Þjóðmál - 01.03.2012, Blaðsíða 51
50 Þjóðmál VOR 2012
og Vesturlanda um þessar mundir kalli á
friðarstefnu, á svipuðum forsendum og
hagsmunir Sovétríkjanna gerðu í raun
fyrir þremur áratugum . Friðsamleg utan
ríkisstefna kemur þó eðlilega ekki í veg
fyrir að Paul vilji öflugar landvarnir og
skilvirkt landamæraeftirlit . Stefna hans í
utanríkis og varnarmálum hefur gert hann
að langvinsælasta frambjóðandanum meðal
bandarískra hermanna; þeir skynja að nú
verandi stefna þjónar ekki bandarískum
hags munum og að róttækra breytinga sé
þörf .
Barátta Rons Paul gegn fyrirt ækja hyggju og herskárri utanríkis stefnu
tengist nánum böndum, enda lítur hann
svo á að óttablandin varnaðarorð í kveðju
ræðu forsetans Dwights D . Eisenhower árið
1961 hafi því miður ræst, það er að segja
að samkrull ráðamanna, stórfyrirtækja og
her gagnaiðnaðar (e . militaryindustrial
complex) hafi færst verulega í aukana og
stefni Banda ríkjunum í miklar ógöngur;
að ákvarðanir slíkrar vafasamrar valdaelítu
séu líklegar til að ganga gegn hagsmunum
banda rísku þjóðarinnar og hins vestræna
heims .
Í umræðum um hernaðarátök hefur
Ron Paul einnig gagnrýnt harðlega hina
formlegu málsmeðferð; hann vill að
þingið taki ákvörðun um stríðsrekstur
eins og kveðið er á um í stjórnarskránni,
en framselji ekki vald sitt til forsetans og
framkvæmdavaldsins eins og raunin hefur
verið um skeið . Vísun í stjórnarskrána og
krafa um að henni sé fylgt er leiðarstef
í málflutningi Pauls, ásamt skírskotun í
afstöðu stofnfeðra Bandaríkjanna . Af þess
um sökum hefur hann hlotið viður nefn
ið kempa stjórnarskrárinnar (e . Champ
ion of the Constitution) . Paul bendir á að
hugmyndir hans um frelsi einstaklinga og
friðsamleg samskipti þjóða séu einmitt þær
hugmyndir sem stofnfeðurnir töluðu fyrir
og sem stjórnarskráin byggist á . Eins og
íhaldsmanni sæmir setur hann hugmyndir
sínar í sögulegt samhengi og sýnir fram
á djúpar rætur þeirra í bandarískri
menningu .
En ekki þarf þó að leita aftur á 18 . og 19 .
öld til að finna hugmyndabræður og systur
kempu stjórnarskrárinnar . Hugmynda fræði
Rons Paul tilheyrir armi Repúblikana
flokksins, sem var áberandi fyrir seinni
heims styrjöldina, en var vikið til hliðar af
valdaöflum sem voru fyrirrennarar þeirra
sósíaldemókratísku stríðsæstu nýíhalds
manna sem nú ráða ríkjum í bland við
hálfheilaþvegið bókstafstrúarfólk . Armur
inn hefur verið nefndur Gamla hægrið
(e . Old Right) og stefna hans einkennd
ist af róttækri frjálshyggju og ein dreginni
friðarstefnu . Góður vinur Pauls, hag fræð
ingurinn Murray Rothbard heitinn, fór í
fylkingarbrjósti þeirra sem vildu endurvekja
Gamla hægrið undir lok síðustu aldar .
Í því augnamiði voru hugtökin „paleo
conservative“ og „paleolibertarian“ búin
til, en paleo er latneskt orð sem merkir
gamall . Mikið af afbragðsfólki tilheyrði
Gamla hægrinu, þar á meðal Robert Taft,
Rose Wilder Lane, H . L . Mencken, Albert
Jay Nock, William Faulkner, Isabel Paterson
og Frank Chodorov . Sumir vilja meina að
hvorki fyrr né síðar hafi risið upp jafnöflug
og andrík hægri „intelligensía“ og Gamla
hægrið í Bandaríkjunum, en því miður
höguðu örlögin því svo til að hún vék fyrir
lágkúrunni sem nú drottnar í bandarískri
stjórnmálaumræðu — hæstu hæðir urðu
að djúpum dal . Vin í eyðimörkinni er þó
Ludwig von Misesstofnunin, hugveita
sem Lew Rockwell stofnaði árið 1982,
en hún hefur verið gagnleg bækistöð fyrir
íhalds menn og frjálshyggjumenn af gamla
skólanum .
Rauður þráður í gegnum hugmynda