Morgunblaðið - 24.09.2015, Side 82
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2015
RIFF | ALÞJÓÐLEG KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK
Það er efnafræðitími í eyði-mörkinni. Hópur mannahefur safnast saman. Þeirblanda saman efnum.
Gufur stíga upp úr stórri tunnu.
Þeir eru að búa til metamfetamín.
Eitrið er ætlað á markað í Banda-
ríkjunum. Mennirnir eru með grímu
eða klút fyrir andlitinu. Einn hefur
orðið. Við erum venjulegir menn,
bara fátækir, segir hann. Bætir við
að annars væri hann sennilega í
venjulegri vinnu eins og myndatöku-
maðurinn, sem er að mynda hann.
Þeir vita að það sem þeir gera veld-
ur tjóni. Aðstæður bjóða bara ekki
upp á annað og þannig verður það,
ef guð lofar.
Áhorfandinn fær nánast samúð
með þessum unga efnafræðingi.
Hann er hins vegar hluti af glæpa-
hring, sem er eins og ríki í ríkinu og
hefur sett lífið í héraðinu Michoacan
í Mexíkó á annan endann. Þeir kalla
sig Los Caballeros Templarios,
Musterisriddarana.
Kvikmyndin Cartel Land ein-
blínir hins vegar ekki á glæpahring-
ina, heldur tvo einstaklinga, sem
hafa ákveðið að spyrna við fótum og
taka lögin í eigin hendur fyrst verðir
laganna hafa brugðist.
Tóku lögin í sínar hendur
Tim „Nailer“ Foley er fyrrverandi
hermaður og eiturlyfjafíkill. Nú leit-
ar hann uppi eiturlyfjasmyglara við
landamæri Mexíkó og leitast við að
„framfylgja lögunum þar sem eru
engin lög“, eins og hann orðar það.
Í upphafi fór hann af stað til að
stöðva för þeirra, sem smygla sér
yfir landamærin í leit að vinnu, eftir
að hann gat sjálfur ekki fundið sér
vinnu vegna þess að störfin fóru til
ólöglegra innflytjenda. Þegar hann
sá ítök eiturlyfjagengjanna ákvað
hann hins vegar að beina kröftum
sínum gegn þeim.
Foley er oftast einn og hann og
félagar hans virðast vera algerlega
út af fyrir sig og fara sínu fram óá-
reittir og einir á báti. Þeir þurfa
hvorki að hafa áhyggjur af lögreglu
né öðrum íbúum í strjálbýlinu.
Öðru máli gegnir með hreyfingu
læknisins Joses Manuels Mireles
Valverde í Michoacan, Autodefensa
eða Sjálfsvörn. Hann á harma að
hefna. Musterisriddararnir rændu
honum og myrtu nokkra ættingja
hans. 2013 fór hann af stað og undir
forustu hans hafa borgarar snúið
bökum saman um að ráðast gegn
eiturlyfjahringnum, sem er með
samfélagið í herkví. Mireles verður
þjóðþekktur, en hreyfing hans er
ekki óumdeild og liðsmenn hans
gagnrýndir fyrir að hegða sér eins
og gengin. Baráttan gegn spillingu
er ekki ónæm fyrir spillingu. „Við
megum ekki verða glæpamennirnir,
sem við berjumst gegn,“ segir hann.
Cartel Land er mögnuð mynd.
Leikstjóri myndarinnar, Matthew
Heineman, hefur litlar áhyggjur af
hinu stóra samhengi. Hann þylur
ekki upp tölur látinna í stríðinu gegn
eiturlyfjum. En hryllingurinn skín í
gegn. Sýnt er frá jarðarför hátt á
annan tug manna, sem gengið myrti
vegna þess að plantekrueigandi vildi
ekki borga verndartoll. „Þeir gripu
um litla fætur smábarnanna og
slengdu þeim í grjótið,“ segir að-
standandi grátandi.
Stjórnvöld eru ráðþrota, almenn-
ingur fullur örvæntingar og hvað er
þá til bragðs?
Í einu atriði myndarinnar sést
hvar mexíkanski herinn ætlar að af-
vopna sjálfsvarnarliðið. Almenning
drífur að og gerir hróp að hernum.
Að endingu láta hermennirnir liðs-
menn Mireles fá vopnin sín aftur og
hverfa á braut.
Óhugnaður og spenna
Í öðru atriði þegar samtökin eru
orðin fjölmennari og blettur kominn
á orðsporið ætlar staðgengill Mir-
eles, sem hefur viðurnefnið „Pabbi
Strumpur“, að ávarpa bæjarbúa.
Einn þeirra hefur upp raust sína og
segir að sjálfsvarnarliðið geti ekki
tekið lögin í sínar hendur, það fari
með yfirgangi og sé á endanum
engu betra en glæpamennirnir. Rík-
ið eigi að tryggja að lögunum sé
framfylgt.
Þessi atriði gætu verið beint úr
grískum harmleik.
Cartel Land er bæði óhugnanleg
og spennandi. Hinir sjálfskipuðu
laganna verðir, Mireles og Foley,
eru báðir forvitnilegir. Mireles hefur
þokka stjórnmálamannsins, sem
getur hrifið fólk með sér. Foley er
einfarinn, með stingandi augnaráð
og meitlaða andlitsdrætti, og gæti
rétt eins verið hetja úr gömlum
vestra, en nærtækara er að setja
hann í flokk með þeim jaðar-
mönnum, sem sagt hafa sig úr lög-
um við samfélag og einangrað sig
með alvæpni.
Í Cartel Land er sögð saga úr öm-
urlegu stríði, sem hefur kostað allt
of mörg mannslíf og ekkert virðist
geta stöðvað. Sagan af baráttu Mir-
eles er sérlega sterk og hefur
Heineman náð ótrúlegum myndum
af vettvangi. Gerð myndarinnar hef-
ur ekki verið hættulaus, en útkoman
er sérlega áhrifarík.
Vígaslóðir Liðsmaður mexikönsku sjálfsvarnarsamtakanna Autodefensa, sem skorið hafa upp herör gegn
eiturlyfjahringnum Musterisriddararnir í héraðinu Michoacan í Mexikó, stendur vörð með brugðna byssu.
Riff Bíó Paradís
Land glæpahringjanna/Cartel Land
bbbbn
Leikstjóri: Matthew Heineman.
Tungumál: Enska og spænska. Mexíkó,
Bandaríkin. 98 mín.
KARL
BLÖNDAL
KVIKMYNDIR
Gegn valdi glæpahringja
Bíó Paradís: Fim 24. sept., kl. 21:30,
mán 28. sept., kl. 19:30, spurt og
svarað, fös 2. okt., kl. 22:15.
Á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni
í Reykjavík, RIFF, er sérstakur
flokkur íslenskra stuttmynda.
Sýndar verða sextán kvikmyndir
eftir unga leikstjóra af báðum
kynjum, og er í öllum tilvikum
um að ræða frumsýningu stutt-
myndanna á Íslandi. Aðstand-
endur bestu íslensku stuttmynd-
arinnar hljóta viðurkenningu sem
veitt er í minningu Thors Vil-
hjálmssonar. Valdar myndir úr
flokki íslenskra stuttmynda verða
síðan kynntar af RIFF á erlend-
um hátíðum.
Stuttmyndir
á RIFF
Verðlaunamynd Þórður Pálsson hlaut hin virtu Nordic Talent Prize fyrir
stuttmynd sína Brothers sem er ein íslensku stuttmyndanna á RIFF.
Skráðu þig í Safnarann og þú
gætir eignast eigulegt listaverk
að andvirði allt að 400.000 kr.
Svona eignast þú listaverk
• Þú leggur inn 1.000 kr. eða meira í
Safnarasjóðinn mánaðarlega.
• Þú ferð í pottinn og á Menningarnótt
eru heppnir safnarar dregnir út.
• Í úrvalspottinum er fjöldi listaverka eftir
marga af fremstu listamönnum þjóðarinnar.
• Heildarverðmæti listaverkanna
er á þriðju milljón króna.
• Þú getur margfaldað líkurnar á
að komast í úrvalspottinn með því að
greiða hærri upphæð.
• Sé númerið þitt ekki dregið út getur þú
notað inneignina til að fá listaverk eða tekið
inneignina þína út í formi gjafabréfs.
• Upphæðin sem þú leggur inn tapast aldrei.
Frekari upplýsingar og skráning á
heimsíðunni okkarwww.safnarinn.is
Samstarfsaðilar Safnarans eru: