Morgunblaðið - 24.09.2015, Síða 34

Morgunblaðið - 24.09.2015, Síða 34
34 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2015 VIÐATAL Karl Eskil Pálsson karlesp@simnet.is Matthías Rögnvaldsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Stefnu hugbún- aðarhúss ehf., kom nýr inn í bæjar- pólitíkina á Akureyri á síðasta ári, er hann settist í bæjarstjórn. Hann er oddviti L-listans, sem myndar meiri- hluta í bæjarstjórn ásamt Framsókn- arflokki og Samfylkingu. Matthías er forseti bæjarstjórnar, situr í bæjar- ráði og fer fyrir atvinnumálanefnd bæjarins. „Ég hafði áður gegnt nefndar- störfum fyrir Akureyrarbæ, en með því að taka sæti í bæjarstjórn fjölgaði fundunum heldur betur. Á vissan hátt er hægt að líkja sveitarfélaginu við stórt fyrirtæki með fjölþætta starfsemi, en auðvitað er munurinn mikill. Sveitarfélagið er fyrst og fremst þjónustustofnun sem á að vinna með íbúum sínum og fyrir þá. Við búum svo vel að hafa á að skipa afskaplega hæfu og áhugasömu starfsfólki, sem leggur sig fram við að veita trausta og góða þjónustu og sömu sögu er að segja um nefnd- arfólk. Markmiðið er alltaf að tryggja velferð og ánægju íbúanna, eins og kostur er hverju sinni. Stór hluti starfseminnar markast vissulega af ákvörðunum sem ríkis- valdið tekur með einum eða öðrum hætti. Þannig erum við með samn- inga við ríkið um rekstur á sviði skólamála, öldrunarþjónustu, mál- efnum fatlaðra og svo framvegis. Eins og fram kemur reglulega í fréttum eru sveitarfélögin ekki alltaf sátt við það fjármagn sem þau fá frá ríkinu í tengslum við alla þessa samn- inga, þannig að ef þú spyrð mig hvort eitthvað hafi komið á óvart á fyrsta starfsárinu í bæjarstjórn er svarið líklega samskiptin við ríkið.“ Hlutverk bæjarfulltrúa að hlusta Starfsmenn Akureyrar eru liðlega 2.000 í um 1.500 stöðugildum. Á vorin fjölgar svo starfsfólki um nærri 1.000 manns vegna afleysingastarfa og vinnuskólans. Matthías segir mik- ilvægt að virkja íbúana til frekari þátttöku í rekstri sveitarfélagsins, meðal annars með því að gera stjórn- sýsluna skilvirkari og gagnsærri. „Núna er að störfum nefnd sem ætlað er að fara gaumgæfilega yfir þessi mál og skila tillögum til út- bóta. Við viljum að reksturinn verði eins gagnsær og mögulegt er, þess vegna er nauðsynlegt að íbúunum gefist kostur á að koma að stefnu- mótun og ákvarðanatöku á sem flestum sviðum. Allar upplýsingar þurfa að liggja fyrir eins fljótt hægt er, til dæmis á heimasíðu bæjarins. Auðvitað þarf að huga vandlega að öllum trúnaðargögnum, en mark- miðið er að gögn verði aðgengileg, þannig að almenningur geti kynnt sér þau. Ég nefni til dæmis skipu- lagsmál, það er ekki nóg að auglýsa breytingar í fjölmiðlum, við eigum að nota rafræna tækni enn frekar en nú er gert til þess að koma upplýs- ingum til fólks.“ Matthías segist verða var við að íbúarnir haldi því fram að viðhorf þeirra skipti litlu eða engu máli. „Þetta er algjör misskilningur. Hlutverk bæjarfulltrúanna og fólks í nefndum er einmitt að hlusta eftir sjónarmiðum íbúanna og koma þeim áleiðis. Bæjarfulltrúarnir eru með opna viðtalstíma, þar sem fólk getur mætt og rætt málin og framboðslist- arnir eru allir með reglulega fundi. Bæjarstjórinn er með viðtalstíma, þannig að ég held að aðgengi að stjórnsýslunni sé á margan hátt með ágætum. Snjómokstur í bænum er klassískt deilumál, en það verður spennandi að sjá hvað þessi nefnd leggur til. Markmiðið er að virkja sem flesta til frekari þátttöku í rekstrinum.“ Nýsköpun nauðsynleg Eins og fyrr segir er Matthías for- maður atvinnumálanefndar bæjarins. Hann segist vera mikill áhugamaður um nýsköpun. „Atvinnu- og nýsköpunarhelgin hefur unnið sér fastan sess í bænum og ég hef komið að undirbúningi slíkra viðburða á undanförnum árum. Það er nauðsynlegt að efla nýsköpun eins mikið og hægt er og síðast en ekki síst er æskilegt að skólarnir kenni nýsköpun. Til að koma í veg fyrir stöðnum í atvinnulífinu er ný- sköpun lykilatriðið. Í þessu sambandi get upplýst að unnið er að því setja upp Fab Lab smiðju í Verkmennta- skólanum á Akureyri. Fab Lab er stafræn smiðja, þar sem hægt er að móta og framleiða hluti með aðstoð stafrænnar tækni. Í slíkri smiðju get- ur fólk sem sagt hrint hugmyndum sínum í framkvæmd. Ég er viss um að þessi stafræna smiðja kemur til með að styðja vel við alls kyns ný- sköpun.“ Matthías segir að skortur á raf- magni hamli á vissan hátt uppbygg- ingu atvinnulífsins á Akureyri, úr því verði að bæta sem allra fyrst. „Staðan er einfaldlega þannig að flutningskerfið ræður ekki við að flytja hingað meiri raforku, það er al- varleg staða og við treystum því að Landsnet kippi þessu í liðinn sem allra fyrst. Ég horfi til Kröflulínu og sömuleiðis Blöndulínu í þessum efn- um. Ef fyrirtæki hefur áhuga á að byggja hérna upp starfsemi sem krefst nokkurrar rafmagnsnotkunar, getur farið svo að vísa þurfi viðkom- andi annað. Það er náttúrlega staða sem ekkert sveitarfélag getur sætt sig við.“ Mótvægi við höfuðborgarsvæðið „Já, ég tel að Akureyri sé ákjósan- legur staður til að byggja upp, þannig að Eyjafjarðarsvæðið verði raun- verulegt mótvægi við höfuðborgar- svæðið. Hérna eru styrkir innviðir, góðar samgöngur, öflugt háskóla- sjúkrahús, margþætt atvinnulíf og góð þjónusta á nánast öllum sviðum. Hérna er sem sagt allt til alls, enda er fjölbreytnin líklega helsti styrkur Akureyrar. Við þekkjum umræðuna sem skapaðist í kjölfar ákvörðunar- innar um að flytja höfuðstöðvar Fiskistofu hingað til Akureyrar. Ým- islegt má vissulega segja um aðferð- arfræðina, en það hlýtur að vera eðli- legt að hluti stjórnsýslunnar sé í stærsta byggðarlaginu á landsbyggð- inni. Ríkisstjórnin vill dreifa opinber- um störfum, það kemur skýrt fram í samstarfssamningi flokkanna. Flutn- ingur Fiskistofu er væntanlega liður í þeim efnum, en betur má ef duga skal.“ Launahækkanir þyngja róður sveitarfélaganna Því er spáð að rekstur sveitarfé- laga verði almennt þungur á þessu ári. Laun kennara vega þungt, en grunnskólinn er stærsti útgjaldaliður flestra sveitarfélaga. „Bærinn hefur líklega aldrei fengið á sig eins miklar hækkanir og raunin verður á þessu ári. Útgjöldin vegna launa hækka líklega á bilinu 500 til 600 milljónir króna, þannig að það stefnir í að A-hluti bæjarsjóðs verði gerður upp með halla á árinu. Á þess- ari stundu er of snemmt að nefna ein- hverjar tölur. Launin eru mjög hátt hlutfall allra útgjalda bæjarins, ég er ekki frá því að hlutfallið á Akureyri sé það hæsta á landinu. Útsvarstekj- urnar hækka að vísu á móti, en sú hækkun dugar engan veginn til að dekka hærri launakostnað. Tekju- stofnarnir eru mjög afmarkaðir, þannig að nánast eina leiðin til að mæta auknum útgjöldum er að hag- ræða í rekstrinum. Öll sveitarfélög standa frammi fyrir þessum vanda. Umræðan um skiptingu skatttekna milli ríkis og sveitarfélaga verður að þyngjast – þetta gengur ekki svona áfram. Ég tel sanngjarnt að sveit- arfélögin fái hluta virðisaukaskatts- ins til sín og líka hluta fjármagns- tekjuskattsins.“ Nýsköpun lykilatriði í atvinnulífinu  Tillögur til að virkja íbúa Akureyrar til frekari þátttöku í rekstri bæjarins væntanlegar  Fjölbreytnin er helsti styrkur Akureyrarbæjar  Rekstur bæjarins er þungur Morgunblaðið/Karl Eskil Pálsson Naustahverfi Töluvert er byggt á Akureyri enda hefur íbúum fjölgað. Nýjasta hverfið er Naustahverfi, þar eru byggingakranarnir áberandi. Matthías er framkvæmdastjóri Stefnu hugbúnaðarhúss, starfsmenn eru rúmlega tuttugu. Höfuðstöðvarnar eru á Akureyri en starfsstöðvar í Hrísey, Kópavogi og í Svíþjóð. „Ég gæti ekki verið í bæjarpólitíkinni nema hafa gott fólk með mér. Fjölskyldan styður mig heilshugar og starfsfólk Stefnu sömuleiðis. Satt best að segja óraði mig ekki fyrir því að pólitíkin væri svona tímafrek, en ég nýt þess að vera í þessu. Ef ég hefði vitað fyrirfram hvað biði mín hefði ég hugsað mig tvisvar um að fara fyrir framboðslista. En þetta er gjöfult starf og lærdómsríkt. Stundum er ég húðskammaður, en ég fæ líka þakkir. Vonandi kem ég að gagni með störfum mínum fyrir sveitar- félagið. Ég hef gaman af þessu og ég er bæjarbúum þakklátur fyrir traustið.“ Pólitíkin er tímafrek ANNRÍKI Kvöldfundir algengir Satt best að segja óraði mig ekki fyrir því að pólitíkin væri svona tímafrek, segir athafnamaðurinn Matthías Rögnvaldsson. Verið velkomin Túnikur Peysur Bolir Pils Kjólar o.fl. Vinsælu velúrgallarnir alltaf til í mörgum litum Stærðir S-XXXXL Ný sending Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.