
verði boðið upp á þeirra eigin fata-
línu, auk norrænna fatamerkja.
Líka verði seldar ýmsar smærri
vörur, á borð við ermahnappa, tösk-
ur og fylgihluti. Áherslan verði á að
hafa sem mest af íslenskri hönnun á
boðstólum.
„Við ætlum að reyna að höfða til
ferðamanna. Þetta verður smærri
útgáfa af versluninni, án jakkafata,
frakka og stærri hluta. Við ætlum
að fara út í þennan túristapakka en
ekki selja einn einasta lunda,“ segir
Kormákur og hlær. „Það færist í
vöxt að ferðamenn komi hingað til
lands að versla,“ segir hann.
Munu selja allt nema lunda
Morgunblaðið/Ómar
Kaupmaður Kormákur Geirharðs-
son hyggst færa út kvíarnar.
Kormákur &
Skjöldur sækja um
leyfi fyrir verslun
Skriður er kom-
inn á gang kjara-
viðræðna Efl-
ingar vegna
starfsmanna fé-
lagsins hjá ríkinu
og á hjúkrunar-
heimilum. Ágætis
gangur hefur
verið í viðræðun-
um við ríkið að
því er fram kem-
ur á vef félagsins og er vonast til að
hægt verði að ganga frá nýjum
kjarasamningi næstkomandi mánu-
dag. Samhliða því er stefnt að gerð
kjarasamnings við hjúkrunarheim-
ilin eða Samtök fyrirtækja í velferð-
arþjónustu.
Sigurður Bessason, formaður Efl-
ingar, segir að fyrst þurfi að ljúka
gerð kjarasamninga við ríkið og von-
andi styttist í það, að sögn hans.
Kjarasamningar á hjúkrunarheim-
ilum hafa á umliðnum árum tekið
mið af niðurstöðum ríkissamning-
anna og vonast hann til að samn-
ingar náist um þá í kjölfar samning-
anna við ríkið. „ Ég á von á því að
þetta fari að nálgast það að menn
geti farið að klára þessa samninga.“
Fram kemur á vef Eflingar að fé-
lagið hefur lagt kapp á að ganga frá
samningum við þá sem enn er ósam-
ið við. Auk félagsmanna hjá ríki, á
hjúkrunarheimilum og hjá sveitar-
félögum eru lausir samningar við
einkarekna leikskóla, Sorpu, Orku-
veituna og Faxaflóahafnir.
Skriður á
viðræðum
við ríki
Sigurður
Bessason
Líklegt að samn-
ingar náist eftir helgi
Bergvin Oddsson, formaður
Blindrafélagsins, hafnar alfarið
þeim ásökunum sem á hann hafa
verið bornar af stjórn félagsins, að
hann hafi vélað 21 árs gamlan fé-
lagsmann Blindrafélagsins til að
leggja fram fé í fasteignafélag sem
tengist Bergvini. Þetta kemur fram í
fréttatilkynningu sem hann sendi
frá sér í gær. „Ég tel mig ekki á
nokkurn hátt hafa beitt eða sýnt
óheiðarleika í þessum viðskiptum og
þaðan af síður gerst brotlegur í
starfi sem formaður Blindrafélags-
ins enda stofnun og rekstur þessa
fasteignafélags Blindrafélaginu alls
óviðkomandi,“ segir hann.
Vísar ásök-
unum á bug