Morgunblaðið - 24.09.2015, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 24.09.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2015 Styrmir Gunnarsson bendir á að„á þessu ári hefur það tvisvar sinnum gerzt að Evrópusambandið hefur þvingað einstök aðildarríki til að láta að vilja sínum, ella muni þau hafa verra af fjárhagslega.    Fyrra dæmið erGrikkland, þar sem lýðræðislega kjörin stjórnvöld voru tekin heljar- tökum af ráðamönn- um ESB og pínd til að snúa alveg við blaðinu frá því, sem kjósendum var heit- ið. Hótunin var sú, að enn frekari fjárhagslegar hrakfarir mundu bíða Grikkja ef þeir tækju ekki við fyrirmælum frá lánardrottnum þeirra.    Síðara dæmið er frá því í gær,þegar meirihluta atkvæða var beitt til þess að ákveða hlutfallslega skiptingu hóps flóttamanna á milli aðildarríkja þrátt fyrir harða and- stöðu fjögurra ríkja, þ.e. Tékk- lands, Slóvakíu, Ungverjalands og Rúmeníu, en Finnar sátu hjá.    Hlýði þessi ríki ekki verða þausektuð um sem svarar 0,002% af vergri landsframleiðslu og jafn- framt er látið í það skína að fjár- hagslegar afleiðingar geti orðið þyngri með því að greiðslur til þeirra úr sjóðum ESB verði stöðv- aðar.“    Styrmir minnir á að ríkin fjögureru „fyrrum austantjalds-ríki, sem sóttu um aðild að ESB vegna hugsanlegs áreitis nágrannans í austri, jafnvel þótt Sovétríkin væru fallin.    Nú standa þessi sömu ríkiframmi fyrir hótunum um fjárhagslegar afleiðingar hlýði þau ekki fyrirmælum frá Brussel. Hvernig ætli þeim líði?“ Styrmir Gunnarsson Úr ösku í eld? STAKSTEINAR Rangárþing ytra er með forystuna í sundkeppni sveitarfélaga eftir tvo fyrstu daga Hreyfiviku UMFÍ. Ná- grannar þeirra í Rangárþingi eystra eru skammt á eftir. Stefnir því í harða keppni á milli íbúa þessara tveggja sveitarfélaga í keppninni. Sundkeppnin er liður í Hreyfiviku UMFÍ sem nú stendur yfir. Það sveitarfélag sigrar sem skilar flest- um metrum á hvern íbúa. Gamla hlutfallsreglan sem var notuð í Nor- rænu sundkeppninni, 200 metrun- um, á sínum tíma er því enn í fullu gildi. Starfsmenn sundstaðanna skrá synta kílómetra eftir upplýsingum gestanna og UMFÍ reiknar út ár- angurinn. Íbúar Rangárþings ytra hafa synt sem svarar 60 metrum á hvern íbúa og íbúar Rangárþings eystra 57 metra. Húnaþing vestra stendur sig einnig vel, er með 49 metra á íbúa og Skútustaðahreppur með 43 metra. Hríseyingar eru einnig á toppnum, með 60 metra á hvern íbúa, en þeir eru raunar ekki sjálfstætt sveitarfé- lag. Ef teknir eru saman þeir kíló- metrar sem íbúar hafa lagt að baki má sjá að Akureyringar eru í efsta sæti, hafa synt 152 kílómetra sam- tals fyrstu tvo dagana. 94 þátttak- endur í Sveitarfélaginu Árborg hafa synt samtals 56 kílómetra. helgi@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Selfoss Góðar sundlaugar eru víða. Barist í Rangár- þingi  Sundkeppni sveit- arfélaga er hafin Aukablað um bíla fylgir Morgunblaðinu alla þriðjudaga Veður víða um heim 23.9., kl. 18.00 Reykjavík 8 skúrir Bolungarvík 7 léttskýjað Akureyri 9 léttskýjað Nuuk 2 skýjað Þórshöfn 10 léttskýjað Ósló 12 skýjað Kaupmannahöfn 15 skýjað Stokkhólmur 15 léttskýjað Helsinki 15 heiðskírt Lúxemborg 11 skýjað Brussel 15 skýjað Dublin 15 skýjað Glasgow 15 skýjað London 17 léttskýjað París 16 heiðskírt Amsterdam 15 skýjað Hamborg 16 léttskýjað Berlín 15 skýjað Vín 12 skýjað Moskva 17 heiðskírt Algarve 23 heiðskírt Madríd 23 heiðskírt Barcelona 21 léttskýjað Mallorca 21 léttskýjað Róm 18 skúrir Aþena 22 léttskýjað Winnipeg 13 léttskýjað Montreal 21 léttskýjað New York 22 heiðskírt Chicago 24 léttskýjað Orlando 30 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 24. september Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:17 19:24 ÍSAFJÖRÐUR 7:21 19:29 SIGLUFJÖRÐUR 7:04 19:12 DJÚPIVOGUR 6:46 18:54
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.