Morgunblaðið - 24.09.2015, Blaðsíða 92

Morgunblaðið - 24.09.2015, Blaðsíða 92
FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 267. DAGUR ÁRSINS 2015 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696 1. Er þetta það eina rétta? 2. Til staðar þegar aðrir lokuðu á hana 3. Breytingar í kringlunni 4. Boða endalok dísilbílsins »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Félagskonur KÍTÓN á Norðurlandi efna til tónleikaraðar í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna. Aðrir tónleikar raðarinnar verða á Græna hattinum í kvöld kl. 21. Flutt verður tónlist sem íslenskar konur hafa samið eða flutt ógleymanlega. Fram koma m.a. Þórhildur Örvars- dóttir, Helga Kvam, Kristjana Arn- grímsdóttir og Lára Sóley Jóhanns- dóttir. Ljósmynd/Daníel Starrason Norðlenskar tónlist- arkonur á tónleikum  Magnús Trygva- son Eliassen, slagverks- og trommuleikari, og Sölvi Kolbeinsson saxófónleikari leika í Mengi í kvöld kl. 21. Þeir félagar munu meðhöndla nokkra ópusa úr djass- sögunni að sínum hætti og eftir sínu höfði. Sölvi flýgur senn af landi brott í framhaldsnám í tónlist. Djassa í Mengi  Mynd Einars Baldvins Árnasonar, The Pride of Strathmoor, hlaut verð- laun í flokknum Besta nor- ræna stuttmyndin á norrænu kvikmynda- hátíðinni Nordisk Panorama sem lauk í Malmö fyrr í vikunni. Hátíðin hefur verið haldin í 26 ár og þetta árið var Ísland í brennidepli. Stuttmynd Einars Baldvins sigursæl Á föstudag Norðlæg átt, 3-8 m/s og skúrir eða dálítil rigning norðantil framan af degi, en annars sunnan og suðaustan 5-10 m/s og bjart með köflum. Dálítil væta suðvestantil seinnipartinn. Hiti 4 til 10 stig, hlýjast syðst. Á laugardag Suðaustanhvassviðri. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 5-10 m/s og víða væta norðvestantil en annars hægari og bjartviðri syðra. Hiti 6 til 12 stig að deginum. VEÐUR „Það er óhætt að segja að það sé hasar í gangi hjá lið- inu. Þessi brottrekstur kom eins og köld vatnsgusa framan í okkur og maður er svona enn að átta sig á þessu,“ sagði landsliðs- maðurinn Aron Pálmarsson við Morgunblaðið. Aron gekk í raðir ungverska meistaraliðsins Veszprém í sumar en liðið rak í vikunni þjálfara félagsins og kom sú ákvörðun á óvart. »2 Maður er enn að átta sig á þessu „Ég hef alltaf verið tilbúinn í mark- vissar æfingar tveimur vikum eftir hlaup en það var alls ekki raunin í þetta skiptið. Þegar ég ætlaði að reyna að koma mér af stað var alltaf einhver þreyta, svimi og máttleysi. Sú var eiginlega saga sum- arsins,“ segir ólympíu- farinn Kári Steinn Karls- son meðal annars í viðtali við Morgunblaðið í dag en hann neydd- ist til að taka sér mánaðar hvíld frá æfingum síðsum- ars. »4 Lenti Kári Steinn í ofþjálfun í vor? Handknattleikskonan Þorgerður Anna Atladóttir sér fram á betri tíð með blóm í haga. Hún er óðum að jafna sig eftir að krossband í öðru hné slitnaði í mars. Þorgerður Anna vonast til að geta leikið með varaliði Leipzig í desember og aðalliðinu í byrjun næsta árs. Forráðamenn Leip- zig leggja áherslu á að hún fari ekki of snemma af stað á nýjan leik. »1 Þorgerður mætir aftur á völlinn í desember ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Í janúar á næsta ári verður 100 ára kosningaréttar kvenna í Manitoba minnst í Winnipeg í Kanada og stefnt er að því að vera með viðburði, sem tengjast áfanganum, í hverjum mán- uði 2016. Af því tilefni heimsótti hóp- ur kvenna frá Winnipeg Ísland á dög- unum og fóru gestirnir héðan um helgina margs fróðari. Þegar Hjálmar W. Hannesson var sendiherra í New York og Wash- ington skipulagði Anna Birgis, eigin- kona hans, kvennaferðir frá báðum stöðum til Íslands. Nú er Hjálmar aðalræðismaður í Winnipeg og þar hefur Anna meðal annars kynnst konum í félagasamtökum kvenna og atvinnulífinu í borginni. Hún segir að nokkrar þeirra hafi beðið sig um að skipuleggja ferð til Íslands í tengsl- um við 100 ára kosningarétt kvenna á Íslandi, en konur í Manitoba fengu kosningarétt fyrstar kvenna í Kan- ada. Mikil dagskrá Þegar á fyrsta degi hittu konurnar Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, framkvæmdastjóra nefndar um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna, og undir lok ferðar áttu þær fund með undirbúningsnefndinni að loknum óformlegum hringborðsumræðum með Stewart Wheeler, sendiherra Kanada gagnvart Íslandi. Auk þess hittu þær ráðamenn og fleiri. „Ferðin gekk sérlega vel, konurnar voru himinlifandi og fengu svör við mörgum spurningum,“ segir Anna. Hún bætir við að þeim hafi þótt sýn- ingar í tengslum við kosningaafmælið mjög áhrifamiklar og heimsóknin myndi örugglega nýtast í komandi viðburðum í Winnipeg. Konur af íslenskum ættum tóku þátt í baráttunni fyrir kosningarétt- inum fyrir vestan fyrir einni öld og þar fór einna fremst Margrét Jóns- dóttir Benedictsson, sem flutti fyrst fyrirlestur um réttindi kvenna 1893 og var ritstjóri kvennablaðsins Freyju í Winnipeg. Anna bendir á að konur í Winnipeg hafi rekist á svip- aða veggi og íslenskar konur í að- draganda kosningaréttarins. Í því sambandi segir hún að í öndverðu hafi forsætisráðherra Manitoba sagt við baráttukonurnar að góðar konur vildu ekki kjósa og það hafi verið slagorð þeirra síðan. „Konurnar áttu ekki til orð yfir fegurð landsins,“ segir Anna sem fór meðal annars með hópinn gullna hringinn, á Snæfellsnes og í Bláa lón- ið. „Það verður ekki hægt að toppa þennan dag sögðu þær á hverju kvöldi, en þurftu alltaf að draga orð sín til baka daginn eftir.“ Í smiðju íslenskra kvenna  Haldið upp á 100 ára kosningarétt kvenna í Manitoba í Kanada 2016 Á Bessastöðum Standandi frá vinstri: Roma Maconachie, Judy Bradley, Garth Bradley, Marilyn de von Flindt, Ingvar Karvelson, Ruth Suderman, Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, Elba Haid, Patricia Thorlakson Loewen, Anna Birgis og Eleanor Samson. Sitjandi frá vinstri: June Dutka, Doris Mae Oul- ton, Connie Magnuson Schimnowski, Linda Sigurdson Collette, Sandy Millen og Jóhanna Guðrún Wilson. Í hópnum voru nokkrir Vestur- Íslendingar og þar á meðal þrjár fjallkonur, sem hafa það hlutverk að koma fram á Ís- lendingadeginum á Gimli í Kanada og öðrum sérstökum viðburðum í Manitoba; Jó- hanna Wilson, fjallkona 1991, Connie Magnuson Schimn- owski, fjallkona 2012, og Linda Sigurdson Collette, fjallkona 2015. Flestar kvennanna eru eða hafa verið í samtökum eða fé- lögum sem hafa að leiðarljósi að hjálpa þeim sem minna mega sín. Þrjár fjallkonur MERKAR KONUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.