Morgunblaðið - 24.09.2015, Page 89
MENNING 89
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2015
AF LÁTNUM
Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is
Margir rokktrymblar hafa látist fyrir ald-ur fram. Má þar nefna John Bonham(drakk sig í hel), Keith Moon (misnotk-
un lyfja), Cozy Powell (bílslys), Eric Carr
(krabbamein), Clive Burr (MS-sjúkdómurinn) og
Jimmy „The Rev“ Sullivan (misnotkun lyfja).
Allt nöfn sem eru rokkelskum töm. Ingo
Schwichtenberg er líklega ekki nafn sem hringir
eins mörgum bjöllum en örlög hans voru síst
mildari en þeirra sem getið var hér að framan.
Tuttugu ár eru síðan þessi stofnmeðlimur í
þýska málmbandinu Helloween batt enda á líf
sitt með því stökkva í veg fyrir neðanjarðarlest.
Þar með lauk langri glímu Brosa (Mr. Smile) –
eins og hann var gjarnan kallaður vegna glað-
værðar sinnar og ljúfmennsku – við áfengi,
fíkniefni og geðrof.
Tónlistarferill Schwichtenbergs hófst í
skólahljómsveit í Hamborg. Hann lék upp-
haflega á klarínett en þótti trymbillinn svo æv-
intýralega slakur að hann reif af honum kjuðana
og lamdi sjálfur húðirnar. Eftir það varð ekki
aftur snúið.
Schwichtenberg vingaðist ungur við gítar-
leikarann og söngvarann Kai Hansen og gekk í
hljómsveit hans, Gentry, sem fyrst var umnefnd
Second Hell og síðan Iron Fist. Loks stakk
Schwichtenberg upp á Helloween eftir að hafa
séð hina víðfrægu hrollvekju Halloween. Í ein-
hverjum prakkaraskap skiptu þeir a-inu út fyrir
e. Auk Schwichtenbergs og Hansens voru í
bandinu Michael Weikath gítarleikari og bassa-
leikarinn Markus Grosskopf. Tveir þeir síðar-
nefndu hafa verið í Helloween fram á þennan
dag.
Fyrsta plata Helloween, Walls of Jericho,kom út 1985 og féll í góðan jarðveg og
sveitin varð strax leiðandi í svonefndum sprett-
málmi. Helloween sló svo rækilega í gegn með
tvískífunni Keeper of the Seven Keys I og II
1987 og 1988. Þá hafði bjartbarkinn Michael
Kiske tekið við hljóðnemanum af Hansen sem
einbeitti sér að strengjunum.
Eftir það kom bakslag. Hansen yfirgaf
bandið og sú ákvörðun að skipta um útgefanda,
fara frá Noise til EMI Records, dró dilk á eftir
sér. Noise höfðaði mál og hafði betur eftir japl,
jaml og fuður. Það kostaði Helloween skilding-
inn.
Þarna voru félagar Schwichtenbergs farnir
að taka eftir persónuleikabreytingum. Þessi
glaðværi og ljúfi piltur var skyndilega orðinn
þungur og mislyndur og farinn að hegða sér
undarlega. Í bili var það skrifað á reikning
áfengis- og fíkniefnaneyslu.
Næstu plötur Helloween, Pink Bubbles Go
Ape (1991) og Chameleon (1993), ollu von-
brigðum. Það var eins og bandið hefði glatað
kompásnum.
Þegar kom að því að fylgja Chameleon eftir
var Schwichtenberg varla túrtækur. Hann var
sokkinn djúpt í fen þunglyndis og fíkniefna-
neyslu og félagar hans réðu mest lítið við hann.
Samt var ýtt úr vör. „Við áttuðum okkur á því að
eitthvað alvarlegt amaði að honum,“ rifjaði
Weikath upp síðar.
Á miðjum tónleikum í Hiroshima í Japanféll Schwichtenberg í yfirlið og var fluttur
rakleiðis á spítala. Hann undirgekkst rannsóknir
næstu vikurnar og niðurstaðan var sú að hann
væri með geðrof.
Helloween var vandi á höndum. Schwicht-
enberg var þeim sem bróðir en vegna veikinda
sinna var hann engan veginn fær um að spila
með þeim. Þrátt fyrir greininguna dró trymbill-
inn ekki úr áfengis- og fíkniefnaneyslu sinni, auk
þess sem hann kinokaði sér við að taka geðlyfin.
Hinir fjórir treystu sér ekki til að hafa
Schwichtenberg lengur í bandinu og Weikath
fékk það hlutverk að segja honum upp störfum.
Það var ekki létt verk. „Hann var að steikja í sér
heilann, án þess að hafa minnstu hugmynd um
það,“ sagði Weikath síðar. „Ingo sætti sig aldrei
við orðinn hlut og skellti skollaeyrum við orðum
lækna sinna.“
Helloween-liðar reyndu hvað þeir gátu til
að hjálpa hinum þjáða félaga sínum. Roland
Grapow, sem leysti Hansen af í sveitinni, samdi
meira að segja lag um hremmingar hans, Step
Out of Hell, sem er að finna á Chameleon. „Ég
samdi þetta lag fyrir þig, þar sem ég sé að þú átt
við mikinn vanda að etja,“ kveðst Grapow hafa
sagt við Schwichtenberg. Og það var áður en
hann greindist með geðrof.
„Ég lækna mig sjálfur,“ á Schwichtenberg
að hafa sagt og það gerði hann 8. mars 1995.
Henti sér í veg fyrir neðanjarðarlest í Hamborg.
Hann vantaði tvo og hálfan mánuð upp á þrítugt.
Bak við bjarta brosið
Sprettmálmur Helloween eins og sveitin var skipuð frá 1988 til 1993. Michael Kiske, Ingo Schwichten-
berg, Michael Weikath, Markus Grosskopf og Roland Grapow.
Grimm örlög Ingo Schwichtenberg í ham á tón-
leikum með Helloween seint á níunda áratugnum.
»Hann var að steikja í sérheilann, án þess að hafa
minnstu hugmynd um það.
Fyrstu tónleikar haustsins í tón-
leikaröðinni Á ljúfum nótum í Frí-
kirkjunni verða í dag, fimmtudag,
kl. 12. Yfirskrift tónleikanna er
Vókalísur og næturgalar – á nor-
rænum nótum, en flytjendur eru
Hlín Pétursdóttir Behrens sópran
og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari.
Hrönn
Þráinsdóttir
Á ljúfum nótum
í Fríkirkjunni
Hlín Pétursdóttir
Behrens
Í tengslum við sýninguna Heim-
urinn án okkar sem nú stendur yf-
ir í Hafnarborg verður efnt til
málþings í húsakynnum safnsins í
kvöld kl. 20. Þar er ráðgert að
gera viðfangsefnum sýningarinnar
skil með þátttöku fræðimanna úr
ólíkum greinum.
Þátttakendur málþingsins eru
dr. Benedikt Hjartarson, prófessor
í almennri bókmenntafræði við
Háskóla Íslands, Gunnar J. Árna-
son listheimspekingur og Sævar
Helgi Bragason, verkefnisstjóri
vísindamiðlunar hjá verkfræði- og
náttúruvísindasviði Háskóla Ís-
lands, auk þess sem sýningar-
stjórar sýningarinnar, þær Aldís
Arnardóttir listfræðingur og Að-
alheiður Valgeirsdóttir listfræð-
ingur og myndlistarmaður, munu
segja stuttlega frá sýningar-
hugmyndinni.
Málþing um Heiminn án okkar
Yfirlit Úr sýningarsal í Hafnarborg.
Jessica Bushey flytur erindi um
rannsóknaverkefni sitt í samtíma-
ljósmyndun í fyrirlestrarsal mynd-
listardeildar LHÍ á Laugarnesvegi
91 á morgun kl. 13.
„Í fyrirlestrinum mun Bushey
fjalla um breytingar á hlutverki og
ábyrgð einstaklinga gagnvart sam-
félagsmiðlum er viðkemur því að
búa til, skipuleggja og varðveita
persónulegt stafrænt efni á net-
inu,“ segir m.a. í tilkynningu.
Bushey býr og starfar í Vancou-
ver, Kanada. Hún er doktorsnemi
við School of Library, Archives and
Information Studies (SLAIS) í há-
skólanum í British Columbia í Van-
couver. „Í rannsókn sinni skoðar
hún samtímaljósmyndun og notkun
farsíma og ýmissa samfélagsmiðla
eins og Facebook, Twitter og In-
stagram við ljósmyndun og varð-
veislu á stafrænu efni.“
Fyrirlesturinn fer fram á ensku
og eru allir velkomnir á meðan hús-
rúm leyfir.
Rannsakar samtímaljósmyndun
Fyrirlesarinn Jessica Bushey.
EVEREST 3D 5:30,8,10:30
MAZE RUNNER 6,9
NO ESCAPE 10:30
ABSOLUTELY ANYTHING 6
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
mbl.is/askriftarleikur