Skólavarðan - 01.12.2012, Blaðsíða 44
44
Skólavarðan 2. tbl. 2012námsgögn
Uppbygging orðaforðans tekur alla
ævina. Orðaforðinn er grunnurinn að
lesskilningi en málumhverfi barns
skiptir sköpum um hvernig málnotandi
það verður. Ýmsir fræðimenn hafa
bent á að spil með markvissan náms-
tilgang geti aukið námsárangur.
Samskipti við félaga eru hvetjandi og
ýta undir metnað til að tileinka sér
efni og nemendur slaka á við að spila
skemmtilegt spil og hlæja saman. Spil
getur þannig orðið hjálpartæki við að
læra og skilja tungumálið.
Út er komið nýtt íslenskt borðspil
sem fjallar um tungumálið og kallast
Orðabelgur. Markmið spilsins er að efla
orðaforða, bæta lesskilning og reyna á
útsjónarsemi og rökhugsun um merkingu
orða og notkun þeirra. Því er einnig ætlað
að vera til skemmtunar og fróðleiks en
það býður upp á heilabrot, vangaveltur og
orðaleiki. Spilið hentar jöfnum höndum
ungum sem öldnum, í skólum eða á
heimilum. Þátttakendur geta verið tveir
til sex. Þar er leikið á fjölbreytilegan og
skemmtilegan hátt með orð, setningar og
blæbrigði tungumálsins.
Í spilinu eru 660 spurningaspjöld sem
falla undir sex mismunandi spilaflokka.
Tvær misþungar spurningar eða þrautir
eru á hverju spjaldi, alls 1320 spurningar.
Mismunandi þyngdarstig gerir spilið
tilvalið fjölskylduspil. Svonefndur Orð-
hákur stjórnar spilinu. Hann dregur
spjöld fyrir leikmenn og úrskurðar um
rétt eða röng svör sem eru undirstrikuð
á spjöldunum. Leikmenn leggja kapp á
að safna orðum í belg með því að svara
spurningum úr fimm flokkum sem
hver fyrir sig gefur eitt orð í belginn.
Flokkarnir eru: Orðasambönd, Samheiti,
Hvaða eitt orð passar ekki? Hvaða tvö orð
tengjast? og Gettu nú!
Orðasambönd. Orðasambönd í íslensku
tengjast gjarnan sögu þjóðarinnar eða
gömlum atvinnuháttum sem nú geta
verið framandi fyrir yngri kynslóðir. Góð
máltilfinning auðveldar skilning á þeim
en um leið þarf að beita ákveðinni rökvísi.
Með setningum á spurningaspjöldum
í þessum flokki er spurt um merkingu
góðra og gildra orðasambanda og leik-
maður velur um þrjá svarmöguleika.
Samheiti. Fjöldi orða er til á íslensku
yfir sama hugtakið. Skemmtum okkur við
að auka orðaforðann og rifja upp og reyna
að muna. Á spurningaspjöldum þessa
flokks eru ýmist algeng eða sjaldgæf orð
og leitað er að samheitum þeirra.
Hvaða eitt orð passar ekki? Spáð er
í merkingartengsl milli orða. Ígrunda
þarf og álykta um hvaða tengsl eru með
þremur af fjórum tilteknum orðum á
spjöldum í þessum flokki. Leikmaður á
að segja til um hvaða eitt orð passar ekki
Texti og myndir: GG
Nýtt íslenskt borðspil
um tungumáliðOrðabelgur
með hinum.
Hvaða tvö orð tengjast? Af fjórum
orðum sem lesin eru upp af spjöldum í
þessum flokki tengjast tvö merkingarlega,
hvað varðar málvenju (?) eða sögulega.
Leikmaður segir til um hvaða tvö orð
tengjast. Þarna reynir á ályktunarhæfni,
hlustun og einbeitingu eins og í öllum
þáttum spilsins.
Gettu nú! Á spjöldum í þessum flokki
eru gátur byggðar á skilningi og túlkun
íslensks máls, m.a. á margræðni orða,
rökvísi og gaumgæfilegri hlustun og
einbeitingu. Leikmaður velur einn af
fjórum svarmöguleikum.
Auk þess eru á spilaborði tveir aðrir
flokkar, Ærslabelgur sem býður upp á
ærsl, sprell og aukakast og Brellibelgur
sem reynir á kænsku leikmanna.
Orðabelgur er borðspil sem fjallar um tungumálið.