Þjóðmál - 01.03.2012, Page 43
42 Þjóðmál VOR 2012
hann á Jón Kristjánsson, sem vildi heldur
ekki svara fyrir málið . Ólafur neitaði því að
hann réði fyrir nokkrum bréfum í Icelandic
Group og þegar hann var spurður að því
hvort hann hefði fengið bréf í Icelandic
Group við sameiningu SH og Sjóvíkur vís aði
hann til fyrra svars um Serafin Shipping .20
Hinn 23 . júní barst svohljóðandi til
kynning frá Icelandic Group:
Vegna umfjöllunar fjölmiðla að undan förnu
um hluthafa í Icelandic Group hf . vill félagið
koma eftirfarandi á framfæri:
Við samruna Icelandic Group hf . og Sjóvíkur
ehf ., sem samþykktur var þann 30 . maí sl .,
eignaðist Serafin Shipping Corp . 5,96% hlut í
Icelandic Group hf . í skiptum fyrir hluti sína
í Sjóvík ehf . Að afloknum samruna Icelandic
Group hf . og Sjóvíkur ehf . barst Icelandic Group
hf . tilkynning þess efnis að Serafin Shipping
Corp . hefði verið slitið og hlutafjáreign félagsins
í Icelandic Group hf . hefði verið ráðstafað til
hluthafa í Serafin Shipping Corp ., þar á meðal
Fordace Limited sem þannig eignaðist 4,47%
hlut í Icelandic Group hf .
Á lista sem birtur var hinn 10 . júní sl ., yfir
tíu stærstu hluthafa félagsins, hafði verið tekið
tillit til framangreindrar skiptingar .21
Blaðamenn Fréttablaðsins komust þó brátt
að hinu sanna . Ólafur var eigandi Serafin
Shipping og fékk um sex prósenta hlut í
sameinuðu félagi í skiptum fyrir hlut sinn
í Sjóvík .22 Skylt var að tilkynna um svo
stóran eignarhluta til Kauphallarinnar, með
svokallaðri flöggun . Það var ekki gert og í
staðinn var hlutabréfum Serafin Shipping í
Icelandic Group skipt niður á tvö félög, líkt
og áður sagði, Fordace Ltd . sem fékk 4,47
prósenta hlut og Deeks Associates Ltd . með
1,49 prósenta hlut . Hvorugt þessara félaga
20 Sama heimild .
21 Af heimasíðu Kauphallarinnar, news .icex .is, fyrir
tækjalisti .
22 „Ólafur Ólafsson átti Serafin Shipping“ . Frétta
blaðið, Markaðurinn, 29 . júní 2005 .
réð þá yfir meira en fimm prósentum hluta
fjár og þau voru því ekki tilkynningarskyld
til Kauphallarinnar . Í samtali við Fréttablaðið
í júní 2005 kvaðst Ólafur ekki kannast við
Fordace Limited . Þegar hið sanna kom í
ljós náðist ekki Ólaf .23 Fjármálaeftirlitið
tók viðskiptin til athugunar, og þá sér í lagi
hlut Serafin Shipping, en meðal skyldna
Fjármálaeftirlitsins er að fylgjast með því
að lögbundnar upplýsingar séu gefnar á
skipulögðum hlutabréfamörkuðum, en
brot á lögum um verðbréfaviðskipti varðar
sektum — varði brotið ekki þyngri refsingu
samkvæmt öðrum lögum . Fjármálaeftirlitið
skoðaði málið en aðhafðist ekkert .
Kauphöllin gekk heldur ekki eftir því að fá
upplýsingar um málið .24
Félögin tvö, sem Ólafur notaði til að
leyna eignarhaldi sínu í Icelandic Group,
eru bæði staðsett á Tortola, sem er ein af
Bresku Jómfrúareyjum . Þau voru stofnuð í
júní 2005 og skráð á sama heimilisfang við
Castro Street í Road Town .
Samhengi í sögunni
Málefni Ólafs Ólafssonar munu án efa verða til umræðu á næstu misserum
í kjölfar ákæru sérstaks saksóknara . Hér
hefur aðeins verið sagt frá nokkrum
viðskiptafléttum Ólafs Ólafssonar í Sam
skipum, en ótalmargt fleira þyrfti að tína
til svo úr yrði heilleg lýsing af löngum og
margbrotnum viðskiptaferli . Augljóslega
má þó sjá ákveðið mynstur í fléttum, sér í
lagi er tengjast leyndu eignarhaldi . Sagan
endurtekur sig í sífellu en samhengi í
sögunni er nauðsynlegt til að gefa fyllri
mynd af gríðarlega flóknum veruleika . Slíkt
samhengi skortir almennt tilfinnanlega í
þjóðmálaumræðu samtímans .
23 Sama heimild .
24 „Leynifélög Ólafs vistuð á Tortola“ . Viðskiptablað
Morgunblaðsins, 19 . febrúar 2009 .