Þjóðmál - 01.12.2013, Blaðsíða 20
Þjóðmál VETUR 2013 19
Í Dægradvöl segir Benedikt Gröndal Svein -
bjarnarson frá því að Helgi Sigurðsson „lagði
sig eftir málaralist, en hann var orð inn of
gamall og stirður, svo allt sem hann mál aði
varð þar eftir stirt og ljótt, eins og sjá má af
myndinni af Hannesi biskupi Finns syni“ .*
Og Benedikt Gröndal heldur áfram:
Seinna tók Helgi fyrir að „daguerrotypera“
(fotografía var þá ekki til komin) og gerði
það illa; þá hafði hann aðsetur í garði
[þ .e . húsi] nokkrum í Stóru kóngsins
götu; þangað fóru einhverju sinni nokkrir
Íslendingar í hóp og létu hann mynda
sig, þar á meðal var Konráð; hann lagði
eplaskurn yfir annað augað á sér, en Helgi
sá það ekki og skildi ekkert í, hvernig
myndin hefði orðið svo út lítandi .**
Ummæli þessi bera ekki síður Benedikt
Gröndal vitni en Helga Sigurðssyni en
Grönd al gat verið bæði illskeyttur og ósann-
gjarn í dómum um menn og málefni .
Í uppskrift á dánarbúi Helga Sigurðsson ar
frá árinu 1888 er getið um fótógráfíumask ínu
með tilheyrandi sem metið er á 10 krónur,
jafnmikið og fjögurra manna far með búnaði,
að því er Inga Lára Baldvinsdóttir segir í grein
í Árbók Hins íslenska forn leifafélags 1982 .***
Helgi Sigurðsson hefur því ekki aðeins lært að
daguerrotypera meðan hann var í Höfn heldur
hefur hann einnig tileinkað sér ljósmyndun
og vænt an lega keypt fótógráfíumaskínu frá
Kaup mannahöfn þegar hann hafði efni á,
enda stundaði hann ljósmyndun síðari ár
ævi sinnar og eru varðveittar eftir hann ljós-
* Bent skal á að Helgi Sigurðsson er innan
við þrítugt, þegar hann hefur nám í myndlist við
listaháskólann í Kaupmannahöfn, en er að vísu
ellefu árum eldri en Benedikt Gröndal — og það
gerir gæfumuninn .
** Dægradvöl 1965, 146–147 .
*** Inga Lára Baldvinsdóttir: „Dagerrotýpur á Íslandi
og fyrstu ljósmyndirnar .“ Árbók Hins íslenska
fornleifafélags 1982, 146 .
myndir . Hugsanlegt er einnig að með fótó
gráfíu maskínu með tilheyrandi úr dánar búi
hans hafi leynst fleiri tæki og tól – jafnvel
camera lucida, hvar sem þau eru nú niður
komin .
VII
Konráð Gíslason
um mynd af Jónasi
Hinn 17 . júní 1844 skrifaði Konráð Gísla son Brynjólfi Péturssyni frá
Dresd en þar sem hann talar um að láta
„daguer ro typera“ sig þar í borg og bætir svo
við:
[…] rektu nú á eptir Jónasi, Brynjólfi og
Grími, að þeir drepi höfðinu í loptið, svo
myndirnar verði til eptir þeirra dag, svo
skal jeg sjá um, þegar þeir eru dauðir,
og jeg er orðinn blindur, að þær verði
stungnar í kopar .****
Hér má sjá að Fjölnismenn þekktu hina
nýju ljósmyndatækni og hafa rætt um
það sín á milli að láta gera af sér myndir
og Kon ráð hefur hvatt vini sína til að láta
ljósmynda sig, enda var nýtt tímabil í gerð
manna mynda að hefjast .
VIII
Teikning eftir ljósmynd
Fyrir nokkrum árum hóf ég að skrá mynd ir og myndverk sem tengjast
Jónasi Hallgrímssyni og verkum hans, bæði
teikn ingar og málverk af honum sjálfum og
myndir og myndskreytingar við ljóð hans
og sögur — svo og málverk og teikningar
tengdar Hrauni í Öxnadal . Skráningin er
**** Bréf Konráðs Gíslasonar, Aðalgeir Kristjáns son bjó
til prentunar . Reykjavík 1984, 81 .