Þjóðmál - 01.12.2013, Page 15

Þjóðmál - 01.12.2013, Page 15
14 Þjóðmál VETUR 2013 málari dró upp árið 1860, en ljósmyndin er varðveitt í Ljósmyndasafni Íslands .* Mynd sína gerði Sigurður málari eftir blý- antsteikningu, vangamynd, sem Helgi Sig - urðs s on dró upp af Jónasi þar sem hann lá á líkbörum á Friðriksspítala í Kaup manna höfn 27 . maí 1845, myndinni af líki Jónasar . Frá blýantsteikningu Helga Sigurðssonar til steinprentsins framan við ljóðmælin 1883 er löng leið, milliliðir tveir eins og fram hefur komið: teikning Sigurðar málara og ljósmynd af þeirri teikningu sem ritnefndin 1883 hafði undir höndum . Þess er því naumast að vænta að myndin, sem við höfum oftast fyrir augunum, sé lík Jónasi Hallgrímsyni eins og hann var í lifanda lífi, enda segir sagan, að frændur * Ljósmyndin er merkt Mms 978 . 3 . Teikning Sigurðar málara frá 1860 . Undir mynd- inni stendur í sveig: Sigurðr Guðm. eptir frum m. Helga Sigurðssonar og lysíng 1860. 4 . Blýantsteikning Helga Sigurðssonar frá 27 . maí 1845 . Myndin af líki Jónasar. LÍ 151 . hans í Eyjafirði hafi talið steinprentið framan við ljóðmælin 1883 lítið minna á hann og „verið á móti myndinni“ .** ** Heimildarmaður minn er Kristín Gunnars- dóttir frá Helgastöðum í Eyjafirði [f . 1924] . Hefur hún eftir ömmu sinni, Rannveigu Jónsdóttur [f . 1860], að faðir hennar, Jón Pálsson [1821–1905], bóndi á Helgustöðum í Eyjafirði, hefði talið steinprentið framan við Ljóðmæli og önnur rit eptir Jónas Hallgrímsson (1883) minna lítið á Jónas Hallgrímsson og „hafi hann verið á móti myndinni“ . Þeir Jón Pálsson og Jónas Hallgrímsson voru þremenningar, afar þeirra, Davíð Tómasson á Arnarstöðum [1747–1799] og Jónas Tómasson í Hvassafelli [1748–1808] voru bræður . Páll Melsteð segir hins vegar í endurminningum sínum: „Mynd Jónasar Hallgrímssonar, tekna af honum dauðum af séra Helga Sigurðssyni, tek eg líka framyfir þessa mynd af Steingrími biskupi“, en umrædda biskupsmynd segir Páll að vísu hafa verið mesta ótæti að allra dómi er sáu hana . Endurminningar Páls Melsteð . Kaupmannahöfn 1912, 42 .

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.