Morgunblaðið - 24.09.2015, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 24.09.2015, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2015 Sjónmælingar eru okkar fag Tímapantanir í síma: Optical Studio í Smáralind sími 5288500 Optical Studio í Keflavík sími 4213811 Optical Studio í Leifsstöð sími 4250500 SVIÐSLJÓS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Vestmannaeyjar eiga stóran sess í huga Ís- lendinganna í Utah. Ég hef á síðustu árum hitt fjölda fólks ytra sem er í annan, þriðja og fjórða lið frá landnemunum sem fóru að heiman til hins fyr- irheitna lands mormónanna í Saltvatnsdalnum. Og þótt liðið sé hátt á aðra öld frá því fyrstu Eyjamennirnir komu á þessar slóðir lifa frá- sagnir þeirra meðal afkom- endanna góðu lífi og á mörg- um heimilum er málverk af hinum undursamlega Heimakletti sófastykkið í stofunni,“ segir Kári Bjarnason, forstöðumaður Safnahússins í Vestmannaeyjum. Landnemar í Vesturheimi Fyrr í þessum mánuði voru liðin slétt 160 frá því fyrstu Íslendingarnir sem skírst höfðu til mormónatrúar komu til bæjarins Spanish Fork í Utah-ríki í Bandaríkjunum. Þar var efnt til Ís- lendingahátíðar um þarsíðustu helgi þar sem stór hópur Íslendinga var staddur, bæði ís- lenskir fyrirlesarar og fræðimenn og fólk úr leiðangri sem Bændaferðir og Þjóðræknisfélag Íslendinga stóðu fyrir. Samúel Bjarnason og Margrét Gísladóttir frá Kirkjubæ í Vestmannaeyjum voru fyrstu land- nemar Íslandssögunnar í Vesturheimi. Þau voru brautryðjendur, því á næstu árum og ára- tugum fluttu um fjögur hundruð manns frá Ís- landi til Utah. Mormónatrúin hafði þá þegar náð fótfestu og þeir sem hana aðhylltust höfðu fundið þá nokkru fyrr sinn heimavöll í Salt- vatnsdalnum. Ritningin túlkuð í botn Að minnsta kosti helmingur þeirra Íslend- inga sem meðtóku mormónatrú og héldu til Ut- ah á árunum 1855 til 1914 var úr Vest- mannaeyjum. Og þar gekk fólkið inn í veröld strangtrúar þar sem ritningin er túlkuð í botn ef svo má segja. Fjölskyldulíf er í öndvegi og öll lausung forboðin, svo sem kynlíf utan hjóna- bands og kaffidrykkja. Trúarbrögð þessi móta mjög mannlífið í Utah. Fólkið lifir samkvæmt bókstafnum og í þeirri vissu að það sé í söfn- uðinum sem Jesús skapaði. Að aðrir trúarhópar sem kenna sig við Krist fari villir vegar. Þeir trúa því líka að Guð sé líkamleg vera, sé giftur og eigi börn. Mormónar hafa sömuleiðis minn- ingu og sögu forfeðra sinna í dýru gildi. Hafa safnað ættfræðiupplýsingum og heimildum um áa sína, sem Kári Bjarnason segir að hafi komið sér vel í rannsóknum síðustu ára. „Þetta verkefni er ótrúlega spennandi. Til- tækar voru upplýsingar um alla þá Vest- mannaeyinga sem fóru til Vesturheims og ég hef komist á slóð þeirra flestra. Víða voru til skráðar heimildir, ljósmyndir og fleira. Og af- komendur vesturfara þessara þekktu í sumum tilvikum nokkuð til sögunnar,“ segir Kári Bjarnason, sem á síðustu árum hefur farið fjölda ferða til Utah til að rannsaka þessi menn- ingartengsl. „Í vestrinu er einstakur angi af sögu Vestmannaeyja, tengsl sem við þurfum að leggja meiri rækt við, til dæmis með gagn- kvæmum heimsóknum og menningartengslum eins og áhugi er fyrir,“ segir Kári. Hús og minnismerki Þeir Fred Woods, prófessor við Brigham Yo- ung-háskólann í Utah, sem er mikill Íslands- vinur, og Kári Bjarnason hafa unnið þétt saman að því að rannsaka sögu Íslendinganna í Utah. Fred hefur komið nokkrum sinnum hingað til lands vegna þessa og var leiðsögumaður Íslend- inganna sem voru við hátíðahöldin ytra á dög- unum. Haldin var ráðstefna þar sem saga þessi var reifuð frá ýmsum hliðum og í Spanish Fork var efnt til hátíðar þar sem landnemanna ís- lensku var minnst með ýmsu móti. Fjölmörg hús í bænum tengjast Íslendingum og minnismerki um landnema þessa stendur á einu götuhorninu. Í gamla kirkjugarðinum í byggðinni hvíla margir af íslenskum ættum og þegar hópurinn að heiman fór þarna um hafði litlum Íslandsfánum verið komið upp við leg- steina á gröf viðkomandi. Var góður rómur gerður að þessari menningarsamkomu, sem þótti takast vel. Vestmannaeyjar í vestri  Menningararfur á slóðum mormóna  Spanish Fork er Íslendingabær í Utah í Bandaríkjunum  Safna upplýsingum um fólkið sem flutti  Heimaklettur er sófastykki á heimilum fólksins Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ljós Vitinn á götuhorni í Spanish Fork er minnismerki um íslensku frumherjana, reist 1938. Kári Bjarnason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.