Skólavarðan - 01.12.2012, Blaðsíða 8
8
Skólavarðan 2. tbl. 2012sjóðir
Ein verðmætasta eign félagsmanna í KÍ er Sjúkrasjóður
Kennarasambands Íslands. Hlutverk sjóðsins er að veita
félögunum fjárhagsaðstoð vegna veikinda, slysa og dauðsfalla,
veita styrki til að greiða niður endurhæfingu eftir slys eða
sjúkdóma og styðja þá í fyrirbyggjandi aðgerðum sem snerta
öryggi þeirra, heilsufar og heilbrigði. Formaður sjóðstjórnar er
Kristín Stefánsdóttir og starfsmenn sjóðsins eru María Norðdahl
og Sigrún Harðardóttir.
Tekjur sjúkrasjóðs eru samningsbundin framlög vinnu-
veitenda og vaxtatekjur. Vinnuveitendur greiða í sjóðinn fram-
lag sem nemur 0,55% til 0,75% af heildarlaunum sjóðfélaga.
Sjóðfélagar teljast þeir sem greitt er fyrir í sjóðinn. Félagsmenn
öðlast rétt til úthlutunar eftir að iðgjöld þeirra til hans hafa
verið greidd í sex mánuði.
Helstu styrkir Sjúkrasjóðs
María Norðdahl segir að sjóðfélagar geti sótt um margs
konar styrki. „Ef sjóðfélagi veikist svo alvarlega að hann fari
tímabundið af launaskrá eða verði fyrir launaskerðingu vegna
veikinda greiðir sjóðurinn sjúkradagpeninga. Meðferðarstyrkir
eru greiddir vegna meðferðar hjá meðal annars iðjuþjálfara,
sjúkraþjálfara og talmeinafræðingi í allt að 25 skipti á tólf
mánaða skeiði. Auk þess er meðferð hjá meðal annars
viðurkenndum nuddara og nálastungusérfræðingi greidd
niður í allt að 10 skipti á tólf mánaða skeiði. Sjóðfélagar geta
fengið styrk vegna faghandleiðslu og vegna meðferðar hjá til
dæmis fjölskyldu- og félagsráðgjafa. Styrkur fæst til kaupa
á heyrnartækjum og gleraugum og laser-geislameðferðar á
augum. Útfararstyrkir eru greiddir vegna andláts sjóðfélaga eða
barna þeirra að 18 ára aldri.“
Sjóðurinn greiðir almennt ekki styrki til lyfjakaupa en þurfi
sjóðfélagi að greiða hátt verð fyrir rannsóknir eða aðgerðir geta
þeir sótt um styrk í sjóðinn, að sögn Maríu. Hún bætti við að
sjóðurinn greiði styrk vegna fæðingar barns og ættleiðingar og
endurgreiði hluta kostnaðar við glasafrjóvgun og tæknisæðingu.
Sjúkrasjóður gegnir mikilvægu forvarnarhlutverki sem felst,
að sögn þeirra Maríu og Kristínar, í því að greiða að fullu fyrir
reglubundna krabbameinsleit og greiddir eru styrkir vegna
krabbameinsskoðunar á ristli og blöðruhálskirtli. Hann greiðir
að fullu áhættumatsskoðun hjá Hjartavernd og greiðir niður
dvöl á Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands.
Nýjar úthlutunarreglur, hækkun styrkja
Þann 1. október sl. var úthlutunarreglum breytt en þær eru
uppfærðar reglulega. Að sögn Kristínar Stefánsdóttur fólust
breytingarnar einkum í hækkun styrkja. Flestallir styrkir hefðu
hækkað talsvert enda hefði verðlag hækkað verulega undanfarin
misseri án þess að launhækkanir héldu í við það. Hún nefndi
sem dæmi um breytingar að sjúkradagpeningar og algengustu
meðferðarstyrkir hefðu verið hækkaðir um tíu prósent.
Engir styrkir til líkamsræktar
Sjúkrasjóður greiðir ekki niður kostnað við líkamsrækt
sjóðfélaga. Kristín var spurð hverju þetta sætti. Hún sagði
að talsvert væri spurt um slíka styrki og sjóðstjórn hefði
sannarlega fjallað um þá. Niðurstaða hefði orðið sú að styrkja
ekki líkamsrækt þótt viljinn til þess væri fyrir hendi. Rökin fyrir
þeirri niðurstöðu eru að yfirleitt sé sá kostnaður viðráðanlegur
fyrir fólk en þyngst vegur að þótt sjóðurinn standi nokkuð vel
Sjúkrasjóður Kennarasambands Íslands
Texti: GG
María Norðdahl, Kristín Stefánsdóttir og Sigrún Harðardóttir.