Morgunblaðið - 24.09.2015, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 24.09.2015, Blaðsíða 72
72 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2015 ✝ Hjördís Vigfús-dóttir fæddist 5. nóvember 1938 í Reykjavík. Hún lést á krabbameins- deild Landspítalans 12. september 2015. Hún var dóttir hjónanna Þórunnar Jónsdóttur, f. 28.9. 1905, d. 13.1. 2001, símstöðvarstjóra og húsfreyju, og Vigfúsar Þor- steinssonar, f. 14.8. 1894, d. 3.2. 1974, bónda á Húsatóftum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Þau systkinin voru 12 talsins, elstu systkinin, Garðar og Sig- ríður, eru látin, eftirlifandi systkini eru Vilborg, Inga Guð- rún, Alda Jóna, Þorsteinn, Guð- jón, Jóhanna, Stefanía, Þorgeir Hörður, f. 18.11. 1965, eig- inkona hans er Ingibjörg Kol- beinsdóttir, f. 25.8. 1967, börn Harðar eru Kristófer Leó, Kar- el Lind og Eva Ósk, börn Harð- ar og Ingibjargar eru Hjördís Lilja og Kolbrún Ólafía, börn Ingibjargar eru Ingólfur Bjarni og Aníta. Hjördís ólst upp á Húsatóft- um en flutti ung til Reykjavíkur þar sem hún kynntist eig- inmanni sínum og bjuggu þau á Seltjarnarnesi fyrstu árin sín. Þaðan fluttu þau í Breiðholtið og nú síðustu árin bjuggu þau í Þorláksgeisla í Grafarholti. Hún starfaði á róluvellinum á Nesinu meðan börnin voru ung en sem bréfberi eftir að hún fluttist í Breiðholtið. Hjördís stundaði hestamennsku ásamt manni sínum alla tíð og byggðu þau hesthús á Kjóavöllum í Garðabæ. Fyrir tíu árum byggðu þau sumarbústað á æskuslóðum hennar. Útför Hjördísar fer fram í Bústaðakirkju í dag, 24.9. 2015, kl. 13. og Jón Vigfús- arbörn. Vigfús Þór Gunnarsson, sonur Sigríðar systur hennar, ólst einnig upp sem einn úr hópnum. Hinn 16.1. 1960 giftist Hjördís Jóni Guðmundssyni, f. 19.6. 1936, d. 15.1. 2012, og áttu þau fjögur börn: 1) Vignir f. 7.5. 1960. 2) Heimir, f. 3.8. 1961, sambýliskona hans er Jóhanna Kristín Jónsdóttir, f. 20.9. 1971, synir þeirra eru Jón Bjartur og Hjalti Birkir. 3) Fríða Jensína, f. 3.6. 1964, eig- inmaður hennar er Auðunn Gísli Árnason, f. 19.2. 1959, dóttir hennar er Sunneva Krist- ín og sonur þeirra er Axel. 4) Í dag kveðjum við mömmu okkar, Hjördísi Vigfúsdóttur, sem lést eftir stutt veikindi. Mamma var alltaf kát og létt í lund. Hún var fylgin sér en gerði það á sinn hógværa hátt. Mamma var alin upp í 12 manna systkinahópi á Húsatóftum á Skeiðum. Þar bjó hún við mikið ástríki foreldra sinna, elti pabba sinn við bústörfin eða lék sér með Guðjóni og strákunum við að smíða bíla. Símstöðin var á Húsatóftum og þurftu systkinin oft að þeysast á næstu bæi til að ná í fólk í símann. Sund var stundað af miklu kappi hjá systk- inunum og sáu þau um að þrífa gömlu Skeiðalaugina svo hægt væri að nota hana til æfinga. Ung kynntist hún pabba okkar og flutti þá til Reykjavíkur. Við systkinin fæddumst á fimm árum og var í nógu að snúast. Okkar fyrstu bernskuminningar eru frá Seltjarnarnesinu þar sem mamma og pabbi leigðu af Öldu systur mömmu. Bjuggu þá fjórar systurnar á nesinu og var sam- gangurinn á milli þeirra mikill. Síðar var flutt í Breiðholtið þar sem mamma vann sem bréfberi. Hún naut þess að geta unnið ut- andyra, farið í hressilega göngu- túra og síðan tekið á móti okkur krökkunum úr skólanum. Hún var alltaf til staðar, matur í há- deginu og á kvöldin og nóg af bakkelsi, enda góður bakari. Ráðist var í að byggja í Hraun- berginu og gaf mamma þar ekk- ert eftir. Þar áttum við systkinin okkar unglingsár og furðuðum við okkur oft á hversu umburð- arlynd hún var, tónlistin í botni og ekkert sagt við því. Hún tók alltaf vel á móti vinum okkar og þótti þeim gott að koma inn á heimilið. Hestamennskan tók við hjá mömmu og pabba og byggðu þau sér hesthús í Andvara. Þar nutu þau lífsins og eignuðust góða félaga, ekki síst Heiði og Ragnar. Fengu þau afnot af spildu í landi þeirra á Laugavöll- um, þar sem þau dvöldu á sumrin með hestana sína. Elstu barna- börnin þeirra eiga ómetanlegar minningar þaðan. Þegar pabbi veiktist af parkinson reyndist mamma honum mikill klettur. Þegar sjúkdómurinn ágerðist seldu þau húsið í Hraunberginu og hesthúsið og fluttu í Þorláks- geislann, næsta nágrenni við Heimi og hans fjölskyldu. Mikill samgangur var þar á milli og nutu synir hans tveir, Jón Bjart- ur og Hjalti Birkir, samvista við ömmu og afa. Barnabörnin missa mikið nú þegar amma er farin. Byggður var sumarbústaður á Skeiðunum á landi bræðra mömmu, Jóns og Þorgeirs. Hóla- tún varð griðastaður og þar nutu þau hestanna og að fá fjölskyldu og vini í heimsókn. Mamma missti mikið þegar pabbi lést. Hún saknaði hans sárt en reyndi að leyna tilfinningum sínum fyrir okkur, hún vildi ekki að við hefð- um áhyggjur af henni. Mamma og Jóa systir hennar voru dug- legar að hittast, sungu saman í kór, fóru í sund og dönsuðu línu- dans. Hjálpaði þetta mömmu mikið að takast á við söknuðinn. Mamma naut félagsskapar systra sinna en þær hittust alltaf einu sinni í viku. Við vitum að hennar verður sárt saknað af systkinum sínum. Þökkum við innilega fyrir stuðninginn frá þeim. Núna finnst okkur gott að hugsa til þess að mamma er komin heim, heim til pabba sem hefur tekið henni fagnandi. Kveðja Vignir, Heimir, Fríða og Hörður. Skjótt skipast veður í lofti, á vordögum vaknar grunur um að ekki sé allt með felldu með heilsu systur minnar, fyrri part sumars kemur greiningin og nú hinn 12. september er hún öll. Hjördís sem lifði alla ævi heil- brigðu lífi, mikið fyrir útiveru og hreyfingu og bindindismann- eskja í hvívetna. Það virðist ekki alltaf duga. Þegar hún var ung stúlka heima á Húsatóftum, í stórum hópi systkina, var ákveðinn ljómi yfir henni í mínum huga, glað- værð og skemmtilegheit og svo var hún afrekskona í íþróttum, hvað maður var stoltur af henni þegar hún kom heim með verð- launapeninga frá sundmótum HSK og einnig Landsmótum UMFÍ. Hún var flott. Fyrir tvítugt fór hún til Reykjavíkur að vinna og fljót- lega hitti hún þar ungan mann frá Bæ í Trékyllisvík, Jón Guð- mundsson, mikinn öðlingsmann sem varð hennar förunautur ætíð síðan. Þau stofnuðu sitt heimili á Nesinu og börnin fjög- ur fæddust á rúmum fimm árum þannig að hún hafði í nógu að snúast. Síðar keyptu þau sér íbúð í Jörfabakkanum og voru þá komin í nágrenni við mig og mína fjölskyldu og um fimm ára skeið bjuggum við á sama stiga- palli í sama stigagangi þannig að nálægðin var mikil. Þetta var góður tími, hjálpsemi og kær- leikur voru þeirra aðalsmerki og aldrei bar skugga á systrasam- félagið. Dætur mínar eiga ein- staklega góðar minningar frá þessum tíma, þeim fannst þær eiga að hluta til líka heima hjá „frænku og afa“ eins og þær köll- uðu Hjördísi og Jón. Það var alltaf svo gott og nota- legt að koma til þeirra, ætíð gestrisin og veitandi og ófáir úr fjölskyldum þeirra dvöldu um lengri eða skemmri tíma hjá þeim þegar á þurfti að halda. Hennar hlýju nærveru verður sárt saknað í þriðjudagshittingi okkar systra en undanfarin ár höfum við systurnar allar hist á þriðjudagsmorgnum og átt eðal- stundir saman og mikið spjallað og minningar æskunnar gjarnan reifaðar og fyrir mig, sem er yngst, mikill fróðleikur um fjöl- skylduna fyrir mína tíð. Það verður tómlegt án Hjördísar systur. Blómin falla, fölskva slær á flestan ljóma. Aldrei hverfur angan sumra blóma. Þannig varstu vinur, mér sem vorið bjarta. það sem gafstu geymist mér í hjarta. Ilma sprotar, anga lauf, sem aldrei falla. Drottinn launi elskuna þína alla. (Sigurbjörn Einarsson) Við Doddi vottum ykkur elsku Vignir, Heimir, Fríða, Hörður og fjölskyldur innilega samúð. Megi góðar minningar um yndislega mömmu veita ykkur styrk á erf- iðum tímum. Stefanía (Bebba). Gengin er glaðlynd frænka, góður vinur og tryggur, hlátur- mild og hjartahlý, hélt á lofti því aðalsmerki ættarinnar. Rúm 70 ár eru liðin síðan við kynntumst sem börn. Í sex sum- ur fékk ég í æsku að vera í sveit á æskuheimili hennar á Húsa- tóftum á Skeiðum, þótt þar væru tólf börn fyrir. Þannig vildu þeir hafa það bræðurnir, feður okkar. Við Hjördís lékum okkur saman og tókum þátt í bústörfum eftir því sem aldurinn leyfði, sóttum kýr, rákum kindur, hjálpuðum til við heyskapinn og svo framvegis. Og á kvöldin var oft farið í sund. Hjördís var sunddrottning, fannst mér strákpattanum, en hún var tveimur árum eldri en ég. Og oft var glatt á hjalla svo að húsið fylltist af græskulaus- um hlátri. Þessara ára er gott að minnast. Löngu seinna lágu leiðir aftur saman, meðal annars þegar Jón, eiginmaður Hjördísar, hjálpaði okkur Sigrúnu við smíðar. Það er líka ógleymanlegt þegar við litum til þeirra hjóna í sumarbú- staðnum þeirra á Brúnavöllum fyrir nokkrum árum. Sama gamla hlýjan, og óboðnir gest- irnir leystir út með gjöfum sem verma okkur um hjartarætur og minna á gefendurna um ókomin ár. Ég er þakklátur fyrir að mér auðnaðist að líta til Hjördísar á síðustu dögum hennar á spítal- anum, eftir að fljótvirkur vágest- ur hafði barið að dyrum. Þrátt fyrir það var brosið og húmorinn á sínum stað og við áttum saman ljúfa stund þar sem við rifjuðum upp gamlar minningar, meðal annars um feðurna sem voru okkur svo kærir og minnisstæð- ir. Minningin um létta lund Hjördísar og hjartahlýju mun lifa í huga okkar og ekki síður ástvina hennar. Við Sigrún vott- um þeim samúð í öruggri vissu um það. Þorsteinn Vilhjálmsson. Elsku Frænka. Það er með mikilli sorg í hjarta sem við kveðjum þig í dag. Þú átt mjög sérstakan stað í hjörtum okkar systranna þar sem við tengd- umst þér svo náið þegar við vor- um litlar. Í byrjun kölluðum við þig Hjördísi frænku til að að- greina þig frá Hjördísi litlu en það breyttist fljótlega í að þú varst orðin Frænkan okkar og þú gekkst undir því nafni eftir það. Við nutum góðs af náinni sambúð með ykkur Jóni afa og börnunum ykkar í Jörfabakkan- um og þó að lengra yrði á milli okkar þegar við fluttum í Hryggjarselið og þið Hraun- bergið var alltaf einstakt að koma til ykkar. Aldrei var komið að tómum kofunum, alltaf var nóg af kökum á borðum og okk- ur eru sérstaklega minnisstæðar heimagerðu karamellurnar sem við fengum að aðstoða þig við að setja inn í plast en afraksturinn rýrnaði nú smá þegar nokkrir molar hurfu upp í sæla munna. Einnig voru ferðirnar upp í hest- húsið ógleymanlegar, það var svo ævintýralegt að fara þangað með ykkur. Við erum lánsamar að hafa fengið að hafa þig í lífi okkar, þú varst svo ljúf mann- eskja, hláturmild, falleg, glettin og fylgin þér. Þín verður sárt saknað. Hvíldu í friði, elsku Frænka. Ástarkveðjur, Hjördís, Þórunn Helga og Íris. Stiginn nötraði og ærslagang- urinn var mikill, það var keppni í að ganga á höndum og það var ekki nógu spennandi að nota bara gólfið, það þurfti að reyna sig í stiganum! Þetta var eitt af fyrstu skiptunum sem ég kom í heimsókn í Hraunberg 23 þar sem hamagangurinn var oft mik- ill í unga fólkinu. En húsmóðirin sjálf lét þetta ekki mikið á sig fá og sallaróleg og allt að því feimn- isleg heilsaði hún mér og spurði mig hvernig fjölskyldan mín hefði það. Þannig var henni rétt lýst því að ávallt bar hún hag annarra fyrir brjósti. Seinna meir þegar mamma mín lést fyrir aldur fram var ekki bara Vignir umsvifalaust sendur með köku heim til mín heldur sýndi hún mér ungum manninum svo einstaka hlýju og umhyggju að ég mun ávallt minnast þess. Þegar talað er um kökur „úff“, þá vita væntanlega allir sem þekktu til hvað ég á við. Kök- urnar hennar Hjördísar voru ekki bara ótrúlega góðar heldur svo var svo mikið af þeim og ef ein kláraðist kom alltaf önnur jafnharðan úr búrinu. Einu sinni ætluðum við Vignir að kíkja á stúlkur á dansstaðnum Hollywood en þá sem oftar voru kökur á boðstólum og við pakk- saddir kölluðum okkur góða að ná á staðinn fyrir síðasta dans. En það er ekki hægt að minn- ast Hjördísar án þess að hafa hennar besta vin og eiginmann Jón með, því saman mynduðu þau þetta einstaka heimili sem okkur vinum krakkanna þeirra leið svo vel á og þessi einstaka tilfinning að alltaf þegar maður mætti, sama hversu óvænt það var, var eins og þau hefðu ein- mitt verið að bíða eftir þér. Í Orðskviðum Biblíunnar (k. 31.10-31) er talað á fallegan hátt um hina dugmiklu konu sem vak- ir yfir því sem fram fer á heim- ilinu og „etur ekki letinnar brauð“. Við lestur þeirra fornu orða finnst mér margt eiga mjög vel við Hjördísi og hina miklu umhyggju sem hún sýndi alltaf, bæði á heimili sínu og þeim sem þangað komu sem gestir. Þess naut ég í ríkum mæli og fyrir það vil ég að leiðarlokum þakka af heilum hug. Öllum afkomendum og tengdafólki Hjördísar og Jóns sendi ég innilegar samúðarkveðj- ur. Eggert Stefán Kaldalóns Jónsson. Hjördís Vigfúsdóttir ✝ Stefán GunnarViljhálmsson fæddist í Reykjavík 25. júní 1931. Hann lést á hjartadeild Landspítalans 12. september 2015. Foreldrar Stef- áns Gunnars voru Vilhjálmur And- erson frá Eyr- arbakka og Elínar Sveinsdóttir frá Skagafirði. Systkini Stefáns Gunnars eru Unnur, látin, Reynir Sveinn, lést ungur, Sveinbjörg og And- res Már. Stefán Gunnar var yngstur systkina sinna. búð með Ævari Hilmarssyni, börn þeirra eru Íris Elisa, Alex- ander Már og Embla Eir. Ár- mann er kvæntur Gry Sesilie Revheim, dætur þeirra eru Lilja Sól og Cornelia. 2) Þórný Elín Ásmundsdóttir, hún lést 2002. Börn hennar eru Gunnar Júlíus Guðmundsson, d. 2013, dóttir hans er Emilia Ljós búsett í Kanada, Arnþór Fann- ar Guðmundsson og Berglind Björg Guðmundsdóttir. Stefán Gunnar lærði vél- virkjun í Héðni. Síðan sótti hugurinn til sjós, fyrst á tog- urum og síðan á Fossunum og þá í millilandasiglingum. Hann kunni vel við sjómannslífið. Síð- an fór hann að vinna hjá Reykjavíkurborg í Umferð- ardeild og var verkefnastjóri í mörg ár. Útför Stefáns Gunnars verð- ur gerð frá Grafarvogskirkju í dag, 24. september 2015, kl. 15. Stefán Gunnar kvæntist Indíönu Ingólfsdóttur 25. júní 1966, hún lést fyrir sjö árum. Foreldrar hennar voru Ingólfur Kristjánsson og Baldína Sig- urbjörnsdóttir. Stefán Gunnar eignaðist ekki börn en tvö fósturbörn þegar að hann kvæntist In- diönu. 1) Sigríður Jóna Ásmunds- dóttir, gift Jónhanni Gunnari Óskarssyni, börn þeirra eru Ás- dís og Ármann. Ásdís er í sam- Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Elsku afi okkar, við vitum vel að þú varst orðinn saddur lífdaga, og núna ertu laus úr viðjum veikinda, en það er allt- af svo ótrúlega sárt að kveðja sína nánustu, söknuðurinn er sár og löngunin til að taka sím- ann og heyra aðeins í þér eða líta inn og fá stórt faðmlag er mikil. Frá því við fæddumst varst þú alltaf til staðar fyrir okkur, þú elskaðir okkur skil- yrðislaust og fyrir það verðum við þér eilíflega þakklát. Við áttum því láni að fagna að alast upp að hluta til í sama húsi og þið amma bjugguð, þið á efri hæðinni og við á þeirri neðri, það var eðlilega mjög mikill samgangur á milli hæða og ósjaldan hlaupið upp til ömmu og afa, því þar var aldrei komið að tómum kofunum. Við eigum hafsjó af minningum, þú varst duglegur að fara með okkur í sumarbústaðaferðir, ferðaðist með okkur um landið og bauðst okkur í óteljandi bíltúra, sér í lagi eru heimsóknir í Kolaport- ið minnisstæðar, þar sem keyptir voru lukkupakkar, sem síðan voru notaðir þegar við systkinin fengum að gista, því sá sem var fyrstur til að sofna um kvöldið fékk lukkupakka að morgni. Stuðningurinn sem þú sýndir okkur þegar móðir okkar lést langt fyrir aldur fram er og verður ómetanlegur, einnig þegar við misstum bróður okk- ar og nafna þinn fyrir tveimur árum, þú varst kletturinn okk- ar, huggaðir okkur og leið- beindir í lífinu, án þín værum við fátækari. Góða nótt, elsku afi okkar. Minningar eru fjársjóður sem enginn getur tekið frá okkur, þín minnumst við með ást og þakklæti og biðjum þess að þú hvílir í friði, viltu skila ástar- kveðjum til mömmu, Gunnars Júlíusar og ömmu frá okkur. Sjáumst síðar. Þín barnabörn, Arnþór Fannar og Berg- lind Björg (Lillagó). Í dag kveðjum við okkar kæra Stefán Gunnar, eða Gunnar eins og við kölluðum hann alltaf. Hann kom inn í mitt líf þeg- ar hann og mamma urðu par, þá var ég 13 ára gömul. Hann var þá í siglingum og naut ég góðs af því. Hann keypti t.d. fermingarkápuna mína í út- löndum og var það nú ekkert lítið flott. Hann reyndist okkur systr- unum vel og var stoltur af því að verða hluti af fjölskyldunni sem stækkaði með komu barna- barna og barnabarnabarna. Hann var ekki lítið stoltur þegar hann eignaðist nafna, Gunnar Júlíus. Þeir voru miklir mátar og fór ekki á milli mála væntumþykjan þeirra á milli. Því miður lést Gunnar Júlíus af alvarlegum sjúkdómi fyrir tveimur árum, þá 28 ára. Var það mikill missir fyrir afann. Gunnari hrakaði mikið síð- ustu tvö ár þar sem þessi mikli missir hafði mikil áhrif á hann. Ég og mín fjölskylda höfum búið í Noregi til fjölda ára. Gunnar og mamma komu oft í heimsókn til okkar. Eftir að mamma dó kom hann einn og stoppaði þá lengi, bæði um jól, áramót, páska og sumur. Síð- ustu ár kom léleg heilsa í veg fyrir að hann gæti komið til okkar. Hann kvartaði aldrei, sagði að það hjálpaði engum. Stóð sig eins og hetja sama hvað „brimið“ barði hann. Alltaf passaði hann að vera vel til fara, enda mikill fag- urkeri þegar kom að fötum. Það var leitt að hann gat ekki ferðast lengur, það gaf honum mikla gleði í lífinu. „En eitt sinn verða allir menn að deyja, eftir bjartan daginn kemur nótt.“ Takk kæri minn, fyrir alla umhyggju og væntumþykju í okkar garð. Ég óska þér góðrar ferðar í nýrri ferð um ókunnar slóðir. Sigríður Ásmundsdóttir og fjölskylda. Stefán Gunnar Vilhjálmsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.