Morgunblaðið - 24.09.2015, Blaðsíða 84
84 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2015
ER KOMINN TÍMI
Á SJÓNMÆLINGU?
Traust og góð þjónusta í 19 ár
Hamraborg 10 – Sími: 554 3200 – Opið: Virka daga 9.30-18
ERNA
Skipholti 3 - Sími: 552 0775
www.erna. is
Skipholti 3 - Sími: 552 0775 - www.erna.isERNA GULL- OG SILFURSMIÐJA
Það er nú eða aldrei!
1ct demantshringur (IP1) 1.000.000,-
0.50ct demantshringur (HS1) 400.000,-
0.25ct demantshringur (HS1) 200.000,-
„Það verður engin lognmolla á
þessum tónleikum. Það verður teflt
á tæpasta vað,“ segir Sigrún Eð-
valdsdóttir fiðluleikari sem kemur
fram á fyrstu tónleikum Kammer-
músíkklúbbsins í vetur í Norður-
ljósasal Hörpu nk. sunnudag kl.
19.30. Með Sigrúnu koma fram
Pascal La Rosa á fiðlu, Þórunn Ósk
Marinósdóttir á víólu og Sigurgeir
Agnarsson á selló. Á efnisskránni
eru strengjakvartett í d-moll op. 56
eftir Jean Sibelius og strengja-
kvartett nr. 6 í f-moll op. 80 eftir
Felix Mendelssohn.
Spurð um valið á strengjakvart-
ettunum tveimur segir Sigrún að
stjórn Kammermúsíkklúbbsins hafi
valið kvartettinn eftir Sibelius en
hún hafi valið kvartettinn eftir
Mendelssohn. „Í desember nk.
verða liðin 150 ár frá fæðingu Sib-
eliusar og því fannst stjórninni til-
valið að flytja verk eftir hann. Þessi
kvartett er mikið virtúósastykki. Á
köflum hljómar verkið ólíkt öðru
höfundarverki Sibeliusar, en stund-
um er hins vegar eins og við séum
að spila sinfóníu nr. 7 eftir hann,“
segir Sigrún og rifjar upp að hún
hafi spilað kvartettinn fyrir um
áratug. „Þá var Youtube ekki kom-
ið í gagnið eins og nú og því urðum
við að finna upp hjólið varðandi
hvað virkaði best í útfærslu. En í
dag er hægt að leita sér innblásturs
bæði á Youtube og Spotify, sem er
mikill munur því áður voru upp-
tökur bara aðgengilegar á plötum
og diskum.“
Að sögn Sigrúnar heldur stjórn
Kammermúsíkklúbbsins nákvæmt
bókhald yfir þau verk sem flutt
hafa verið á vegum klúbbsins.
„Samkvæmt þeirra bókhaldi hefur
aðeins einn kvartett eftir Mendels-
sohn verið fluttur og því bað stjórn-
in mig að velja verk eftir hann,“
segir Sigrún og bendir á að hún sé
alveg heilluð af verkinu sem flutt
verður á tónleikunum. „Þessi kvart-
ett er æðislegur, en líka rosalega
erfiður og krefjandi,“ segir Sigrún
og tekur fram að bæði verk tón-
leikanna séu mjög áheyrileg.
silja@mbl.is
Kammermúsík Þórunn Ósk Marinósdóttir, Sigrún Eðvaldsdóttir, Sigurgeir
Agnarsson og Pascal La Rosa koma fram á fyrstu tónleikum klúbbsins.
„Engin lognmolla“
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Teiknimyndasögur eru vanmetin listgrein á Íslandi en
hingað til hafa fáar íslenskar sögur komið út á þessu
áhugaverða formi. Jón Páll Halldórsson, betur þekkt-
ur sem Jón Páll flúrari, og félagi hans Þórhallur Arn-
órsson ætla að bæta úr því en þeir vinna um þessar
mundir að teiknimyndasögunni Vargöld.
„Þetta er svo kölluð „graphic novel“, þ.e. við gefum
þetta út í harðkápu og stíllinn er nær því formi sem
þekkist í Evrópu en Bandaríkj-
unum,“ segir Jón Páll en munurinn
er helst sá að teikningarnar eru ná-
kvæmari og meira lagt upp úr smá-
atriðum en í hinni klassísku banda-
rísku teiknimyndasögu.
„Kannski má lýsa þessu með þeim
hætti að við séum að taka skáldsögu
og segja hana á myndrænan hátt þar
sem við leyfum teikningunum að
sýna aðstæður og svipbrigði sögu-
persóna og gefa innsæi í tilfinningar
þeirra. Þetta form lendir því kannski mitt á milli hefð-
bundinnar teiknimyndasögu og skáldsögu.“
Heildstæð saga goðanna
Vargöld er saga norrænu guðanna eða goðanna en
sagan fjallar um norræna goðafræði á eins heild-
stæðan hátt og höfundunum er auðið að sögn Jóns
Páls.
„Þórhallur hefur lokið ýmsu námi við Háskóla Ís-
lands og nú síðast lagði hann þar stund á norræna
goðafræði. Hann tryggir að sagan sé sem heildstæðust
og nákvæmust. Unnið er út frá þeim frumheimildum
sem liggja fyrir í fornritunum og reynt að halda eins
mikla tryggð við þær frásagnir og mögulegt er auk
þess sem skapaðar persónur eru notaðar til aðstoðar,“
segir hann.
Áhersla á nákvæma frásögn og tryggð við fornar
heimildir er svo mikil að þeir Jón Páll og Þórhallur
veltu því fyrir sér á hvoru auganu Óðinn væri blindur.
„Já, það er rétt. Við veltum því fyrir okkur en heim-
ildir segja ekkert um það svo við getum í raun ákveðið
það sjálfir. Þá er kannski rétt að nefna að við sköpum
persónur sem eru notaðar til aðstoðar og hjálpa okkur
að segja söguna. Lesendur byrja t.d. að sjá söguna frá
sjónarhóli gamals víkings, sem deyr í orrustu og fer til
Valhallar.“
Nokkurra binda saga
Ætlunin er að segja alla sögu goðafræðinnar frá
byrjun til endaloka. Það er ekki gert í einu hefti eða
einni bók að sögn Jóns Páls.
„Hver bók er um sextíu síður og hefur miklu verið
varið í að gera söguna eins vandaða og auðið er. Því
má búast við að þetta verði fjórar eða fimm bækur og
kemur sú fyrsta út núna í haust.“
Útgáfan er ekki gefins og til að fjármagna bæði út-
gáfu sögunnar og markaðssetningu hafa þeir félagar
komið af stað hópfjármögnun. Það er mikið verk að
gefa út margra binda verk sem þetta en Jón Páll von-
ar að fjármögnunin komi þeim eitthvað áfram svo og
reynsla þeirra í auglýsinga- og tölvuleikjaheiminum.
„Við sækjum í reynslu okkar bæði í agulýsinga- og
tölvuleikjaheiminum. Ég starfaði sjálfur hjá CCP við
EVE online-tölvuleikinn en þar vann ég við hönnun og
útlit persóna. Einnig vann ég um árabil hjá Latabæ
sem yfirhönnuður,“ segir Jón Páll en hann er þó
kannski þekktastur fyrir að vera einn lengst starfandi
húðflúrlistamaður landsins en hann starfar við þá iðn
á Spáni í dag, nánar tiltekið Barcelona.
Þórhallur hefur heldur ekki setið auðum höndum og
getur sótt í reynslubankann eins og Jón Páll í þessu
verkefni.
„Þórhallur liggur ekki bara yfir norrænu goðafræð-
inni. Hann hefur lengst af fengist við skrif og hug-
myndavinnu við auglýsingar og starfað við það hjá
nokkrum af auglýsingastofum bæjarins. Þá starfaði
hann um árabil sem vörumerkisstjóri Latabæjar.
Núna er hann búsettur í Berlín og starfar við mark-
aðssetningu á tölvuleikjum fyrir samskiptamiðla.“
Dramatík Mikið er lagt upp úr myndefninu.
Íslensk teiknimynda-
saga í nokkrum bindum
Jón Páll flúrari og Þórhallur Arnórsson vinna saman að
fyrstu stóru íslensku teiknimyndasögunni, Vargöld
Þrumuguðinn Þór er mikið heljarmenni í Vargöld.
Jón Páll