Þjóðmál - 01.06.2013, Síða 76
Þjóðmál SUmAR 2013 75
og höfundur kallar það, nýttu sér það ástand
sem varð til við bankahrunið, svo sem ótta,
vonleysi og vantraust á stjórnmálamenn,
til að grafa undan ríkisstjórninni og
stjórnkerfinu .
Höfundur rekur það vel í bókinni hvernig
ákveðnir aðilar, sem þóttu bærari til þess en
aðrir að vera byltingarforingjar, vildu eigna
sér þá reiði sem var til staðar með þjóðinni .
Bent er á úttekt á því hvað margir höfðu
samúð með mótmælaaðgerðum þó að fáir
hefði áhuga á ofbeldi gegn lög reglu eða
stjórnmálamönnum .
Andúðin á stjórnmálamönnum var slík
að litlu skipti hvort þingmenn voru í stjórn
eða stjórnar andstöðu . Allir gátu átt von á
því að einhver veittist að þeim með því að
taka í yfirhöfn eða setja fram hótanir, iðu-
lega með steyttum hnefa .
En þrátt fyrir að hnípin þjóð væri í vanda
þá náði búsáhaldabyltingin ekki þeim
árangri að hrekja ríkisstjórnina frá völdum
eða þá embættismenn sem helst urðu fyrir
barðinu á svigurmælum Samfylkingarfólks
og Vinstri grænna .
Það voru önnur öfl áhrifameiri og öflugri
sem stóðu fyrir því að ólætin mögnuðust
og voru tilbúin til að taka við þegar því
takmarki væri náð að ríkisstjórnin hefði
verið hrakin frá völdum . Í bókinni segir
höfundur lauslega frá samdrætti Össurar
Skarp héðinssonar og þeirra þáverandi fóst-
bræðra Steingríms J . Sigfússonar og Ög-
mundar Jónassonar . Hins vegar er ekki vikið
að því nema lauslega hvaða breyting varð
á mótmælunum eftir að þessi samdráttur
þeirra félaga hafði náð nokkrum þroska .
Harði kjarninn og fjölmiðlar
Harður kjarni 20–30 manna var á bak við
það að halda uppi mótmælum fyrir utan
ákveðnar stofnanir og fyrirtæki . Þessi hópur
var í góðu sambandi við helstu fjölmiðla .
Fjölmiðlar fluttu reglulegar fréttir af því
hvar þessi hópur væri að mótmæla eða
mundi mótmæla . Þessi umfjöllun fjölmiðla
gaf þá mynd að alda mótmæla væri í gangi
þó að það væri að jafnaði sama fólkið sem
stóð á bak við öll mótmælin .
Umfjöllun um þennan hóp vantar hins
vegar í bókina þó að nokkur grein sé gerð
fyrir því hlutverki sem fjölmiðlar gegndu við
að auglýsa mótmæli og nánast hvetja fólk til
þátttöku . Hlutur RÚV er kafli út af fyrir
sig sem æskilegt hefði verið að gerð væru
fyllri skil í bókinni . RÚV auglýsti mótmæli
og hvatti jafnvel til þátttöku eins og kemur
fram í bókinni en auk þess flutti RÚV
ítarlegar fréttir af útifundum og ummælum
einstakra ræðumanna, en tók þingmenn úr
sambandi og talaði ekki við aðra en sér valda
áróðursmenn búsáhaldabyltingar inn ar .
Lögreglan og aðgerðir hennar
Í bókinni fjallar höfundur skilmerkilega
um það hvernig sótt var að lög regl unni
og í hvaða hættu einstakir lögreglu menn
voru við að rækja skyldustörf sín . Vikið er
Hlutur RÚV er kafli út af fyrir sig sem æskilegt hefði verið
að gerð væru fyllri skil í bókinni .
RÚV auglýsti mótmæli og
hvatti jafnvel til þátttöku eins
og kemur fram í bókinni en auk
þess flutti RÚV ítarlegar fréttir af
útifundum og ummælum einstakra
ræðumanna, en tók þingmenn
úr sambandi og talaði ekki við
aðra en sér valda áróðursmenn
búsáhaldabyltingar inn ar .