Þjóðmál - 01.03.2012, Blaðsíða 80
Þjóðmál VOR 2012 79
verslun in inn í landið . Árið 1914 má svo kalla
að síð ustu leifar útlendrar verslunaránauðar
hafi verið afmáðar með stofnun Eimskipafélags
Íslands .
En verslunarfrelsið var engan veginn tryggt
þótt verslunin væri komin á okkar eigin hendur .
Ekki leið á löngu uns einka sölu frumvörp tóku
að skjóta upp kollinum á Alþingi . Í heims
styrjöld inni fyrri, 1914–1918, var Lands
verslun sett á fót . Það kostaði harða baráttu að
fá hana aflagða og í kreppu eftir stríðsáranna
voru uppi há værar raddir um gjaldeyrishömlur,
innflutnings bönn og verndar tolla .
Það sýnir andann hversu skjótt við brugð
um við og tókum upp fordæmi ann arra þjóða
í kreppunni miklu, afnám um versl un ar frelsið
og hnepptum atvinnu vegina í fjötra en þegar
sömu þjóðir sneru unn vörp um baki við hafta
stefnunni og tóku aftur upp frjáls viðskipti
eftir heims styrjöld ina síðari, neyttum við allra
bragða til að hamla á móti og þverbrutum
alþjóðlegar sam þykktir til að halda í höftin .
Verslunarhöftin voru hér við lýði í þrjátíu ár samfleytt, 1931–1960, tíu til þrettán
árum lengur en í nágrannalöndum okkar . Á
fjórða áratugnum voru höftin afsprengi al þjóð
legrar haftastefnu, en beitt af mun meiri hörku
hér á landi en í öðrum lýðfrjálsum ríkj um . Á
styrjaldarárunum seinni voru höftin að vissu
leyti óhjákvæmileg og samt voru þau mun
víðtækari en nauðsyn krafði . Frá 1948 til upp
hafs viðreisnarstjórnarinnar (1959) voru höft in
hinsvegar einskonar sér íslenskt fyrir brigði en
þá bundust vestrænar þjóðir sam tökum um að
afnema hömlur í alþjóða við skiptum .
„Allar verslunarhömlur eru tæki sem þjóð
irnar hafa fundið upp til þess að gera sig og
aðra fátækari,“skrifaði John Maynard Keynes .
Og það segir sína sögu að haftapostular fyrri
ára skyldu aldrei beinlínis mæla með höftunum
nema sem óhjákvæmilegu neyðarúrræði . Raun
ar byrjuðu þeir jafnan haftarollur sínar á því
að vegsama verslunarfrelsið, en því miður, það
væri ekki um að tala; á þessum örðugu tímum
ættum við ekki annarra kosta völ en að taka
upp versl unar höft .
Við áttum þó völ á öðrum kosti . Það var að
skrá gengi krónunnar rétt .
Undirrót verslunarhaftanna var nefnilega
að gengi krónunnar var of hátt skráð .
Í upphafi kreppunnar 1930 varð mikið verðfall á útflutningsafurðum okkar sem kallaði
Svarthvítar kápumyndir harðspjalda (til vinstri)
og kiljuútgáfu (að ofan) bókarinnar Þjóð í hafti .