Þjóðmál - 01.06.2013, Page 47

Þjóðmál - 01.06.2013, Page 47
46 Þjóðmál SUmAR 2013 Ragnhildur Kolka Eftir vetur kemur vor Sólin baðaði landið geislum sínum dag-inn sem stjórnarsáttmálinn var undir- ritaður . Kannski tilviljun, en það var ekki bara bjart yfir landinu þennan dag, það ríkti birta og bjartsýni um allt þjóðfélag- ið . Fjögurra ára þrautagöngu þjóðar undir hragl anda ríkisstjórnar sem fyrir löngu hafði misst lífsviljann var lokið . Ríkis- stjórn ar sem hékk á horriminni á viljan um til valds, yfirgefin af stuðningsmönnum og því ófær um að gagnast neinum . Hvernig átti annað að vera? Þeim sem lögðu atkvæði sín til stuðn ings „velferðarstjórn með skjaldborg um heimilin“ fyrir fjórum árum varð ekki um sel þegar þeir sáu ósköpin sem upp úr kjörkössunum komu . Þeir sem af trúgirni töldu sig tryggja fullveldi Íslands með því að greiða Vinstri-grænum atkvæði sitt hörfuðu fyrstir . Sárir og blóðugir . Þeir sem fundu bragð á tungu af ódýrum kjúklingabringum og kusu Sam fylking una fluttu sig að endingu yfir til erfðaaðals- ins og bíða nú síns tíma . Áttu þeir von á stöðugum stríðsrekstri langleiðina út kjör tímabilið? Áttu þeir von á ástandi sem að stærstum hluta var keyrt áfram og kynt undir af ríkisstjórn sem í krafti 51,5% meirihluta taldi sig hafa umboð til að umbylta samfélagsskipaninni? Varla . Áttu þeir ekki að geta sagt sér að þegar stjórnarbyltingu er beitt til að fleyta nýju fólki í valdastólana er uppskeran ófriður? Ofbeldi getur af sér ofbeldi og allar götur síðan vorið 2009 hefur ófriðarstjórnin alið á sundr ung til að viðhalda hefndarþorsta hörðustu fylgismanna sinna . Lagt var til atlögu við stjórnendur Seðlabanka Íslands af logandi heift . Gilti einu þótt reiðin beindist aðeins að einum, skaðinn var allra eða eins og stríðsherrar orða það gjarnan: „Þeir lentu í skotlínunni .“ Í kjölfarið fylgdi árásin á stjórnarskrána, árásin á fullveldið og fyrrverandi forsætisráðherra, árás á sjávarútveg og landsbyggðina og þegar ríkisstjórnin varð uppiskroppa með átakamálefni var spjótunum beint að eigin liðsmönnum . Hver af öðrum féllu þeir í valinn og stríðið hélt áfram . Orr ustan um Icesave, sem ríkisstjórnin tapaði í tveimur lotum var reyndar banabiti hennar þótt mörgum hafi ekki orðið það ljóst fyrr en niðurstaða EFTA-dóm stólsins lá fyrir . Sú niðurstaða gerði útaf við drauminn um að festa Ísland í slím ug um vef Evrópu- sam bandsins . Úrslit kosn inganna 27 . apríl bundu svo endi á stríðs reksturinn . Höfnun kjósenda var alger . Stjórnar flokk arnir voru sprengdir í tætlur og brotunum sópað á

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.