Morgunblaðið - 24.09.2015, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 24.09.2015, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2015 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ekki náðist að veiða 103 hreindýr af þeim 1.274 sem fella átti fram til 20. september. Gefin voru út leyfi til veiða á 630 törfum og veiddust 589, ekki tókst að veiða 41 tarf. Tarfaveiðarnar stóðu frá 15. júlí til 15. september. Leyfðar voru veiðar á 782 hreinkúm. Af þeim á að veiða 138 kýr í nóv- ember. Veiðar á hreinkúm hófust 1. ágúst og lauk 20. september. Fella átti 644 kýr á því tímabili. Þegar upp var staðið höfðu verið felldar 582 kýr. Það gengu því af 62 kýr. Tekið skal fram um að bráða- birgðauppgjör er að ræða. Jóhann G. Gunnarsson, sérfræð- ingur hjá Umhverfisstofnun á Egils- stöðum, hefur umsjón með hrein- dýraveiðunum og er í sambandi við leiðsögumenn með hreindýraveiðum á veiðitímanum. „Það eru fleiri dýr óveidd nú en nokkru sinni fyrr í núverandi kerfi,“ sagði Jóhann. „Þetta var líka stærsti hreindýrakvótinn sem gefinn hefur verið út í þessu kerfi, 1.412 dýr.“ Tvisvar á 8. áratug 20. aldar voru gefnir út stærri kvótar, en veiðin var miklu minni þá en nú. Flest dýrin sem ekki veiddust eru á svæði 7, í Djúpavogshreppi. Þar náðist ekki að veiða um 20 tarfa og 20 kýr eða tæplega helming þess sem gekk af. Einnig gekk talsvert af á svæði 9, í Hornafirði, Suðursveit og á Mýrum, og eins á svæði 6 í Breiðdalshreppi, þeim hluta Fjarða- byggðar sem áður var Austurbyggð og hluta Fljótsdalshéraðs. Á öðrum veiðisvæðum gengu færri dýr af. Erfiðar aðstæður til veiða Jóhann sagði margt skýra hvað mörg dýr gengu af að þessu sinni. Stærsti kvótinn á einstöku veiði- svæði var á svæði 7 og það hafði áhrif. Þá hafði veðurfarið mikið að segja. Snjóa leysti seint og skaflar voru að hlána í allt sumar vegna kuldans. Það olli því að nýgræðingur var að koma upp allt sumarið. Dýrin héldu sig hátt til fjalla þar sem menn treystu sér ekki til að veiða. „Svo voru þokukaflar tíðari og lengri en áður sem olli því að veiði- menn fóru heim án þess að hafa veitt og sumir gátu ekki komið aftur,“ sagði Jóhann. Hann sagði að síðustu daga veiðitímans hefðu aðstæður til veiða verið slæmar og þeir dagar því nýst illa. „Það voru klárlega menn sem brunnu inni með dýrin sín því þeir treystu á daga í lokin sem ekki var hægt að veiða á.“ Jóhann kvaðst einnig oft heyra um veiðimenn sem gefi sér allt of skamman tíma í veiðiferðina. Þeir fari heim í flýti eftir ógæftir en dag- inn eftir sé fínasta veður. Þá veiði þeir sem ekki fóru heim. Menn sæki um veiðidaga Jóhann segir að margir hrein- dýraveiðimenn fari of seint til veiða á tímabilinu. Þunginn í veiðinni byrji ekki fyrr en eftir 20. ágúst. Þannig hefur þetta verið mörg undanfarin ár, þrátt fyrir að menn hafi verið hvattir til að nýta fyrri hluta veiði- tímans betur. Verið er að athuga með að taka upp nýtt fyrirkomulag við umsóknir um hreindýraveiðileyfi á þeim svæð- um þar sem kvótinn er stærstur. Það yrði gert til að dreifa veiðunum betur yfir veiðitímann. Veiðitím- anum verði þá skipt í þrjú þriggja vikna tímabil. Veiðimenn þurfi síðan að sækja um veiðar á einu þessara þriggja tímabila. Svo yrði dregið úr umsóknum um hvert tímabil. Engin ákvörðun hefur verið tekin um þetta fyrirkomulag en hún mun liggja fyrir áður en opnað verður fyrir umsóknir fyrir næsta hrein- dýraveiðitímabil. Aldrei fleiri hreindýr verið óveidd  Ekki náðist að veiða 103 hreindýr af þeim 1.274 dýrum sem veiða átti til 20. september  Dýrin héldu sig víða hátt til fjalla og fjarri hefðbundnum veiðislóðum  Þokur settu strik í reikninginn Morgunblaðið/RAX Hreindýr Veiðikvótinn var óvenju stór eða alls 1.412 hreindýr. Eftir er að veiða 138 hreinkýr nú í nóvember. Jóhann G. Gunnarsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.