Morgunblaðið - 24.09.2015, Síða 67

Morgunblaðið - 24.09.2015, Síða 67
67 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2015 unum í stað þess að vera í lokaðri ísskápsskúffu úr augnsýn, eru meiri líkur á að holli bitinn verði fyrir val- inu. Á mínu heimili þykir einnig spennandi að setja egg í eggjasuðu- vél og niðurskorið hnúðkál hefur slegið rækilega í gegn. Köld máltíð getur verið jafn næringarrík og heit Eiga foreldrar að vera með heit- an mat á kvöldin fyrir börn sín eða er skólamáltíðin nóg? „Þetta er smekksatriði að ein- hverju leyti og verður fyrst og fremst að ráðast af dagskrá fjöl- skyldunnar. Fjölskyldumáltíðir hafa verið tengdar við betra mataræði barna og unglinga í fjölda rann- sókna og þá sérstaklega við meiri grænmetisneyslu. Köld máltíð getur verið jafn næringarrík og fjölbreytt og heitur matur ef maður hugar að samsetningunni; kjarni máltíðar ætti að vera próteingjafi, kolvetna- gjafi og alltaf minnst þriðjungur af máltíðinni grænmeti og/eða ávextir. Í þessu samhengi vil ég benda sér- staklega á grænmetið því það verð- ur frekar útundan í millimáltíðum og fyrrihluta dags þar sem það er til dæmis ekki hefð hjá okkur að hafa grænmeti með morgun- matnum, en þá eru ávextir mun al- gengari sem morgunmatur og milli- mál. Ráðleggingin um 5 á dag nær til bæði ávaxta og grænmetis og ætti að skiptast nokkuð jafnt þar á milli, þ.e. 2-3 ávextir á dag og minnst 2 skammtar af grænmeti, gjarnan meira. Annað sem ég vil nefna með kvöldmatinn er mik- ilvægi hennar sem samveru- og samskiptastund fjölskyldumeðlima auk þess sem ég myndi vilja sjá okkur borða kvöldmatinn fyrr, yngri börn eru oft hreinlega orðin of þreytt til að borða vel þegar kemur að kvöldmatartíma.“ Hvað um morgunmatinn? „Morgunmaturinn kemur okkar af stað eftir næturföstuna og það eykur líkur á góðri einbeitingu og vellíðan. Hins vegar erum við mis- svöng á morgnana og foreldrar eiga það til að kvarta undan lystarlitlum börnum við morgunverðarborðið. Það er ekkert vit í að pína mat í börnin, en lítill biti er betri en eng- inn. Ef morgunmaturinn verður út- undan eru líka meiri líkur á að lýsið eða annar D-vítamíngjafi gleymist. Það er kostur ef ekki þarf að borða morgunmatinn á hlaupum, lystar- leysið getur annars vegar falist í því að maður er ekki vel vaknaður og tímaskortur veldur því oft að for- gangsröðun verður önnur. Það er í raun lykilatriði að horfa á heildar- myndina; þ.e. ef morgunmaturinn er lítill þarf morgunnestið ef til vill að vera aðeins meira. En það má um leið ekki verða svo mikið að það komi í veg fyrir að skólamaturinn sé borðaður í hádeginu. Síðdegis- hressing þarf svo að vera í takt við hvað, hversu mikið og hvenær síð- ast var borðað og svo koll af kolli – máltíðirnar í heild ráða úrslitum.“ Lengi býr að fyrstu gerð segir máltækið. Er þetta rétt hvað mat- aræði snertir? „Næring gegnir lykilhlutverki í að tryggja eðlilegan vöxt og þroska barna og unglinga. Gæði fæðunnar og nægt magn mikilvægra næringarefna hefur áhrif á bæði lík- amlega heilsu og andlega líðan, af- köst, einbeitingu og námsárangur.“Hollusta Ávextir eru frekar borðaðir af börnum ef þeir eru bitaðir niður.Gaman Skemmtilega skreyttur og hollur biti fyrir börn. Útlitið skiptir máli. Við tökum svefninn alvarlega. Hjá DUX® byggist góður svefn á háþróaðri tækni, góðu handverki, stöðugum prófunum og vandlega völdum efnum. Þegar þú sefur í DUX rúmi hvílir líkami þinn á meira en 85 ára rannsóknum og þróun. duxiana.is DUXIANA Reykjavik, Ármúla 10 / Sími 5 68 99 50 Gæðiogþægindi síðan1926 D U X an d D U XI A N A ar e re gi st er ed tr ad em ar ks ow ne d by D U X D es ig n A B 20 12 Atvinnublað alla laugardaga Sendu pöntun á augl@mbl.is eða hafðu samband í síma 569-1100 Allar auglýsingar birtast bæði í Mogganum og ámbl.is ER ATVINNUAUGLÝSINGIN ÞÍN Á BESTA STAÐ?
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.