Þjóðmál - 01.06.2013, Page 4
Ritstjóraspjall
Sumar 2013
_____________
Feginsandvarp fór um allar Íslands-byggðir þegar ofríkisstjórn Jóhönnu
Sigurðardóttur og Steingríms J . Sigfús-
sonar var loks hrundið . Aldrei frá því að
Jónas frá Hriflu var upp á sitt versta hafa
aðrir eins ójafnaðarmenn haldið um valda-
tauma á Íslandi . Verst var þó að ráðherrar
þessarar ríkisstjórnar kunnu lítt eða ekkert
til verka, svo sem makalausar ógöngur
ríkisstjórnarinnar í nánast hverju málinu af
öðru voru til vitnis um .
Fólk tekur því nýrri ríkisstjórn Fram-
sóknarflokks og Sjálf stæðisflokks fagnandi
enda þótt það viti ekki almennilega við
hverju megi búast af því unga og reynslu-
litla fólki sem sest hefur í valdastóla . Allt er
betra en það sem fyrir var, hugsa væntanlega
flestir með sjálfum sér — og mun hin nýja
ríkisstjórn trúlega njóta þess langt fram
á kjörtímabilið að hafa tekið við af verst
þokkuðu ríkis stjórn í manna minnum .
Margt er merkilegt við úrslit síðustu al-
þingis kosn ing a . Aldrei hefur sitjandi ríkis-
stjórn beðið annað eins afhroð í kosning-
um . Nýju flokkarnir, sem þótt ust tala í
nafni þjóðarinnar, fengu háðulega út reið .
Enda lausu rausi svokallaðra „álitsgjafa“
um nauðsyn stjórnarskrárbreytinga vísuðu
kjós endur á haf út . Ennfremur kom í ljós
að linnulaus áróður Ríkisútvarpsins í þágu
ríkis stjórnarflokk anna allt kjörtíma bilið
hafði, þegar upp er staðið, lítil sem engin
áhrif .
Það kom líka á daginn í kosningunum að Sjálfstæðisflokkurinn á langt í land með
að endurheimta sitt fyrra traust . Nýjar skoð -
anakannanir sýna að ríkis stjórnarþátttaka
breytir engu þar um . Ef flokkur inn vill rífa
sig upp úr 25%-farinu verð ur hann að taka
hressilega til í eigin ranni .
Undan því verður ekki komist að gera
rækilega upp við „hrunið“ og spillinguna sem
því fylgdi . Þar á meðal er hið hrikalega REI-
mál, sem rakið hefur verið að nokkru í Þjóð
málum en frekari úttekt bíður næstu hefta .
Taka þarf allt flokksstarfið til gagngerrar
endurskoðunar . Klíkulýðræðið í flokknum
gerir það að verkum að prófkjör endurspegla
ekki vilja almennra kjósenda flokksins og
stendur þannig fjölbreytilegum og sterkum
fram boðslistum fyrir þrifum .
Þá þarf flokkurinn að efna til hrein-
skilnislegrar umræðu um það hvort eitthvað
í stefnu flokksins hafi gert það að verkum að
forystumenn hans brugðust í að drag anda
„hrunsins“ — og marka sér síðan skýra
fram tíðarsýn byggða á grunn hug mynd um
sígildrar íhaldsstefnu .
Að svo mæltu óska ég lesendum gleði-legs sumars .
Þjóðmál SUmAR 2012 3