Þjóðmál - 01.06.2013, Blaðsíða 74
Þjóðmál SUmAR 2013 73
Stefán Gunnar Sveinsson: Búsáhaldabylting —
sjálfsprottin eða skipulögð? Almenna bókafélagið,
Reykjavík 2013, 239 bls .
Eftir Jón Magnússon
Höfundur þessarar bókar velur þann kost að rekja atburði í tímaröð
eins og Guðni Th . Jóhannesson gerði í
bók sinni Hrunið sem kom út árið 2009 .
Þessi framsetning þýðir að
frásögn af at burðum verð ur
aðalatriðið . Þetta er vel gert
hjá höfundi og lesandinn
gerir sér góða grein fyrir
at burða rásinni og hvað oft
mun aði litlu að illa færi .
Bók in er vel og lipurlega
skrif uð og þar koma fram
upp lýsingar sem eru mikil-
væg ar og varpa skýru ljósi
á það sem gerðist þessa
örlaga ríku mánuði í lok árs
2008 og í janúar 2009 .
Tæp 5 ár eru liðin frá at-
burðunum sem lýst er í
bók inni . Á þeim tíma hefur
gefist ráðrúm til að kanna hverjir það voru
sem beittu sér hvað harðast í átökum við
lögreglu þegar atlaga var gerð að Alþingi,
ríkisstjórn og ákveðnum hlutum íslenska
stjórnkerfisins . Helsti galli bókarinnar er sá
að takmarkað er rýnt í það hverjir stóðu að
atganginum á gamlársdag þegar útsending
Stöðvar 2 á svonefndri Kryddsíld var rofin
auk annars og síðan hvað varð til þess að
hörkul egar árásir voru gerðar á Alþingi og
lögreglu þjóna sem voru við skyldustörf 20 .
og 21 . janúar 2009 .
Höfundur bók arinnar spyr hvort bús -
áhalda bylt ingin hafi verið skipu lögð eða
sjálfsprottin og hann svarar því þannig að
það sé bæði og . Hann bendir á að áhrifa-
mikil öfl hafi séð sér hag í mótmælunum
og ýtt undir þau með öllum
tiltækum ráð um . Höf undur
gerir hins vegar tak markaða
grein fyrir því í bók inni
hvaða öfl það séu ef undan er
skilin um fjöllun um að komu
nokkurra for ustu manna
Vinstri grænna og skrif stofu
flokks ins í ná grenni Alþing-
is, auk að komu ákveð ins
hóps stjórn leysingja . Þessi
hóp ur stjórn leys ingja, sem
höf und ur vís ar til, var raun-
ar stuðn ings fólk Vinstri
grænna þegar harð asta at lag-
an var gerð að réttarrík inu
síðari hluta jan úar 2009 .
Höfundur getur réttilega um að „bús-
áhalda byltingin“ hafi einnig verið sjálf-
sprottin . Hann bendir á þá miklu reiði sem
braust út við bankahrunið og segir m .a .:
„Reiðin verður skiljanlegri þegar hafðar
eru í huga ýmsar sjálfsblekkingar sem við-
geng ist höfðu á árunum fyrir hrun, þegar
Bókadómar
_____________
„Bylting“ sem reyndist þjóðinni dýr