Morgunblaðið - 24.09.2015, Blaðsíða 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2015
LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383
Gjafir sem gleðja
Líttu við og
skoðaðu úrva
lið
Glæsilegir skartgripir á frábæru verði
Verð 45.400,-
Demantur 6p.
Verð 37.900,-
Demantur 2p.
Verð 69.000,-
Demantur 11p.Verð 47.000,- Verð 35.900,-
Verð 33.900,-
BAKSVIÐ
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Fleiri hafa haft samband við okkur í
gegnum Hjálparsíma Rauða kross-
ins 1717 undanfarið en mesta aukn-
ingin er í gegnum netspjallið
1717.is,“ segir Hjálmar Karlsson,
verkefnisstjóri Hjálparsíma Rauða
krossins spurður um árangur af sýn-
ingum forvarnarmyndbandsins Út-
með’a um sjálfsvíg ungra karla.
Myndbandið var frumsýnt á Al-
þjóðadegi sjálfsvígsforvarna hinn 10.
september.
Í kjölfar sýningar myndbandsins
hefur umferð inn á netspjall Hjálp-
arsímans aukist um 33% en frá ára-
mótum hefur Hjálparsímanum bor-
ist að meðaltali 1,3 símtal eða spjall á
dag vegna eigin sjálfsvígshugsana
eða annarra.
Útmeð’a er samstarfsverkefni
Rauða kross Íslands, Geðhjálpar og
12 manna hlaupahóps undir merkj-
um Útmeð’a. Hópurinn hljóp hring-
inn í kringum landið til að safna fyrir
gerð myndbandsins og efna til vit-
undarvakningar um sjálfsvíg ungra
karla í sumar. Tilgangur átaksverk-
efnisins er að vekja athygli á því að
sjálfsvíg eru algengasta dánarorsök
íslenskra karla á aldrinum 18 til 25
ára og hvetja þá, sem og alla aðra, til
að bæta líðan sína með því að deila
áhyggjum sínum með öðrum.
„Við fórum af stað með netspjallið
til að vera nær ungu fólki og veita því
tækifæri til að nýta sér tæknina og
þá leið sem það á mögulega auðveld-
ara með að nota,“ segir Hjálmar.
Hann tekur fram að reyndir sjálf-
boðaliðar taki við öllum símtölum og
svari erindum í netspjallinu í fullum
trúnaði allan sólarhringinn.
10.000 deilingar á viku
Í Útmeð’a myndbandinu er m.a.
fjallað um reynslu ungs manns af
peningaáhyggjum, ástarsorg og ein-
manaleika. Þessar ástæður vega
þungt í sjálfsvígum ungra karla á Ís-
landi. Viðbrögðin við myndbandinu
hafa farið fram úr björtustu vonum
aðstandenda átaksverkefnisins.
Myndbandinu var deilt 10.000 sinn-
um á einni viku á samfélagsmiðl-
unum eða oftar en nokkru öðru
kynningarmyndbandi á yfirstand-
andi ári. Í gær nálgaðist deilingin 12
þúsund. Þegar myndbandinu er
dreift fylgja deilingunni oft sögur
um eigin tilfinningalegan vanda og/
eða einhverra nákominna. Þá er
einnig lifandi umræða víða á sam-
félagsmiðlunum, t.d. á twitter og fa-
cebook undir myllumerkinu #út-
meða.
„Við viljum að fólk haldi áfram að
tala tæpitungulaust um tilfinninga-
legan vanda en af ábyrgð og virð-
ingu,“ segir Hjálmar. „Við viljum
hvetja unga karlmenn til að setja til-
finningar sínar í orð og ekki bera
harm sinn í hljóði. Af hverju ekki að
leita sér hjálpar við andlegri vanlíð-
an eins og líkamlegum kvillum. Þetta
er ekkert sem fólk á að þurfa að
skammast sín fyrir,“ segir Hjálmar.
Hann bendir einnig á að eitt af
markmiðum myndbandsins sé að
hjálpa aðstandendum að greina vís-
bendingar um tilfinningavanda og
sjálfsvígshugsanir.
Sjálfsvígsforvarnir áskorun
„Sjálfsvígsforvarnir eru töluverð
áskorun því umfjöllunarefnið er
bæði mikilvægt og viðkvæmt. Með
myndbandinu vildum við í senn
hreyfa við fólki og senda því upp-
byggileg skilaboð. Þess vegna dettur
áhorfandinn inn í ráðgjöf um hvert
hann geti leitað á höfuðborgarsvæð-
inu og úti á landi vegna tilfinninga-
og geðræns vanda í lok myndbands-
ins,“ segir Anna Gunnhildur Ólafs-
dóttir, framkvæmdastjóri Geð-
hjálpar.
„Við erum mjög ánægð með út-
komuna enda lögðust allir strákarnir
í Tjarnargötunni á eitt við sjálfa
sköpunina eftir að hafa fengið
fræðslu frá okkur og helstu sérfræð-
ingum um umfjöllunarefnið.“
Því hefur stundum verið haldið
fram að opinber umræða um sjálfs-
víg sé varasöm. „Við veltum þessu
talsvert fyrir okkur og leituðum ráða
hjá sérfræðingum. Niðurstaða okkar
var sú að reynslan hefði sýnt fram á
að opin umræða væri af hinu góða og
skilaði árangri eins og sýnt var fram
á í átakinu Þjóð gegn þunglyndi,“
segir Anna Gunnhildur.
„Við vonumst líka til að átakið skili
því að fleiri verði óhræddir við að
leita sér hjálpar við að létta af sér
andlegum byrðum og finna sínar eig-
in leiðir til að takast á við öldudali
lífsins.“
Þjónusta í fjársvelti
Anna Gunnhildur bendir á að þörf-
in fyrir aukna þjónustu vegna tilfinn-
ingavanda og geðræns vanda sé
brýn. „Það þarf fleiri úrræði, sér-
staklega fyrir ungt fólk. Geðsvið
Landspítalans þarf fleira fólk og
meira fjármagn til að geta tekist bet-
ur á við hlutverk sitt.
Á sama tíma og geðsviðið hefur
þurft að skera niður um 20 til 25%
hefur eftirspurn eftir þjónustu auk-
ist í svipuðum mæli á síðustu fjórum
til fimm árum,“ segir Anna Gunn-
hildur og bendir á að Alþjóðaheil-
brigðisstofnunin hafi gefið út að
þunglyndi verði önnur stærsta
heilsufarsvá í heiminum árið 2020.
„Þessi vandi minnkar ekki og því
fyrr sem hægt er að hjálpa fólki því
árangursríkara verður það,“ segir
hún að lokum.
Æ fleiri tjá sig frekar á netspjalli
Eftir sýningu forvarnarmyndbandsins Útmeð’a um sjálfsvíg ungra karla hefur umferð inn á
netspjall Hjálparsíma Rauða krossins aukist um 33% frá áramótum Ungir karlar í mikilli hættu
Morgunblaðið/RAX
Forvarnir Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, og Hjálmar Karlsson hjá Rauða krossinum.
Sjálfsvíg á Íslandi
» Sjálfsvíg eru algengasta
dánarorsök karlmanna á aldr-
inum 18 til 25 ára á Íslandi.
» Karlar eru þrisvar til fjórum
sinnu líklegri en konur til að
fyrirfara sér.
» Fjórir til sex ungir karlar fyr-
irfara sér á Íslandi á hverju ári.
» Að meðaltali fyrirfara 35
manns sér á Íslandi á hverju
ári.
» Ríflega 100 manns eru lagð-
ir inn á sjúkrahús vegna vísvit-
andi sjálfsskaða á hverju ári.
» Fleiri konur en karlar eru
lagðar inn á sjúkrahús vegna
vísvitandi sjálfsskaða.
» Alvarleg áföll, vímu-
efnaneysla, hvatvísi og ýmiss
konar geðraskanir hafa verið
tengd sjálfsvígum.
Ríflega eitt símtal til Hjálp-
arsíma Rauða krossins 1717
snýst um sjálfsvíg, eigið eða
annarra, á hverjum einasta
degi allan ársins hring.
» Símtöl til Hjálparsíma
Rauða krossins 1717 um sjálfs-
víg voru 42% fleiri fyrrihluta
ársins 2015 en fyrrihluta árs-
ins 2014.
» Erindum til Hjálparsíma
Rauða krossins fjölgaði um
16% á sama tímabili.
„Allir hér innandyra þekkja ein-
hvern, beint eða óbeint, sem hef-
ur tengingu við þetta málefni, því
miður. Það er því ekki orðum
aukið þegar ég segi að þetta hafi
verið verkefni sem tók á mann-
skapinn því allir sem einn tóku
þátt í því; allt frá hugmyndavinnu
yfir í eftirvinnslu og skil. Það var
jafnframt einstaklega lærdóms-
ríkt og gefandi að vinna með öll-
um þeim frábæru fagaðilum sem
komu að verkinu, geðlæknum,
hjúkrunarfræðingum o.s.frv., þar
sem nauðsynlegt var að setjast
ítrekað niður saman í leit að þess-
um hárfína millivegi. Hvernig
koma skal öllum upplýsingum,
staðreyndum og skilaboðum til
skila en á sama tíma hrekja fólk
ekki frá, vekja samhug og útbúa
markaðsefni sem er það sláandi
að fólk finnur sig knúið til að
deila því áfram. Sem heldur betur
lukkaðist,“ segir Einar Ben., ann-
ar eigandi og framkvæmdastjóri
Tjarnargötu framleiðslufyr-
irtækis. thorunn@mbl.is
Allir þekkja einhvern
sem tengist málefninu
Krefjandi verkefni sem lukkaðist vel
Ljósmynd/M. Flóvent
Myndband Tjarnargata framleiðslufyrirtæki sem vann myndbandið Til-
raun til sjálfsvígs fyrir Útmeð’a. Á myndina vantar Hauk Karlsson.