Þjóðmál - 01.06.2013, Blaðsíða 58
Þjóðmál SUmAR 2013 57
Opinber heimsókn
SE gerði húsrannsókn hjá Kreditkorti hf . (Eurocard-Europay-MasterCard) í júní
2006 . Þeir höfðu verið fyrr um daginn hjá
Greiðslumiðlun hf . — Visa Íslandi . Kollega
mínum, Halldóri Guðbjarnasyni, var mjög
brugðið . Honum fannst eins og einhver
ókunnugur hefði skriðið upp í rúmið til sín,
sagði hann í sjónvarpsviðtali um kvöldið .
Starfsmenn stofnunarinnar litu inn hjá mér
í lok sama vinnudags . Ég bauð þau velkomin
og leið vel í ljósi vitneskju minnar um sam-
keppnismál fjármálageirans . Þau voru lúin
eftir langan dag hjá Visa . Afrit fengu þau
af tölvugögnum mínum og höfðu með
sér nokkur skjöl af mínu borði, en annað
var það ekki . Ég hafði alltaf mjög gott
persónulegt samband við starfsmenn SE, og
var það til þess fallið að efla skilning á báða
bóga . Frá þessum tíma í júní 2006 og fram í
janúar 2008, þegar niðurstöður voru birtar,
hafði stofnunin aldrei samband við mig . Ég
undraðist það og á miðju ári 2007 hafði ég
frumkvæði og bað Pál Gunnar um að fá að
koma og gefa stofnuninni skýrslu . Ég vildi
vísa á mikilvæg gögn meðal þeirra rafrænu
skjala sem hún haldlagði ári fyrr . Umbeðinn
fundur fékkst ekki, svo undarlega sem það
kann að hljóma . „Vertu feginn,“ sagði lög-
maður félagsins við mig, „þetta þýðir að þú
ert ekki aðili að málinu og ert þar með laus
við það .“ Annað kom þó á daginn .
Viðbrögð forstjóra SE við beiðni minni
eru sérkennileg í ljósi þess að í samkeppnis-
lög um er að finna ákvæði sem hvetja stjórn-
end ur til samstarfs um að upplýsa mál . Þá
hvílir ótvíræð rannsóknarskylda á stjórn-
völd um skv . stjórnsýslulögum . Í september
2007 varð mér ljóst að stjórn Kreditkorts
hf . stóð í viðræðum við SE á þeim grunni
að hún ætlaði að játa samkeppnisbrot á
hendur félaginu . SE hafði samið við hinn
seka, stjórnina, sem fallist hafði á að játa
brot, um að ég fengi ekki að koma mínum
ábendingum að . Var ég þó augljóslega sá
sem best þekkti til mála . Þetta er auðvitað í
aðra röndina skondin vitleysa, að stjórnvald
semji við hinn seka um að takmarka
rannsókn máls, en sýnir vel á hvaða plani
lögfræðin innan SE er . Þessi framganga
stjórnar félagsins gerði mér ókleift að
vinna fyrir hana . Vel undirbúinn lét ég af
störfum snemma í október 2007 í ágætu
samkomulagi við stjórnina hvað starfslokin
og raunar allt annað en samkeppnismálið
varðaði . Árin mín hjá Kreditkorti voru
hamingjutími í lífi mínu og hugsa ég alltaf
og eingöngu með þakklæti og ánægju til
samstarfs við stjórn og starfsfólk félagsins .
Í þessari grein ætla ég að segja frá minni
hlið á „Stóra kortasamráðsmálinu“ til þess að
öðrum séu ljós vinnubrögð SE . Ráðgjafar á
sviði almannatengsla mundu vafalaust ráða
mér frá að hrófla við þessu máli . Moldrykið,
sem upp var þyrlað, er nú sest . Sjálfsagt
verður því þyrlað upp á ný . Ég met þetta
hins vegar öðruvísi . Margir kjósa að „setja
Í þessari grein segi ég frá minni hlið á „Stóra kortasamráðs-
mál inu“ til þess að öðrum séu ljós
vinnubrögð Samkeppniseftirlitsins .
Ráðgjafar á sviði almannatengsla
mundu vafalaust ráða mér frá að
hrófla við þessu máli . Moldrykið,
sem upp var þyrlað, er nú sest .
Sjálfsagt verður því þyrlað upp
á ný . Ég met þetta hins vegar
öðruvísi . Margir kjósa að „setja
kíkinn fyrir blinda augað“, ég er
ekki þeirra á meðal, hef ekki þetta
blinda auga . . .