Skólavarðan - 01.12.2012, Qupperneq 6
6
Skólavarðan 2. tbl. 2012skólastarf
„Þá sé ég atburðina, þú veist, í leiklistinni. Stundum skil ég ekki
sögur þegar ég er að lesa þær af því að ég get ekki séð þær fyrir
mér, eða kannski, það eru ekki myndir eða þannig.“
Stundum skil ég ekki sögur
Tilvitnunin hér að ofan er úr viðtali við tólf ára gamla stúlku
sem hafði fengið að kynnast aðferðum leiklistar í kennslu.
Stúlkan átti erfitt með lestur og kennarinn hennar brá á það ráð
að segja sögu í gegnum leik og kyrrmyndir (frjósa, eða búa til
myndastyttur af atburðarásinni) í þeirri von að stúlkan upplifði
söguna með þeim hætti. Eftir að kennslustundinni lauk gat
stúlkan sagt kennaranum sínum frá atburðarás sögunnar þótt
hún hefði ekki lesið hana. Í þessari grein fjalla Rannveig Björk
Þorkelsdóttir og Ása Helga Ragnarsdóttir leiklistarkennarar í
stuttu máli um gagnsemi leiklistar í kennslu.
Hvað er leiklist í kennslu?
Leiklist er sú listgrein sem felur í sér að „leika sögur“ eða
merkingarleysur, herma eftir látbragði annarra persóna
(hluta eða dýra) fyrir framan áhorfendur. Oftast er sagan
merkingarbær og skrifuð fyrirfram.
Leiklist í námi er samnefnari fyrir nokkur hugtök: Leikræna
tjáningu, leiklist í skólastarfi og leiklist í kennslu. Öll eiga
það sameiginlegt að aðferðir leiklistarinnar eru notaðar sem
kennsluaðferð með öðrum námsgreinum. Hægt er að útskýra
muninn á leiklist og leiklist í kennslu þannig að leiklist (e.
theatre) snýst aðallega um samband og samskipti leikarans og
áhorfenda en leiklist í kennslu (e. drama education) snýst fyrst
og fremst um reynslu þess sem tekur þátt.
Jonothan Neelands, prófessor í leiklist í kennslu við Warwich
háskólann í Bretlandi, hefur markvisst unnið að því að brúa
bilið milli leiklistar í kennslu og leiklistar sem listgreinar. Hann
leggur áherslu á að um sé að ræða tvær greinar af sama stofni.
Það sem skiptir máli í leiklistarkennslu er upplifun nemenda en
ekki afraksturinn eins og í leiklistinni.
Leiklist í kennslu byggir á þeirri aðferð að nemendur vinni
saman. Tökum sem dæmi Snorra sögu Þórarins Eldjárns.
Nemendur byrja á því að lesa söguna og setja síðan upp
kyrrmyndir eða spuna til að lifa sig inn í söguna. Þegar
nemandi tekur þátt í leiklistinni meðtekur hann upplýsingar
um ímyndaðar aðstæður, setur sig í þær og verður virkur
gerandi. Hann er ekki lengur „hann sjálfur“ í tilteknum
aðstæðum, hann hefur sett sig í spor annars einstaklings. Í
leiklist er lögð áhersla á að nemendur byggi á eigin reynslu, lifi
sig inn í ímyndað ferli og taki að sér þær skuldbindingar sem
hlutverkið krefst af þeim. Nemandinn byggir sem sagt á eigin
reynslu en bætir í þekkingarforðann og öðlast nýja reynslu á
meðan hann er að takast á við vandamálið og finna lausnir.
Hvað segja rannsóknir um notkun leiklistar í kennslu?
• Rannsóknir sýna fram á margvíslega gagnsemi leiklistar í
kennslu. Aðferðir leiklistar virðast til dæmis henta drengjum
sérstaklega vel sem eru oft skammaðir fyrir að vera órólegir
vegna þess að kyrrseta þreytir þá, einkum fyrstu skólaárin.
Hreyfiþroski margra drengja og hæfileiki til að sitja kyrr og
einbeita sér er einfaldlega ekki til staðar þegar þeir hefja nám
í grunnskóla.
• Rannsóknir sýna líka fram á nytsemi leiklistar í kennslu
barna þegar um er að ræða nemendur sem eiga við
námsörðugleika að stríða, nemendur sem hafa íslensku sem
annað tungumál og nemendur sem eiga við agavandamál
að stríða (Ása Helga Ragnarsdóttir og Rannveig Björk
Þorkelsdóttir, 2010).
• Þá sýna rannsóknir líka að þegar leiklist er notuð í
lestrarkennslu eykst skilningur nemenda á efninu með því
að leika það (e. acted out), samanber áðurnefnt dæmi um
stúlkuna sem átti erfitt með að lesa.
• Það er athyglisvert að með notkun leiklistar í kennslu þá
eykst geta nemenda á fleiri sviðum, til dæmis í skapandi
skrifum (DuPont, 1992).
• Rannsókn Ásu Helgu Ragnarsdóttur og Rannveigar Bjarkar
Þorkelsdóttur (2012), „Að auka orðaforða í gegnum leiklist“,
sýnir fram á eflingu málþroska í gegnum leiklist. Þeim
nemendum sem eiga við námsörðugleika að stríða gengur
betur að læra til dæmis tungumál og félagsfærni í gegnum
leiklist (Cruze, 1995).
Það er leikur að læra
Leikir barna eru mikilvægir fyrir þroska þeirra. Hversu oft og
hvernig börnin leika sér skiptir máli og eins hversu flókinn
leikur þeirra er. Leikur er leið barna til hugsunar og athafna
(Vygotsky, 1978).
Það er leikur að læra... ef það er gert í gegnum leiklist.
Leiklistin er ein hlið á leiknum. Að setja sig í hlutverk læknis eða
Texti: Ása Helga Ragnarsdóttir og
Rannveig Björk Þorkelsdóttir
Leikum
og lærum
Notkun leiklistar í skólastarfi. Ása Helga Ragnarsdóttir og Rannveig Björk Þorkelsdóttir.
Lj
ós
m
yn
d:
J
ón
R
ey
kd
al
.