Morgunblaðið - 24.09.2015, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 24.09.2015, Blaðsíða 11
Ljósmynd/Caterpillar Propulsion Siglt til Grænlands Donna Wood sést hér neðst fyrir miðju reyna að ryðja leið gegnum hafísinn. þeir ekki verið á veiðum og eiga þá til að koma upp á land og ráfa um í leit að æti. Þess vegna urðum við alltaf að vera vopnaðir haglabyssum þegar við fórum í göngutúra þar sem við stoppuðum í landi með ferðamenn- ina. En við skutum ekki þessa ísbirni, við létum starfsfólkið á flugvellinum vita og það kom brunandi á bíl og skaut upp blysum til að hræða þá í burtu. Farþegar okkar voru auðvitað í skýjunum að hafa fengið að sjá hvítabirni.“ Hægt að losna við allt áreiti Egill segir að ferðamennirnir sem komu í siglingarnar hafi yfirleitt verið fólk sem var búið að prófa ým- islegt, hafði farið víða en þráði að komast á afskekktan stað. „Þetta voru Bandaríkjamenn og Evrópubúar og oft voru þetta ljós- myndahópar, enda einstök náttúra þarna. Að vera innan um þessi risa- fjöll og skynja þessa miklu ein- angrun, er einstök upplifun. Ég var þarna í 52 daga og ég vissi í raun ekk- ert hvað var að gerast annars staðar í heiminum á meðan. Þarna er ekkert netsamband, sem var sannarlega góð hvíld. Þetta er einn af fáum stöðum þar sem er hægt að losna við allt áreiti.“ Framleiðir þátt um íslenska matargerð fyrir Al Jaseera Egill er með mörg járn í eld- inum, hann er m.a framleiðandi að þætti um íslenska matargerð sem sýndur verður á sjónvarpsstöðinni Al Jaseera, sem ku vera sú stærsta í heimi. „Þetta er hluti af þáttaseríu í magasínþætti á ensku útgáfu sjón- varpsstöðvarinnar. Þrír ólíkir staðir eru skoðaðir út frá matarmenningu, Reykjavík, Kúba og Istanbúl. Við svindlum aðeins, förum til dæmis að Geysi og bökum rúgbrauð í hver. Við ætlum ekki að fjalla um hrútspunga eða annan þorramat, heldur hvernig það sem við borðum dags daglega á sér rætur í því þjóðlega og hvernig við notum hráefni úr heimasveitum í hverju héraði. Handritið er tilbúið og tökur verða nú í byrjun okt. og þátt- urinn verður sýndur milli jóla og ný- árs.“ DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2015 Undanfarin tvö ár bjó Egill í Kali- forníu þar sem hann var í námi í heimildarmyndagerð. Í fyrrasumar bjó hann í grænlenska þorpinu Ittog- gortoormiit og vann að gerð stutt- myndar sinnar, Þegar ísinn bráðnar (Once the Ice Melts). „Titillinn vísar til þess að hún ger- ist á einu sumri. Þetta er heimilda- mynd um unga fólkið í þorpinu og hún fjallar um fjóra einstaklinga sem ég fylgi eftir. Þeir hafa allir sína sögu að segja, en unga fólkið í þessu af- skekkta þorpi er statt milli tveggja heima; veiðimannasamfélagsins sem á sér takmarkaða framtíð og svo hins sérhæfða nútímasamfélags sem þau hafa kynnst í skólunum sem þau hafa sótt á vesturströndinni, í höfuðborg- inni Nuuk. Þessir krakkar kunna að nota skutul til að veiða, en það gagnast þeim lítið í nútímasamfélagi. Þeir sem eru ungir eiga sér sínar fyr- irmyndir á æskuslóðum og það eru allt veiðimenn eða annað í þeim dúr. Þetta skapar þó nokkra togstreitu þegar fólk þarf að ákveða hvað það ætlar að gera í framtíðinni.“ Smakkaði spik af náhval Egill kunni vel við sig þegar hann bjó í þorpinu og kynntist heimafólki. „Þetta er mjög rólegur staður og það sem gerir þorpið sérstakt er að eini atvinnuvegurinn eru veiðar, ým- ist á selum, ísbjörnum eða náhval,“ segir Egill og bætir við að sér finnist spik af náhval alveg ágætt, en að sjálfsögðu smakkaði hann það. „Þetta er borið fram í litlum ten- ingum og er reyndar ekki líkt neinu sem ég hef áður smakkað. Hvalspikið er verðmætast af skepnunni sem og hvalstönnin, en hún er yfirleitt seld í heilu lagi. Það sem hefur farið hvað verst með þetta byggðarlag er að verslun með alla grávöru eins og ná- hvalstennur og ísbjarnarfeldi er bönnuð utan Grænlands. En þeir selja þetta samt innanlands.“ Heimildamynd Egils, Þegar ísinn bráðnar Mynd Stilla úr stuttmynd Egils þar sem hann fylgir fjórum einstaklingum eftir. Togstreita unga fólksins sem kemur úr veiðimannasamfélagi Stuttmyndin Þegar ísinn bráðnar, er sýnd ásamt öðrum stuttmyndum frá Fær- eyjum og Grænlandi sem hér segir: 25.9. í Tjarnarbíói kl. 18, og í Norræna húsinu 30.9. og 2.10. kl. 16. Mikið var um dýrðir í vikunni þegar svo- kölluð Orero- hátíð fór fram í Papeete, hinni frönsku Póló- nesíu. Hér má sjá ungan pilt koma fram í litríkum klæð- um en nemendur í skólum læra þessar fornu listir og er það liður í því að draga úr því að þeir hætti í skóla. Litrík og skemmtielg Orero-hátíð Skóla- krakkar iðka fornar listir AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.