Þjóðmál - 01.06.2013, Blaðsíða 59

Þjóðmál - 01.06.2013, Blaðsíða 59
58 Þjóðmál SUmAR 2013 kíkinn fyrir blinda augað“, ég er ekki þeirra á meðal, hef ekki þetta blinda auga . Ég er hættur störfum í fjármálakerfinu og hef ekki neina aðra hagsmuni af þögninni en þá að forðast umræðu . Hana óttast ég ekki, hún er bara góð, SE þarfnast hennar mjög . Forstjóri eins stærsta fyrirtækis landsins hringdi til mín þegar einn stormurinn geisaði og sagði: „Þú átt vini úti um allt í viðskiptalífinu, en það þorir enginn að hjálpa þér, af ótta við að það hefni sín .“ Óttinn segir sína sögu, stjórnvaldið er viðsjárvert . Sátt í janúar 2008 SE og Kreditkort hf ., sem þá hafði verið skipt „lóðrétt“ í tvö félög, Kredit kort hf . (hið nýja) og Borgun hf ., tilkynntu 10 . jan úar 2008 að gerð hefði verið sátt í máli er varð aði brot á samkeppnislögum á tímabilinu 1995– 2006 . Í fréttatilkynningu Borgunar sagði: „þau brot sem Samkeppniseftirlitið vísar til áttu sér öll stað áður en eigendabreytingar áttu sér stað [haustið 2007, innskot RÖ] . Núverandi meirihlutaeigendur fyrirtækis ins hafa haft frumkvæði að því að stokka upp eignarhald fyrirtækisins, til þess að tryggja góða stjórnar- og viðskiptahætti . Sam- kvæmt ákvörðun Samkeppnisstofnunar felst Borgun hf . á að greiða sáttagreiðslu að upphæð 185 milljóna króna . Eins og fram kemur í ákvörðuninni hefur Borg un hf . gengist við þeim brotum sem þar eru tiltekin“ . — Eftirmaður minn, forstjóri Borgunar hf ., sagði af þessu tilefni: „Eignar- hald Borgunar var endurskipulagt að frum- kvæði núverandi eigenda og úrbótatillög- um Samkeppnisstofnunar hefur þegar verið hrint í framkvæmd . Það er mikilvægt að undirstrika að það samstarf keppinauta sem um var að ræða sneri að miklu leyti að samráði um tæknilegar lausnir fyrir- tækjanna . Eins og lesa má úr ákvörðun Sam keppniseftirlitsins hefur ekki verið hægt að sýna fram á verulegan fjárhagslega ábata af sam starfinu, annan en þann sem snýr að tækni legum úrlausnarefnum .“ Samkvæmt þessu er ljóst að stjórnvaldið staðnæmdist við eignarhald félagsins og gerði kröfur um breytingar á því . Eignarhald félaga er ekki á valdi félaganna sjálfra, hvorki stjórna né framkvæmdastjóra . Það eru eigendurnir sem því ráða . Samt var gert samkomulag um að játa „samráð“ á hendur félögunum, brot sem liggur hjá félaginu sjálfu . Lesandinn athugi að sakarefni sem stjórn Visa Íslands játaði voru fleiri og önnur en þau sem stjórn Kreditkorts féllst á að játa . Takmarka ég umfjöllunina við þau síðarnefndu . Hvert er hið saknæma brot? Þegar stjórnvald rannsakar meint lög-brot hefur það ekki sjálfdæmi um skil- greiningu brotsins . Því ber að rannsaka Þ egar stjórnvald rannsakar meint lögbrot hefur það ekki sjálfdæmi um skilgreiningu brotsins . Því ber að rannsaka mál til hlítar og upplýsa það . Gögn „stóra kortasamráðsmálsins“ bera með sér að vera sérvalin úr miklu magni haldlagðra gagna, með hliðsjón af þeirri niðurstöðu sem samkomulag varð um . Fjöldi annarra gagna, mikilvæg skjöl þeirra á meðal, var sniðgenginn og haldið leyndum . Kjarni þess máls, sem að Kreditkorti snýr, er sá að málið var aldrei rannsakað til fullnustu og upplýst . . .
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.