Morgunblaðið - 24.09.2015, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 24.09.2015, Blaðsíða 60
60 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2015 Bergljót Friðriksdóttir beggo@mbl.is „Í mínum huga er fiskur lang- bestur í einfaldleika sínum, þegar honum er ekki drekkt í sósu, og því skemur sem hann stoppar á pönnunni þeim mun ljúffengari er hann,“ segir Þórir Bergsson mat- reiðslumaður sem opnaði veitinga- staðinn Bergsson RE á 2. hæð í húsi Íslenska sjávarklasans við Grandagarð síðastliðið sumar. „Hér við höfnina leggjum við höf- uðáherslu á fisk og sjávarfang og matseðillinn mótast af því hvað er ferskast hverju sinni. Fiskinn fæ ég beint frá fisksala, hann er ein- göngu af línubátum og handflak- aður og gæðin leyna sér ekki.“ Fiskur dagsins er eðli málsins samkvæmt alla daga í aðal- hlutverki á matseðlinum á Bergs- son RE, en krabbahamborg- ararnir njóta líka mikilla vinsælda, að sögn Þóris. „Þeir eru gerðir úr sérveiddum íslenskum grjótkrabba sem er mikið lostæti. Við matreiðum hann í fleiri út- færslum og bjóðum til dæmis upp á krabbasamlokur, ásamt „surf and turf“ þar sem krabbinn mætir rifnum svínabóg. Meðlætið með fisknum og rétti dagsins skiptir ekki síður máli og nú fer í hönd skemmtilegur tími með haust- uppskerunni frá íslenskum græn- metisbændum; nýuppteknum kartöflum og brakandi fersku rót- argrænmeti sem við framreiðum ýmist eldað eða hrátt.“ Heillandi umhverfi Þórir hefur rekið veitingastað- inn Bergsson mathús í Templ- arasundi frá 2013 og aðspurður segir hann Bergsson RE byggja á sömu hugmyndafræði, þar sem hráefnið sé hollt, ferskt og úr nærumhverfinu. „Hér snýst auð- vitað allt um fisk og það gefur tóninn í eldhúsinu í byrjun dags að horfa á eftir bátunum á leið- inni á veiðar. Út um gluggann blasir við lífið í Reykjavíkurhöfn og það er frábært að vinna í þessu umhverfi.“ Bergsson RE er kaffihús og hádegisverðarstaður, opinn alla virka daga frá klukkan 10 til 16. Jafnframt er veitingastaðurinn leigður út með allri þjónustu fyrir einkasamkvæmi, á kvöldin og um helgar. „Á morgnana bjóðum við upp á léttan morgunverð, meðal annars grænan djús og gríska jógúrt, að ógleymdu súrdeigsbrauðinu sem við bökum sjálf og er algjörlega ómissandi. Á hádegismatseðlinum er auk fiskrétta alltaf réttur dagsins, spínatlasagne, súpa og salat. Staðurinn er hugsaður fyrir vinnandi fólk sem hefur takmark- aðan tíma í hádeginu, vill fá góð- an mat afgreiddan fljótt og njóta hans í notalegu umhverfi með besta útsýnið í bænum. Það er mjög ánægjulegt hvað viðtökur hafa verið góðar. Í hádeginu koma hingað allt frá 70 og upp í 100 manns og langflestir setjast niður og njóta matarins; einstaka viðskiptavinur er á hraðferð og tekur matinn með sér úr húsi. Mér finnst gaman að segja frá því að við gerum vel við okkar kúnna, maturinn er vel útilátinn og við reynum að halda verðinu sanngjörnu.“ Vínyll á fóninum Hönnun veitingastaðarins Bergsson RE er einföld og stíl- hrein, þar sem skírskotað er til útgerðar og lífsins við höfnina með ýmsum hætti og mikið lagt upp úr þægilegu og afslöppuðu andrúmslofti. „Við hönnuðum staðinn í sameiningu, ég og for- svarsmenn Íslenska sjávarklas- ans, og nutum ráðgjafar Milju Korpela, sem er þeirra yfirhönn- uður,“ segir Þórir. „Langborðin hér inni setja sterkan svip á veitingastaðinn en hugmyndin er fengin úr frysti- húsum landsins. Púðar í sófum, sérhannaðir Milja fyrir Bergsson RE, en þeir minna á siglingafána og eru unnir úr efni sem er notað í skipaiðnaði, og loftljósin, eftir Kristbjörgu Guðmundsdóttur leir- listakonu, eru postulínsafsteypur af gömlum nótakúlum.“ Úti í einu horninu á Bergsson RE má sjá forláta plötuspilara sem Þóri áskotnaðist fyrir mörg- um árum og hefur ákveðnu hlut- verki að gegna. „Við skellum gjarnan vínylplötu á fóninn, þann- ig skapast ljúf og þægileg stemn- ing sem matargestir kunna vel að meta. Tónlistin er úr ýmsum átt- um en við spilum þó aðallega franska harmonikkutónlist, Johnny Cash, Police og gömlu plöturnar með Rolling Stones.“ Gott í jólabröns Aðspurður segir Þórir von á nýjungum á Bergsson RE því nú styttist í jólin. „Við ætlum að bjóða upp á jólabröns frá og með 20. nóvember, alla föstudaga, laugardaga og sunnudaga, milli klukkan 11.30 og 16. Við setjum þá saman glæsilegt jólahlaðborð sem er sniðið fyrir alla fjölskyld- una, bæði börn og fullorðna, og hægt verður að panta borð fyrir hópa. Fiskmeti verður auðvitað áber- andi í jólabrönsinum, svo sem síld, lax og humarpaté, ásamt ýmsu öðru sjávarfangi. Einnig verðum við með fjöldann allan af hátíðlegum réttum, bæði kjöt og grænmeti. Við höfðum líka hugsað okkur að hefja rækjukokteilinn aftur til vegs og virðingar, þenn- an klassíska með sítrónusneið og bleikri sósu.“ Matur á Hlemmi Þórir hefur áralanga reynslu af veitingahúsarekstri, þar sem hann hefur alltaf haldið sig á hollustu- línunni, og hann segir miklar já- kvæðar breytingar hafa orðið á matarvenjum Íslendinga hin síð- ari ár. „Nú eru nýir og spennandi tímar. Fólk gerir miklu meiri kröfur en áður um hollan, hreinan og góðan mat og helst þarf hann að vera úr nærumhverfinu. Við viljum vita hvað við látum ofan í okkur og hvaðan maturinn kemur. Það er einmitt þetta sem við höf- um haft að leiðarljósi í Bergsson RE; matargestir vilja ferskan fisk, íslenskt grænmeti, innlenda framleiðslu. Hugmyndin að stofnun matar- markaðar á Hlemmi er í takt við breytta matarmenningu á Íslandi. Markaðurinn er spennandi verk- efni í þróun á vegum Reykjavík- urborgar, sem ég vinn að í sam- starfi við Íslenska sjávarklasann, Ólaf Örn Ólafsson framreiðslu- mann og Leif Welding hönnuð. Þetta nýjasta verkefni mitt er af- ar skemmtilegt og skref í þá átt að breyta matarinnkaupum í per- sónulega og ánægjulega upp- lifun.“ Sjórinn í seilingarfjarlægð  Á Bergsson RE, nýjum veitingastað Þóris Bergssonar matreiðslumanns við Grandagarð, geta matargestir átt notalega stund og gætt sér á nýveiddum fiski, grjótkrabba og ýmsu góðgæti um leið og þeir virða fyrir sér lífið við höfnina og njóta útsýnisins Hnossgæti „Á morgnana bjóðum við upp á léttan morgunverð, meðal annars grænan djús og gríska jógúrt, að ógleymdu súr- deigsbrauðinu sem við bökum sjálf og er algjörlega ómissandi.“ Sjávarstíllinn Hönnun veitingastaðarins Bergsson RE er einföld og stílhrein, þar sem skírskotað er til útgerðar og lífsins við höfnina með ýmsum hætti, eins og hér má sjá. Morgunblaðið/Eggert Stemning „Hér snýst allt um fisk; út um gluggann blasir við lífið í Reykja- víkurhöfn og það gefur tóninn í eldhúsinu í byrjun dags að horfa á eftir bát- unum á leiðinni á veiðar,“ segir Þórir Bergsson matreiðslumaður og eigandi Bergsson RE um reksturinn og lífið á Grandagarði. Meðlætið „Það skiptir ekki síður máli og nú fer í hönd skemmtilegur tími með haustuppskerunni,“ segir Þórir Bergs- son um meðlætið sem setur fullkomnar góða máltíð. MATUR Verið alltaf velkomin í Kolaportið! Opið laugardaga og sunnudaga kl. 11-17. Næg bílastæði við Kolaportið Það liggja allar leiðir til okkar – veldu þína! Kolaportið er umkringt af bílastæðahúsum. Vesturgata · Mjóstræti Fjöldi stæða 106 Ráðhúsið · Tjarnargata 11 Fjöldi stæða 130 Traðarkot · Hverfisgata 20 Fjöldi stæða 270 Kolaportið · Kalkofnsvegur 1 Fjöldi stæða 270 K V IK A
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.