Þjóðmál - 01.03.2012, Qupperneq 52
Þjóðmál VOR 2012 51
fræði Gamla hægrisins og Ron Paulhreyf
ingarinnar er andstaða við miðstýringu . Sú
andstaða birtist í stuðningi við full veldi ríkja,
efasemdum um hvers kyns ríkja sambönd
og tortryggni gagnvart fríverslunar og
hernaðarbandalögum . Hinn annálaði öld
ung a deildarþingmaður repúblikana og
paleohægrimaður, Robert Taft, barðist
meira að segja gegn aðild Bandaríkjanna að
NATO . Ron Paul hefur ekki aðeins beitt sér
gegn NAFTA og WTO, heldur einnig gegn
flestum einstaka fríverslunarsamningum,
enda stuðla þeir yfirleitt ekki að frjálsum
viðskiptum heldur stýrðum við skiptum .
Andstaðan við miðstýringu endur speglast
einnig í stuðningi við meiri sjálfsákvörð
unar rétt smærri eininga: fylkja, héraða,
sýslna, sveitarfélaga og svo framvegis . Segja
má að lokatakmarkið sé auðvitað sem
mestu r sjálfsákvörðunarréttur hvers heimilis
og hvers einstaklings!
Boðskapur Rons Paul hefur ekki aðeins hrifið fjölmarga Bandaríkjamenn,
heldur nýtur hann hylli úti um allan heim .
Ísland er engin undantekning; aðdáendum
hins bandaríska öðlings, hugsjónamanns og
byltingarsinna hefur fjölgað jafnt og þétt
hér á landi . Nýverið var stofnaður sérstakur
frjálshyggjuhópur á vegum SUS, sem hefur
það að markmiði að boða þær róttæku
hugmyndir sem Paul stendur fyrir . Frjáls
hyggjuhópurinn er, eins og segir í stefnu
yfirlýsingu hans, „sveit róttækra kapítal ista
sem vill auka frelsi einstaklinga, minnka
miðstýringu, tryggja friðhelgi eignar
réttar, standa vörð um fullveldi Ís lands og
stuðla að friðsömum og víðsýnum alþjóða
samskiptum“ .
Orðin sem féllu á breska þinginu 20 . ágúst
1940, að „aldrei fyrr hafi jafnmargir staðið
í jafnmikilli þakkarskuld við jafn fáa“, eru,
auk afreka mannsins sem tjáði þau, áminn
ing um að fámennur hópur, eða hreinlega
ein manneskja, geti skipt sköpum fyrir rás
sögunnar — að afdrif þjóða, siðmenningar
eða jafnvel mannkynsins alls, geta ráðist
af sterkri persónu sem berst af alefli fyrir
hugsjónum sínum . En ef til vill er ekki nóg
að réttur maður sé á réttum stað, heldur
þurfi tíminn einnig að vera réttur . Haft er
eftir Victor Hugo að ekkert geti stöðvað
hugmynd þegar tími hennar er kominn .
Spurning er hvort að örlaganornirnar hafi
ekki einmitt spunnið vef sinn á þann hátt
að hugmyndir stjórnarskrárkempunnar séu
orðnar sérlega tímabærar, að fæðingarhríðir
byltingar séu hafnar . Ron Paul er á 77 .
aldursári og hann mun líklega ekki sjá
vonir sínar rætast . En hann hefur blásið
fjölda einstaklinga í brjóst sannfæringu
og eldmóði; þau fræ sem hann hefur sáð
í hjörtum þeirra munu vaxa og dafna .
Sonur Pauls, öldungadeildarþingmaðurinn
Rand Paul, mun taka við keflinu, ásamt
breska íhaldsmanninum Daniel Hannan
og öðrum efnilegum stjórnmálamönnum
sem hafa sannfærst um málstað Ron Paul
bylting ar innar . Þeir munu þjóta með keflið
til móts við nýja tíma — vinna stóra sigra,
um bylta stjórnarfari og stuðla að betra
samfélagi .