Morgunblaðið - 24.09.2015, Blaðsíða 77
Trio Nordica og er þátttakandi í Cap-
ut-nútímatónlistarhópnum. Hún var
listrænn stjórnandi Reykholtshátíðar
árin 2011 og 2012.
Auður hefur leikið inn á fjölda
geisladiska fyrir innlend og erlend út-
gáfufyrirtæki, m.a. Tutl, Japis, King
records, GM records og Naxos. Hún
hefur jafnan fengið frábæra dóma fyr-
ir leik sinn og vinnur nú að geisladiski
með íslenskri fiðlutónlist frá árunum
1940-2010. Auður hefur í gegnum árin
helgað sig fiðluleik og kennslu: „Það
er sérstök upplifun að túlka tónlist
fyrir áheyrendur en ég nýt þess einnig
að fá að miðla þekkingu minni og
reynslu til nemenda. Það er ótrúlega
gefandi að kenna ungu fólki. Ég kenni
við nokkra tónlistarskóla á höfuðborg-
arsvæðinu og er með frábæran hóp
nemenda. Margir þeirra hafa í gegn-
um árin unnið keppnir, verið í fremstu
röð og komist að í þekktum erlendum
háskólum.
Börnin okkar fjögur hafa öll lært á
hljóðfæri, selló, þverflautu og píanó,
enda tel ég tónlistarnám mikilvægan
hluta af almennri menntun og þroska.
Í gegnum árin hefur tónlistariðkun
verið ríkur partur af samverustund-
um fjölskyldunnar. Þegar ég hef leik-
ið á tónlistarhátíðum á sumrin hefur
fjölskyldan jafnan verið með í för.
En börnin okkar stunda einnig
íþróttir af kappi. Elsta dóttir okkar,
Anna Katrín, leikur með meistara-
flokki Gróttu í handbolta og okkur
finnst öllum frábært að mæta á leiki
og láta í okkur heyra.“
Fjölskylda
Eiginmaður Auðar er Stefán Jón
Friðriksson, f. 2.12. 1968, útlánastjóri
hjá Norræna fjárfestingarbankanum
í Helsinki. Foreldrar hans eru Frið-
rik Daníel Stefánsson, f. 7.11. 1932,
viðskiptafræðingur í Reykjavík, og
Þóra Kristín Jónsdóttir, f. 17.11.
1939, kennari í Reykjavík.
Börn Auðar og Stefáns eru Haf-
steinn Atli Stefánsson, f. 7.8. 1996,
nemi við MR; Anna Katrín Stef-
ánsdóttir, f. 22.1. 1998, nemi við VÍ;
María Björk Stefánsdóttir, f. 21.11.
2003, nemi við Valhúsaskóla, og Lilja
Hrund Stefánsdóttir, f. 4.12. 2005,
nemi við Mýrarhúsaskóla.
Alsystkini Auðar eru Hrund Haf-
steinsdóttir, f. 30.4. 1964, og Edda
Hafsteinsdóttir, f. 21.11. 1974, lyfja-
fræðingur í Reykjavík.
Hálfbróðir Auðar, samfeðra, er
Gunnar Viðar Hafsteinsson, f. 4.10.
1956, flugvirki í Mosfellsbæ.
Foreldrar Auðar eru Hafsteinn
Hafsteinsson, f. 3.12. 1939, hrl. og
fyrrv. forstjóri Landhelgisgæsl-
unnar, og Edda Björgvinsdóttir, f.
1.6. 1941.
Úr frændgarði Auðar Hafsteinsdóttur
Auður
Hafsteinsdóttir
Þóra Magnúsdóttir
húsfr. í Rvík, frá Miðseli
Bergur Jónsson
skipstj. í Rvík
Metta Bergsdóttir
húsfr. í Rvík
Björgvin Friðriksson
bakaram. í Rvík
Edda Björgvinsdóttir
Friðrik Ólafsson
húsvörður í Rvík
Helga Hafsteinsdóttir húsfr. á Seltjarnarnesi
Ólafur Friðriksson,
forseti Skák-
sambands Íslands
Magnús Bergsson bakaram.
og útgerðarm. í Eyjum
Sigurður Bergsson
bakaram. í Bernhöftsbakaríi
Friðrik Ólafsson
stórmeistari
Guðrún
Stefánsd.
húsfr. í
Vallanesi í
Skagafirði
Þóra Magnúsdóttir
húsfr. í Eyjum
Elna Sigrún Sigurðard.
húsfr.
Stefán Íslandi
óperusöngvari
Birkir Kristinsson
markvörður
Sigurður Már
Guðjónsson
bakaram. í
Bernhöftsbakaríi
Jón Hafsteinsson skipaverkfr. á Seltjarnarnesi
Gunnar Hafsteinsson
lögfr. og útgerðarm. í Rvík
Guðríður Eiríksdóttir
húsfr. í Rvík
Jón Bjarnason
kaupm. í Rvík
Magnea
Ingibjörg
Jónsdóttir
húsfr. í Rvík
Hafsteinn Bergþórsson
skipstj., útgerðarm. og
forstj. BÚR í Rvík
Hafsteinn
Hafsteinsson
hrl. og fyrrv.
forstjóri Land-
helgisgæslunnar
Bergþór Þorsteinsson
skipstj. í Rvík
Hannes Pálsson
forstj. Hampiðjunnar
Bergþór Pálsson
bifreiðastj. í Rvík
Páll Hafliðason
skipstj. í GufunesiGuðlaug Bergþórs-
dóttir húsfr. í Rvík
Jón Hjaltalín
Magnússon
verkfr. og fram-
kvæmdastj. Helga Hafliðadóttir
húsfr. í Rvík
Valgerður Magnúsdóttir
húsfr. í Rvík
Aðalbjörg
Magnúsdóttir á
Halldórsstöðum
í Langholti
Glæsilegur fiðluleikari Auður
Hafsteinsdóttir með fiðluna sína.
ÍSLENDINGAR 77
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2015
Bergur fæddist í Reykjavík24.9. 1898. Foreldrar hansvoru Jón Jensson háyfir-
dómari, og k.h., Sigríður Hjaltadótt-
ir húsfreyja.
Jón var sonur Jens Sigurðssonar,
rektors Lærða skólans í Reykjavík,
bróður Jóns Sigurðssonar forseta.
Móðir Jóns var Ólöf, dóttir Björns
Gunnlaugssonar, stærðfræðings,
stjörnufræðings og yfirkennara.
Sigríður var dóttir Hjalta Ólafs-
sonar Thorberg, bónda á Gunn-
steinsstöðum í Langadal, bróður
Bergs Thorberg landshöfðinga.
Móðir Sigríðar var Guðrún Jóhann-
esdóttir húsfreyja.
Systir Bergs lögfræðings var Ólöf,
móðir Jóhannesar Nordal seðla-
bankastjóra, föður Ólafar Nordal
innanríkisráðherra.
Fyrri kona Bergs var Guðbjörg
Lilja Jónsdóttir og eignuðust þau
þrjú börn, Sigríði Þórdísi húsfreyju,
móður Bergs S. Oliverssonar lög-
manns, Jón deildarstjóra og Þóri
tryggingastærðfræðing.
Seinni kona Bergs var Ólafía
Valdimarsdóttir.
Bergur lauk stúdentsprófi 1919,
embættisprófi í lögfræði frá HÍ
1923, öðlaðist hdl.-réttindi 1947 og
hrl.-réttindi 1953. Hann var fulltrúi
hjá lögreglustjóranum í Reykjavík
1923-27, sýslumaður í Barðastrand-
arsýslu 1927-28, var skipaður bæj-
arstjóri í Hafnarfirði og sýslumaður
Gullbringu- og Kjósarsýslu 1935-45,
var sakadómari í Reykjavík 1945-47
og starfrækti lögfræðiskrifstofu í
Hafnarfirði og Reykjavík frá 1947
og til æviloka.
Bergur var alþingismaður Barða-
strandarsýslu 1931-42, sat í milli-
þinganefnd í kjördæmaskipunarmál-
inu fræga 1931, var formaður
lögfræðinganefndar um réttar-
farslöggjöf 1934, átti sæti í milli-
þinganefnd til að rannsaka hag og
rekstur togaraútgerðar 1938, var
formaður og gjaldkeri Eyrar-
sparisjóðs á Patreksfirði, sat í mið-
stjórn Framsóknarflokksins frá
1934, sat í landskjörstjórn frá 1943
og til æviloka og í stjórn Dómara-
félags Íslands 1941-47.
Bergur lést 18.10. 1953.
Merkir Íslendingar
Bergur
Jónsson
85 ára
Fanney Tómasdóttir
Friðrik Sigurbjörnsson
Guðrún Kristinsdóttir
Ingunn S. Sigurðardóttir
Jónas Ásmundsson
80 ára
Björn Helgason
Eggert Jóhannsson
Emilía Sigurjónsdóttir
Ingibjörg K.
Þorgeirsdóttir
75 ára
Fjóla Guðmannsdóttir
Magnús Ingólfsson
Marín I. Guðveigsdóttir
Óli Pétur Friðþjófsson
Páll Ingólfsson
Sigurberg Árnason
70 ára
Jón Sverrir Garðarsson
Karen Welding
Pálmi Sigurðsson
Sigurlaug Jóhannesdóttir
Sigurveig Björnsdóttir
Sævar G Proppé
Örn Guðjónsson
60 ára
Alfreð Viggó Sigurjónsson
Andrés Hjaltason
Auður Ólafsdóttir
Elsa Lára Blöndal
Guðrún S. Sigvaldadóttir
Gunars Matisans
Gunnar Karl Gunnlaugsson
Harold Everett Burr
Jóhannes Ágústsson
Jósteinn Þór Hreiðarsson
Margeir Þorgeirsson
Óskar Haukur Óskarsson
Sigríður Jóhannesdóttir
Sigríður J. Sigurðardóttir
Sigrún Edda Knútsdóttir
Sigurbjörg Þorsteinsdóttir
Stephen John Yates
Svanfríður Ásgeirsdóttir
50 ára
Anna Karen Káradóttir
Benedikta Eik Scheving
Bjarnveig Björnsdóttir
Dagný María Sigurðardóttir
Guðmundur G. Hreiðarsson
Guðríður A. Jóhannesdóttir
Hulda Björg Reynisdóttir
Magnús Ómar Stefánsson
María Ósk Steinþórsdóttir
Sæmundur Guðmundsson
40 ára
Auður Ester Guðlaugsdóttir
Ásgeir Gunnarsson
Björg Torfadóttir
Björn Guðjónsson
Bryndís Sigtryggsdóttir
Elvar Már Eggertsson
Harpa Björg Guðfinnsdóttir
Högni Þór Gylfason
Ingibjörg Huld Þórðardóttir
Jónas Víðir Guðmundsson
Júlía Marinósdóttir
Matthías Matthíasson
Ragnheiður Kristjánsdóttir
Sólveig Eiríksdóttir
30 ára
Baldur Heimisson
Berglind Davíðsdóttir
Berglind Ingibertsdóttir
Daníel Másson
Egill Árni Guðnason
Elísabet K. Grétarsdóttir
Ernestas Barsciavicius
Halldóra Elín Jóhannsdóttir
Heiðrún Rós Þórðardóttir
Helga Björg Jónsdóttir
Írena E. Sædísardóttir
Sigurður Arason
Theodór Þór Jónsson
Þorvaldur Æ.Þorvaldsson
Til hamingju með daginn
30 ára Þórir ólst upp í
Bollakoti í Fljótshlíð og
býr þar, lauk prófi í vél-
virkjun og er bóndi í
Bollakoti.
Maki: Sigríður Þyrí Þór-
arinsdóttir, f. 1987, bóndi.
Synir: Ármann Þorri, f.
2011, og Þórarinn Breki, f.
2013.
Foreldrar: Ólafur Þorri
Gunnarsson, f. 1958,
bóndi í Bollakoti, og Sig-
rún Þórarinsdóttir, f.
1963, bóndi í Bollakoti.
Þórir Már
Ólafsson
30 ára Tinna býr í Graf-
arvogi, lauk stúdentsprófi
frá ME og starfar í Garðs-
apóteki.
Maki: Hallur Kristján Ás-
geirsson, f. 1977, knatt-
spyrnuþjálfari hjá Fjölni.
Börn: Adam Breki, f.
2011, og Emma Dóra, d.
2013.
Stjúpbörn: Aron Bjarki, f.
2005, og Saga, f. 2006.
Foreldrar: Ásta Einars-
dóttir, f. 1955, og Guð-
mundur Bjarnas., f. 1953.
Tinna Rut
Guðmundsdóttir
30 ára Sigrún ólst upp á
Akureyri, hefur nánast
alltaf verið þar búsett og
er þjónustufulltrúi hjá
Advania á Akureyri.
Maki: Hákon Örn Haf-
þórsson, f. 1986, starfs-
maður hjá Félagsmið-
stöðvum Norðurlands.
Börn: Birta Mjöll, f. 2006;
Friðgeir Viljar, f. 2012, og
Ísak Nói, f. 2014.
Foreldrar: Helga Skjóldal,
f. 1967, og Friðgeir Sum-
arliðason, f. 1966.
Sigrún Þóranna
Friðgeirsdóttir
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
www.facebook.com/spennandi
Opið: Mán. - fim: 12 - 18 - fös: 12-16.
Flott úrval af skyrtum og gallabuxum