Þjóðmál - 01.06.2013, Side 70

Þjóðmál - 01.06.2013, Side 70
 Þjóðmál SUmAR 2013 69 fyrrverandi hlýtur að hafa komið upp í huga hans þegar honum varð ljóst að bankastjórinn sem fór með hin sameiginlegu markaðsyfirráð bankanna á greiðslukortamarkaði var enginn annar en ráðuneytisstjórinn fyrrverandi . Allir forstöðumenn ríkisstofnana hljóta að vera meðvitaðir um vanhæfisástæður skv . stjórnsýslulögum . • Ég tel ótvírætt að forstjóra Sam keppnis­ eftirlitsins hafi borið að víkja sæti í „korta- samráðs-málinu“ . Óska ég hér með eftir svari stjórnar stofnunarinnar við því hvort for stjóranum hafi ekki borið slík skylda? • Þátttaka stjórnvalds veldur því að ein­ stakl ingur með öndverð sjónarmið stendur sjálfkrafa höllum fæti í opinberri umræðu hvað trúverðugleika snertir . Því er óskað svars við því hvort forstjórinn hafi brotið af sér í starfi með því að taka þátt í fjölmiðla- umræðu þar sem spjótum var beint að einstaklingi sem var starfsmaður fyrirtækis sem átti aðild að máli sem lokið hafði með sátt? • Ennfremur er spurt hvort Sam keppnis­ eftirlitið telji forstjórann og/eða stofnunina bera skaðabótaábyrgð vegna þátttöku for- stjór ans í umræðu um málið og ein stakl ing- inn? 3 . Snemma í júlí 2007 varð ég þess áskynja að unnið var að sátt í títtnefndu máli án þess að ég hefði fengið að láta mín sjónarmið í ljós . Ég óskaði því skriflega eftir fundi með tölvupósti til forstjórans og ítrekaði þá ósk fáum dögum síðar . Aldrei bárust svör . Lögmaður minn sagði mér að það hlyti að byggjast á að ég væri ekki talinn málsaðili og gæti þar með andað léttar . Forstöðumaður Samkeppnissviðs stofnunarinnar staðfesti síðar við mig (í september 2009) að sú hefði verið ástæðan . Samt sem áður tel ég óréttlætanlegt, m .a . í ljósi framgöngu forstjórans, að stofnunin skyldi ekki vilja ræða við forstjóra félags með málsaðild, í ljósi þeirrar leiðbeiningar- og rannsóknarskyldu sem hvílir á henni skv . stjórnsýslulögum . Þá leikur vafi á að meðalhófsreglan hafi verið virt í ljósi þess að sú leið sem stofnunin valdi var skv . framansögðu íþyngjandi fyrir mig . Augljóst er að ég hefði getað skýrt frá sameiginlegum yfirráðum bankanna á greiðslu kortamarkaði og vísað á haldlögð gögn því til staðfestu . Í ljósi áðurnefndra tengsla forstjóra stofnunarinnar og banka- stjórans fyrrverandi álít ég að tilgangurinn með útilokun forstjóra Kreditkorts hf . hafi verið að halda málinu í þeim sáttafarvegi sem það var komið í . Vitnisburður minn hefði augljóslega getað beint málinu í annan farveg sem ekki samræmdist fyrirætlan forstjórans . Forstjórinn hefur látið svo um mælt að stjórn félagsins hafi ráðið því hverjir hafi komið fram fyrir þess hönd . Ég álít ótækt að rannsóknaraðili leyfi málsaðila slíka takmörkun rannsóknar . • Ég tel óvírætt að Samkeppniseftirlitinu hafi borið, í ljósi leiðbeiningar- og rann- sóknarskyldu sinnar, að veita mér umbeðna áheyrn og spyr ég stjórn stofnunarinnar því hvort hún telji ekki að svo hafi verið? 4 . Óska ég eftir skriflegum svörum stjórnar stofnunarinnar . Að síðustu óska ég eftir að fá afhent afrit af gögnum málsins og þá sérstaklega haldlögðum tölvugögnum á starfsstöð minni . Vísa ég til 15 . gr . stjórnsýslulaga og 3 . gr . upplýsingalaga í þeim efnum og minni á að stofnunin hefur þegar afhent öðrum sum gögn málsins . Virðingarfyllst, Ragnar Önundarson Rammagrein 2

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.