Þjóðmál - 01.06.2013, Page 63

Þjóðmál - 01.06.2013, Page 63
62 Þjóðmál SUmAR 2013 SPRON, þarna var um að ræða samráð um þróun vöru og hið markaðsráðandi Visa Ísland samræmdi viðbrögð allra keppinauta SPRON . Ég aflaði mér lögfræðiálits (sjá rammagrein 1) . Það er skrifað níu árum áður en málinu var lokið með sátt og koma þar fram ábendingar um einmitt þau atriði sem SE staðnæmdist síðar við, eignaraðild og stjórnarsetu . Bæði hluthafasamkomulagið og lögfræðiálitið voru meðal haldlagðra gagna SE og ætlaði ég að vísa á þessi skjöl . Sjá má af efni skjalsins að SE hafði ríkar ástæður til að neita að afhenda mér það, í von um að það yrði ekki opinbert . Ég lagði lögfræðiálitið fyrir stjórn og óskaði eftir heimild til að kæra Visa Ísland . Sú heimild fékkst ekki og eru minnisstæð þau ummæli eins stjórnarmanna að ekki kæmi til greina að „kæra félaga okkar í stjórn Visa“ . Þá sendi ég sparisjóðsstjóra SPRON skjalið með ábendingu um að tilefni væri til að SPRON kærði Visa . Ekki var kært og ábendingu minni ekki svarað . Óhjá kvæmilegt er að draga ályktanir af þessum viðbrögðum stjórnar Kreditkorts og spari sjóðsstjóra SPRON, í ljósi um mæla lögmannanna um túlkun slíks aðgerða- leysis . Eignaraðild breytt Stjórn Visa Íslands dó ekki ráðalaus . Eig endur Visa gerðu líka með sér hlut- hafasamkomulag 1999 og breyttu eignar- haldi sín megin . Þeir gerðu það nánast að spegilmynd eignarhaldsins að Kreditkorti . Landsbankinn var áfram stærstur í Visa, fór nú með 37%, en aðrir áttu hluti nokkurn veg inn í samræmi við markaðshlutdeild sína . Íslandsbanki átti 35% í Kreditkorti, aðrir skiptu afgangnum með sér eftir mark- aðs hlut deild . Við þetta er tvennt að athuga: Annars vegar að markaðsráðandi félag má Hr . Ragnar Önundarson, framkvæmdastjóri, EUROPAY Ísland . 23 . 04 . 99 Minnisblað: Viðbrögð Europay Íslands við meintum samkeppnislagabrotum Visa Eins og stjórnendum Europay er að sjálf- sögðu kunnugt, þá hefur Samkeppnis- stofnun nú til skoðunar samkeppnisleg áhrif þess að einu kreditkortafyrirtækin hér á landi eru í eigu sömu aðila, án þess þó að mynda fyrirtækjasamsteypu . Einnig mun Samkeppnisstofnun vera að að athuga samkeppni milli bankastofnana að öðru leyti . Líklegt er að Samkeppnisstofnun reyni að gera sér grein fyrir hvers eðlis kredit- kortamarkaðurinn er, þ .e . hvort um sé að ræða markað, fákeppnismarkað, þar sem raunveruleg samkeppni á sér stað eða hvort fyrirtækin tvö fari með sameiginleg yfiráð (joint dominance) í þeim skilningi að sú samkeppni og það aðhald sem þó er á fákeppnismörkuðum sé ekki til staðar . Til þess að tvö fyrirtæki geti talist fara með sameiginleg yfirráð þurfa þau að hafa einhverja samtengingu (link) . Þessu skilyrði er að sjálfsögðu fullnægt hvað kreditkortafyrirtækin varðar, þar sem þau eru í eigu sömu aðila . Niðurstaðan hefur áhrif á til hvaða ráðstafana samkeppnisráð getur gripið . Ef niðurstaðan er sú að um fákeppnismarkað er að ræða þar sem samkeppni virkar ekki væru róttækustu Rammagrein 1

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.