Þjóðmál - 01.06.2013, Blaðsíða 9
8 Þjóðmál SUmAR 2013
Ragnar (70 ára) Sigmund Davíð (38 ára)
að Bessastöðum og fékk hjá honum skýrslu
um stjórnarmyndunarviðræðurnar sem þá
höfðu staðið í þrjár vikur, þar af tvær við
Bjarna Benediktsson, formann Sjálf stæðis -
flokksins . Hin nýja ríkisstjórn Fram sóknar-
flokks og Sjálfstæðisflokks var síðan skipuð
fimmtudaginn 23 . maí, fjórir ráðherrar frá
Framsóknarflokknum og fimm frá Sjálf -
stæðis flokknum . Kæmi ekki á óvart að
Ólafur Ragnar hefði lagt ráðherrum lífs-
reglurnar á ríkisráðsfundinum . Honum
hefur áreiðanlega liðið eins og prófessor með
nem endum, enginn ráðherranna hefur áður
setið í ríkisstjórn .
Ólafur Ragnar og Jóhanna Sigurðardóttir
skiptust á bréfum og hún hafði í hótunum
við hann af því að hann vildi ekki sætta
sig við siðareglur hennar . Þá taldi Ólafur
Ragnar nær að forseti og forsætisráðherra
hittust og ræddu saman í stað bréfaskipta .
Allt bendir til að samband Ólafs Ragnars og
Sigmundar Davíðs verði í þeim anda sem
Bessastaðabóndinn kýs .
III .
Frá fyrsta degi eftir kosningar var ekki annað í kortunum en að Sjálf stæðis-
flokk ur og Framsóknarflokkur mynduðu
ríkis stjórn . Formenn flokkanna hefðu átt að
tilkynna forseta Íslands áform sín um stjórn-
ar samstarf strax mánudaginn 29 . apríl . Þeir
gerðu það ekki . Í stað þess skapaðist svigrúm
fyrir Ólaf Ragnar til að láta ljós sitt skína
í þriggja vikna samtalslotu í umboði hans .
Fyrstu vikuna notaði Sigmundur Davíð til að
ræða við formenn allra flokka og gaf til kynna
að hann leitaði að þeim sem best mátaði inn
í loforðaramma framsóknarmanna . Síðari
tvær vikurnar ræddu Sigmundur Davíð og
Bjarni Benediktsson saman .
Flokksformennirnir völdu þann kost
að ræða einkum saman utan Reykjavíkur
í sumarhúsum . Dró það athygli að þeirri
staðreynd að um tveggja manna samtal
væri að ræða . Má segja aðferðina í samræmi
við það sem tíðkast hefur í stjórnar mynd-
un arviðræðum í rúma tvo áratugi, það er
frá því að Davíð Oddsson og Jón Baldvin
Hannibalsson mynduðu fyrsta ráðuneyti
Davíðs sem settist að völdum 30 . apríl
1991 . Var sú ríkisstjórn gjarnan kennd við
Viðey því að þar ráku þeir Davíð og Jón
smiðshöggið á stjórnarmyndunina .
Fyrir því mátti færa rök að Davíð Oddsson
kysi að tengja myndun fyrstu ríkisstjórnar
sinnar Viðey . Eitt af góðum verkum hans
sem borgarstjóri var einmitt að vinna að
endurreisn í Viðey og gera húsakost þannig
úr garði að ekki væri lengur landi og þjóð
til skammar .
Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur
J . Sigfússon kynntu sáttmála ríkisstjórnar
sinnar 10 . maí 2009 á blaðamannafundi í
Norræna húsinu . Þau völdu húsið í Vatns-
mýrinni til að árétta höfuðmarkmið sitt að
feta í fótspor norrænna velferðarstjórna .
Líklegt er að engin þeirra stjórna sem kenna
sig við velferð á Norðurlöndum vilji láta
skipa sér í fylkingu með ríkisstjórninni sem
íslenskir kjósendur höfnuðu á eftir minni-
legan hátt 27 . apríl 2013 .
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og
Bjarni Benediktsson rituðu miðvikudaginn
22 . maí undir stjórnarsáttmála í húsnæði
gamla Héraðsskólans á Laugarvatni . Í máli
Sigmundar Davíðs kom fram að ríkis-
stjórnin mundi starfa í anda ungmenna-
félagshreyfingarinnar með ræktun lýðs og
lands að leiðarljósi .
Héraðsskólahúsið á Laugarvatni er frá
árinu 1928 og teiknaði Guðjón Samúelsson
það með burstabæinn sem fyrirmynd, var
húsið friðað árið 2003 . Vandinn er hins
vegar sá að húsið nýtist ekki sem skyldi og
í febrúar 2013 óskuðu ríkiskaup fyrir hönd
mennta- og menningarmálaráðuneytisins