Morgunblaðið - 24.09.2015, Side 68

Morgunblaðið - 24.09.2015, Side 68
68 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2015 ✝ Hörður Hún-fjörð Pálsson fæddist á Skaga- strönd 27. mars 1933. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 15. september 2015. Foreldrar Harðar voru Páll Svein- björnsson, f. 8.3. 1909, d. 3.6. 1970, bifreiðastjóri á Sauðárkróki, og Sigrún Ásbjörg Fannland, f. 29.5. 1908, d. 14.3. 2000, skáldkona. Systkini Harð- ar: Haukur Frímann, f. 20.1. 1931, d. 13.6. 2011, mjólk- urfræðingur á Sauðárkróki; Óskar Sveinbjörn, f. 3.3. 1932, d. 24.5. 2000, bifvélavirki í Kefla- vík; Kolbeinn Skagfjörð, f. 11.8. 1934, d. 2.6. 2007, versl- unarmaður í Keflavík; Ásta Eygló, f. 2.2. 1938, myndlist- arkona í Keflavík, og Bragi, f. 4.4. 1939, d. 6.10. 1986, verka- maður í Keflavík. Eftirlifandi eiginkona Harðar er Inga Þórey Sigurðardóttir, f. 12.7. 1933, húsfreyja. Foreldrar hennar voru Sigurður Sandhólm Magn- ússon, verkstjóri á Hellissandi, og Guðrún Jónasdóttir hús- árkróki. Hann starfaði hjá Guð- jóni í Sauðárkróksbakaríi til 1958, tók þá við rekstri Alþýðu- brauðgerðarinnar á Akranesi og rak hana 1958-63. Hann keypti þá bakaríið, breytti nafni þess í Harðarbakarí og starf- rækti það til 1998. Hörður var einn af stofnendum Íþrótta- félagsins Drangeyjar á Sauð- árkróki, en það sameinaðist ungmennafélaginu Tindastóli 1948. Hann æfði og keppti í frjálsum íþróttum, sat síðar í knattspyrnuráði Akraness og var formaður þess 1988-89. Hörður gekk ungur í stúku, var æðsti templar stúkunnar Gleym- mér-ei á Sauðárkróki, starfaði í stúkunni Akurblóminu á Akra- nesi og sat lengi í stjórn Stór- stúku Íslands. Hörður söng í kirkjukór Sauðár-króks og síð- an í kirkjukór Akra-ness. Hann stofnaði, ásamt þremur öðrum Skagakvartettinn 1967 og starf- aði í Oddfellow-reglunni frá 1960. Hörður var bæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Akranesi 1974-86, sat í skóla- nefnd Fjölbrautaskóla Vest- urlands, í stjórn Dvalarheimilis- ins Höfða og var stjórnarformaður Skipa- smíðastöðvarinnar Þorgeir og Ellert á Akranesi 1994-2008. Hann var sæmdur riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu 2003. Útför Harðar verður frá Akraneskirkju í dag, 24. sept- ember 2015, kl. 11. freyja. Börn Harð- ar og Ingu eru Guð- rún Bryndís, f. 23.12. 1956, sendi- herrafrú, gift Stef- áni Lárusi Stef- ánssyni sendiherra og eru synir þeirra Hörður Páll og Stefán Lárus; Sig- urður Páll, f. 16.7. 1961, bæjarverk- fræðingur hjá Akranesbæ, en kona hans er Ás- laug Árnadóttir, starfsmaður við íþróttamiðstöðina á Akra- nesi, og eru börn þeirra Inga Tinna, Magnús Björn og Pétur Aron; Hörður, f. 31.7. 1965, starfsmaður hjá Íslandsbanka, búsettur í Kópavogi en kona hans er Sigríður Bjarnadóttir skrifstofumaður og eru dætur þeirra Una Dís og Eva Rós, en börn Harðar frá fyrra hjóna- bandi eru Auður Elísa, Hörður Þór og Maron Snær; Sigríður Anna, f. 5.7. 1974, húsfreyja í Kópavogi en maður hennar er Jón G. Ottósson, starfsmaður hjá Stakkavík í Grindavík, börn þeirra eru Ottó Andrés, Guðrún Inga og Magnús Ari. Hörður ólst upp á Sauð- Elskulegur pabbi okkar, Hörð- ur Pálsson, er látinn. Við systkinin viljum fá að minnast þín með örfá- um orðum. Það fyrsta sem kemur í hugann er mikið þakklæti fyrir að hafa átt þig sem pabba. Þú varst vakandi og sofandi yfir vel- ferð okkar, hvernig okkur vegnaði í lífi og starfi og gladdist manna mest þegar vel gekk. Í erfiðleikum og mótlæti varst þú kletturinn sem alltaf var hægt að leita til og stuðningur þinn var ætíð ómetan- legur. Ekki er hægt að lýsa þakk- læti okkar í þinn garð með orðum. Söknuður okkar er sár og tekur í þegar nú rennur upp fyrir okkur að þú ert horfinn af þessu tilve- rusviði og tekur ekki lengur þátt í amstri daganna. Eftirleiðis verða sigrar lífsins litlausari og mótbyr tilverunnar mun taka meira á þegar elsku pabba nýtur ekki lengur við. Þú kenndir okkur margar lexí- ur fyrir lífið, sérstaklega hvernig þú umgekkst vini þína og sam- borgarana alla. Þú valdir alltaf sáttaleiðina í öllum deilum og vild- ir öllum vel. Framkoma þín end- urspeglaði það sem við sjáum nú að er mikilvægast í lífinu, að gefa af sér og vera í sem mestri sátt við guð og menn. Faðir okkar var ekki langrækinn maður en hann stóð fast á sínu og var ekki skaplaus og fólk vissi alveg hvar það hafði hann ef því var að skipta. Ef hann skipti skapi var það oft og einatt með þeim hætti að skapið sem glitt hafði í um stundarsakir hvarf eins og dögg fyrir sólu og allt varð með sama hætti á eftir. Áhugi þinn á lífinu og öllu í kringum þig var mikill og allt um- lykjandi. Ekkert uppi á Skaga var þér óviðkomandi. Þú varst ein- dreginn félagsmálamaður, stund- um svo mikill að fjölskyldunni þótti nóg um. Þú hafðir ástríðufullan áhuga á íþróttum frá unga aldri, fyrst sem keppnismaður í frjálsum íþróttum með félagi þínu á Sauðárkróki og síðar sem keppnismaður í brids. Þú tókst síðan virkan þátt í íþróttaiðkun barna okkar og studdir þau með ráðum og dáð. Sérstakan sess í hjarta þínu skipaði knattspyrnulið ÍA sem gaf þér margar góðar stundir í gegn- um árin. Minningarnar streyma fram og þá helst þær þar sem við höfðum þig og mömmu út af fyrir okkur. Þið mamma voruð mikil jólabörn og fengum við og okkar börn að njóta þess í ríkum mæli. Allar ferðirnar hvort heldur veiðiferðir, utanlandsferðir eða bara ferðalag út í óvissuna með kaffi og tilheyr- andi verða vel varðveittar í hjört- um okkar allra. Pabbi, það er við hæfi að við kveðjum þig með ljóði eftir móður þína og ömmu okkar Sigrúnu Fannland. Vagninn er kominn. Til ferðar er búist fljótt Fjarlægðin bíður og heimtar að tekið sé far. Sviðið lokast. Hratt veltur tímans hjól. Hverfa þó aldrei draumar um það sem var. Drúpa höfði blómin í brattri hlíð. Bros þeirra striðnað. Sólin í felum er. Himinninn grætur. Í fjöllin hann fellir tár, fullur samúð með þeim sem kveður og fer. Hvíl þú í friði, elsku pabbi okk- ar, og hafðu þökk fyrir allt sem þú varst okkur og barnabönum þín- um. Þín verður sárt saknað. Guðrún Bryndís, Sigurður Páll, Hörður, Sigríður Anna. Kynslóðir koma og kynslóðir fara. Hörður Húnfjörð Pálsson lést fyrir rétt rúmri viku á Land- spítalanum, hann var tengdafaðir minn og afi drengjanna okkar Guðrúnar, elsta barns hans. Herði kynntist ég árið 1985 þegar leiðir okkar Guðrúnar lágu fyrst saman. Hún var þá með annan fótinn á Bjarkargrundinni á Akranesi þar sem Hörður og Inga tengda- mamma höfðu búið sér og börn- unum sínum stórglæsilegt heimili. Hörður var bakarameistari og rak um árabil Harðarbakarí á Akra- nesi. Tengdapabbi var ótrúlegur eljumaður, sem aðrir geta vitnað til um betur en ég. Hann var mikill drifkraftur í atvinnulífi og margs konar félagsstarfi og var mjög gefandi í samfélaginu á Akranesi. Sjálfstæðisflokknum fylgdi Hörð- ur dyggilega alla tíð og lét ekki sitt eftir liggja að aka oft suður til Reykjavíkur á fundi eftir langa vinnudaga. Hann var af þeirri kynslóð sem ólst upp í mikilli fátækt á kreppu- tímum á Sauðárkróki. Af ótrúleg- um dugnaði náði hann að mennta sig sem bakari og sótti sér fram- haldsmenntun til Noregs og vann um tíma við iðn sína á Sauðár- króki. Fátæktin í æsku hafði greinilega markað sín spor hjá Herði því strax og hann hafði efn- islega burði til byrjaði hann að gefa frá sér án þess að gera mannamun og var jafnframt ós- ínkur á tíma, sem oft á tíðum var af skornum skammti. Hörður hélt fast en mildilega utan um fjöl- skyldu sína og sú skynjun var sterk að hann vildi allt fyrir sitt fólk gera. Í áranna rás hef ég oft hugsað til þess hvað hefði getað orðið um þennan hæfileikamann ef hann hefði fæðst á öðrum tíma, á öðrum stað. Hörður skartaði gullfallegri söngrödd af guðs náð og hafði yndi af því að syngja fyrir fólk, hvort sem um var að ræða einsöng eða í kór. Ég hef einu sinni tárast undir söng í útför, en það var þegar Hörður söng einsöng í útför Birgis nágranna síns af Bjarkargrund- inni. Hann söng einnig í útför móður minnar í kirkjunni á Ingj- aldshóli á Snæfellsnesi, algerlega óvænt og óundirbúinn, og jók við helgi athafnarinnar. Hörður hafði mikla hæfileika bæði sem bridsspilari sem og í skák, en það var á sömu bókina lært, hvar sem hann bar niður í íþróttum, það var ekki hætt fyrr en sigurinn var í höfn. Hátt á ní- ræðisaldri náði hann tökum á int- ernetinu og tileinkaði sér fljótlega að fara inn á alþjóðlegar keppn- issíður í brids og keppa þar við er- lenda spilamenn og hafa betur. Þessi mikli keppnismaður hafði ekki sigur undir lokin, en þá hafði mikið verið á hann lagt í veikind- unum. Hörður Pálsson er nú kom- inn á leiðarenda. Að segja að það sé skarð fyrir skildi nær ekki al- veg að túlka eftirsjá aðstandenda eða lýsa því tómarúmi sem þessi merki maður skilur eftir sig. Þessi orð eru of fátækleg og einungis brotabrot hugsana sem ná hvergi yfir lífshlaup þessa einstaka per- sónuleika. Drengjunum okkar Guðrúnar, þeim Herði og Stefáni, sem nú sjá á eftir afa sínum, auðn- aðist að kynnast Herði og Ingu náið í heimsóknum þeirra þegar við bjuggum erlendis. Sá tími verður þeim dýrmætur minning- arsjóður, sérstaklega heimsókn afa og ömmu til Tókýó, sem verð- ur okkur öllum ógleymanleg. Inga horfir nú á eftir lífsföru- naut sínum en hún er umvafin þeim kynslóðum hún og Hörður komu á legg. Guð blessi minningu Harðar Pálssonar. Stefán Lárus Stefánsson, Hörður Páll Stefánsson, Stefán Lárus Stefánsson. Í dag kveð ég mikinn vin og læriföður. Hann var alltaf til stað- ar og var sannkallaður hornsteinn fjölskyldunnar. Það lýsir Herði ágætlega að hann var bæði hrjúf- ur og ljúfur, ákveðinn í mörgum málefnum og kom ávallt sínum sjónarmiðum að. Eitt af því fyrsta sem hann sagði við mig þegar við settumst niður í bakaríinu var: „Jón minn, þú hittir alltaf sjálfan þig.“ Það eru orð að sönnu og á jafnt við í atvinnulífinu og heima fyrir. Hörður var maður mikilla sátta og nálgaðist hann málin á sinn sérstaka hátt. „Komdu með mér í smá bíltúr,“ sagði hann þeg- ar eitthvað þarfnaðist afgreiðslu eða hann vildi fá álit á einhverju tilteknu máli. Þá var hratt og örugglega gengið í málin og þau kláruð, kostur sem ég hef ávallt kunnað vel að meta. Hörður hjálpaði mér til mennta. Ég man það eins og gerst hafi í gær þegar ég var við vinnu í bakaríinu, að skera rúgbrauð sem var bæði heitt og þungt, að Hörð- ur kom að máli við mig. Hann gaf mér í raun tvo valkosti, annað- hvort kæmi ég meira að bakaríinu með honum eða hann myndi fylgja mér upp á Bifröst daginn eftir. Eftir stutta umhugsun varð Bif- röst ofan á og hefur það reynst lykill að störfum mínum alla tíð síðan. Stangveiði og fótbolti var Herði ávallt ofarlega í huga. Ég varð þeirrar gæfu að njótandi að fara með Herði í margar veiðiferðir og kenndi hann mér það sem ég kann í því góða sporti. Auk veiðinnar fékk tónlistin að njóta sín í þessum ferðum, sem og annars staðar þar sem Hörður var, en hann var mik- ill tónlistarunnandi. Upp úr þurru stóð hann upp og sagði: „Nú lang- ar mig til að syngja aðeins fyrir ykkur“. Eins fórum við oft saman á völl- inn og stendur upp úr ferð sem við fórum saman í vor á leik Man- chester United og Manchester City. Í þeirri ferð skein í gegn sá einlægi áhugi sem Hörður hafði fyrir íþróttinni, spennan var líkt og hjá fimm ára dreng. Þannig er Herði lýst einna best, allt var tekið með trukki. Að kynnast Herði og fjölskyldu hans hefur verið mín mesta gæfa og er ég honum ævinlega þakk- látur fyrir þau kynni. „Þetta var frábært!“ sagði hann gjarnan þeg- ar hann kom út af skemmtunum. Ég geri þau orð að lokaorðum mínum í þessari stuttu minningu, en þau lýsa vel kynnum okkar Harðar. Þetta var frábært. Þinn tengdasonur, Jón Guðmundur Ottósson. Elsku tengdapabbi minn er lát- inn eftir harða baráttu við ólækn- andi mein. Ég á þér margt að þakka, elsku Hörður. Þú varst mér og börnun- um mínum, Ingu Tinnu, Magga og Pétri, ómetanlegur stuðningur, fyrirmynd hins góða í lífinu. Það var alltaf gaman að fá þig í heimsókn í smá kaffispjall, þú stoppaðir yfirleitt stutt en komst þá þeim mun oftar. Takk fyrir allt, elsku Hörður minn, við söknum þín sárt. Minn- inguna um þig mun ég varðveita í hjarta mér. Við munum öll hugsa vel um Ingu þína. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir) Þín tengdadóttir, Áslaug (Ása). Elsku afi minn. Mér finnst erf- itt að hugsa til þess að fá ekki að sjá þig aftur. Þú hefur spilað svo stórt hlut- verk í mínu lífi allt frá því að ég fæddist og glætt líf mitt svo mörg- um fallegum og góðum minning- um. Ein af mínum fyrstu minning- um er þegar þú hélst á mér og söngst Úmbarassa en það lag átt- um við eftir að syngja oft á mínum bernskuárum. Þá sló ég taktinn á magann á þér og náðum við þann- ig góðum samhljómi. Það var allt- af gaman að vera með þér, elsku afi, en til að bæta ofan á þá ham- ingju varstu líka bakari, sem færði jafn mikla gleði og jólasveinninn á jólunum. Öll aðfangadagskvöld, frá því ég fæddist, var ég hjá ykkur ömmu á Bjarkargrundinni. Frá því ég fyrst man eftir mér, bjugg- um við til falleg piparkökuhús bökuðum hálfmána og fleira góð- gæti. Á aðfangadag birtist svo jólasveinninn á vélsleða með pakka inn um dyrnar og söng jóla- lögin með okkur. Ég horfði á þig syngja með kirkjukórnum og svo var borðaður jólamatur og pakka- flóðið tekið upp. Þegar við fjöl- skyldan fórum að halda jólin í Borgarnesi kom ég alltaf til ykkar ömmu seinna um kvöldið því í mín- um huga eru jólin samverustund með ykkur. Ég var oft í afabakaríi, eins og ég kallaði það, og fékk að hjálpa til og smakka allt það sem hugurinn girntist. Það var jafnframt minn fyrsti vinnustaður, þar sem ég af- greiddi en náði varla upp fyrir búðarborðið. Þér fannst það lítið tiltökumál og sagðir mér að gefa viðskiptavininum til baka með því að fara hinum megin við búðar- borðið, sem ég og gerði. Ég á ógleymanlegar stundir með þér og ömmu á Kanaríeyjum. Ég var aðeins níu ára þegar ég fór með ykkur fyrst. Þá fékk ég frí í skólanum en þú sást til þess að ég lærði á kvöldin og hjálpaðir mér við námið. Á milli bóka fórum við í mínígolf, spiluðum kínverska skák og margt fleira. Þið amma fóruð síðan með mig í allar ferðir og þá viðburði sem mér fundust spenn- andi. Ég var oft á tíðum spurð að því hvort mér leiddist ekki að vera með eldra fólkinu á Kanarí, en svarið kom beint frá hjartanu: „Bestu og skemmtilegustu ferðir sem ég hef upplifað.“ Í seinni tíð hefur þú alltaf tekið þátt í öllu því sem ég hef tekið mér fyrir hendur, hvort sem það er í námi, leik, íþróttum eða starfi. Þið amma hafið ávallt stutt mig í einu og öllu og verð ég ykkur ævinlega þakklát fyrir það. Þegar á móti blés veittuð þið mér stuðning og þú lagðir þig fram við að finna lausnir til þess að láta mér líða betur. Þú hefur alltaf verið hrókur alls fagnaðar, það vita allir sem þekktu þig. Það er erfitt að hugsa til þess að vera í veislu þar sem þú stendur ekki upp og heldur ræðu og tekur lagið „Heimaleikfimi“ sem allir taka undir. Ég veit að þú varst stoltur af mér og ég mun gera það sem ég get svo þú getir haldið því áfram. Nú hefur þú betra útsýni til að fylgjast með og ert fallegasti eng- illinn á himnum. Þú mátt vita það að ég hef alltaf verið stolt af því að vera barnabarn Harðar bakara. Ég lofa því að passa upp á ömmu. Ég elska þig, afi minn, og sakna þín. Hvíl í friði. Þitt fyrsta barnabarn, Inga Tinna. Elsku bróðir. Það er ótrúlegt að þú sért horf- inn á braut svona fljótt eftir stutta legu á sjúkrahúsi. Við vorum sex systkinin, fimm bræður og ég, nú eruð þið allir farnir og ég er ein eftir og er það ótrúlega sárt. Það er margs að minnast á langri ævi. Þú varst alltaf góð fyrirmynd, glæsilegur ungur maður og hrók- ur alls fagnaðar hvar sem þú komst. Við áttum góða æsku á Krókn- um þó það hafi verið á kreppuár- unum og oft hafi lítið verið til. Þú fórst ungur að læra að verða bak- ari hjá Guðjóni Sigurðssyni bak- ara á Króknum. Einu sinni sem oftar var árshátíð hjá Iðnaðar- mannafélaginu, bauðst þú litlu systir með þér, þá var ég 16 ára gömul, ég man hvað ég var glöð að þú skyldir bjóða mér stelputrypp- inu og þá var dansað fram á rauða nótt í gömlu Bifröst. Svo liðu árin og þú kláraðir námið og varst svo eitt ár í Noregi að fullnema þig í iðninni. Þú kynntist eiginkonu þinni, Ingu Sigurðardóttur frá Hellis- andi, þar sem hún var á kvenna- skólanum Löngumýri í Skagafirði og bjugguð þið nokkur ár á Króknum áður en þið fluttuð suð- ur á Akranes með fjölskyldu þína, vannst þú fyrst hjá Alþýðubrauð- gerðinni áður en þú stofnaðir þitt eigið bakarí þar. Þú varst mjög farsæll í starfi, þú hefur alltaf ver- ið mér góður bróðir. Þakka þér fyrir alla þína gjafmildi við mig í gegnum tíðina. Þú eignaðist góða fjölskyldu, elskulega konu, hana Ingu, og börnin þín Guðrúnu, Sigga Palla, Hörð og Siggu, sem öll hafa staðið sig svo vel. Ég þakka þér svo elsku bróðir alla þína gæsku við mig og mína, ég veit að bræðurnir og mamma og pabbi taka vel á móti þér. Vagninn er kominn til ferðar er búist fljótt fjarlægðin bíður og heimtar að tekið sé far sviðið lokast hratt veltur tímans hjól hverfa þó aldrei draumar um það sem var. Drjúpa höfði blómin í brattri hlíð bros þeirra stirðnuð himinninn grætur í fjöllin hann fellur tár fullur af samúð með þeim sem kveður og fer. (Sigrún Fannland) Elsku Inga mín, innilegar sam- úðarkveðjur til þín og barna þinna, tengdabarna og barna- barna. Ásta systir og Sveinn. Það er með miklum trega sem ég kveð meistara minn Hörð Páls- son bakarameistara. Ég hóf bak- aranám hjá Herði árið 1962 og alla tíð síðan hefur hann verið stór hluti af lífi mínu. Hann var góður yfirmaður, strangur en sanngjarn. Ég mun ekki rekja æviferil Harðar því það gera aðrir sem þekkja betur til, en Hörður lagði gjörva hönd á margt á löngum æviferli. Ég get þó ekki annað en sagt að ég tel að Hörður hafi verið með betri sonum Skagafjarðar og mér er til efs að Sauðárkrókur hafi átt betri sendiherra en Hörð Pálsson. Eftir að Hörður flutti á Akranes hafði hann ávallt mikinn metnað fyrir framgangi bæjar- félagsins, ekki síst í atvinnu- og velferðarmálum, en hann sat um langt skeið í bæjarstjórn Akra- ness. Á langri og farsæll vegferð kom hann að mörgum framfara- málum bæjarfélagsins. Áhugamál okkar voru mörg en lágu ekki hvað síst saman á sviði knatt- spyrnunnar og pólitíkur. Báðir vorum við formenn Knattspyrnufélags ÍA og bæjar- Hörður Húnfjörð Pálsson HINSTA KVEÐJA Tryggð Hve ást þín mig á örmum bar hve innileg vor gleði var er saman tvö við sátum þar svo saklaus góð og hrein sem fuglar tveir er syngja á sömu grein. (Tómas Guðmundsson) Hvíl í friði, þín eigin- kona, Inga. Með klökkum huga þig ég kveð, ég þakka allt sem liðið er, Guð okkur verndi og blessi. Það er sárt að kveðjast við dauð- ans dyr. En svona er lífið og dauðinn ei spyr, hvort finnist oss rétti tíminn til, dauðinn hann engum sleppir. (Ingimar Guðmundsson) Ég vil gera orð skáldsins að mínum um leið og ég þakka kærum vini mínum yfir 20 ára samfylgd. Ástvinum öllum bið ég Guðs blessunar. Guðleif Andrésdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.