Skólavarðan - 01.12.2012, Síða 53
53
Skólavarðan 2. tbl. 2012
er í viðhorfum starfsfólks til grunngilda og nemendur
og starfsfólk vinna markvisst með þau gildi. Unnið er
skipulega í eineltismálum, aðferðir eru þaulhugsaðar og
ábyrgð allra er skýr. Allir eiga hlutdeild í eineltisáætluninni
og fylgja henni og nemendur taka virkan þátt í forvörnum
gegn einelti. Í niðurstöðum segir einnig að mikilvægt sé að
byggja forvarnir hvers skóla á greiningu á aðstæðum hverju
sinni því fátt henti öllum, alltaf og allsstaðar. Sem dæmi er
nefnt að sumar leiðir í forvörnum henta betur drengjum en
stúlkum, en þó ekki öllum drengjum eða öllum stúlkum.
Nokkur þeirra verkefna sem sænsku skólarnir styðjast við
hæfa betur yngri nemendum en önnur eldri nemendum
og sum henta betur til að takast á við líkamlegt einelti en
önnur félagslegt.
Bent hefur verið á að grunnurinn að einelti og öðru
ofbeldi liggi að miklu leyti í viðhorfi nu við og hinir. Í
fl estum samfélögum, stórum sem smáum, séu ákveðnir
hópar sem njóta þess að vera hinir viðurkenndu en þeir
komist oft upp með að niðurlægja, útiloka, móðga, særa,
mismuna eða ógna þeim sem ekki tilheyra rétta hópnum.
Það getur verið afar breytilegt hverjir tilheyra hinum
viðurkenndu og oft er um fl eiri en einn hóp að ræða í hverju
samfélagi. Þegar vinna á gegn einelti og öðru ofbeldi getur
því skipt máli að greina hverjir tilheyra þessum hópum og
fi nna leiðir til að stuðla að auknu umburðarlyndi, skilningi
og ábyrgð hinna viðurkenndu.
Mergurinn málsins er sá að fullorðna fólkið þarf að vera
góð fyrirmynd og með réttum viðhorfum og markvissum
aðgerðum er hægt að stuðla að betra samfélagi þar sem öll
börn búa við öryggi í skólum og frístundastarfi .
Í tilefni Dags gegn einelti 8. nóvember hefur skóla- og
frístundasvið Reykjavíkur útbúið sérstakan verkefnabanka
með tillögum sem kennarar og frístundaráðgjafar geta nýtt
í vinnu með börnum til að efl a færni þeirra í samskiptum.
Verkefnabankinn er vistaður á innri vef skóla- og
frístundasviðs á vefsvæði verkefnisins Vinsamlegt samfélag.
Í fl estum samfélögum, stórum sem
smáum, eru ákveðnir hópar sem njóta
þess að vera hinir viðurkenndu en þeir
komast oft upp með að niðurlægja,
útiloka, móðga, særa, mismuna eða ógna
þeim sem ekki tilheyra rétta hópnum.
einelti
Leiðarvísir í aðgerðum gegn einelti
fyrir starfsfólk skóla, íþrótta- og æskulýðsfélög,
foreldra og börn
Kolbrún Baldursdóttir
K
o
lb
r
ú
n
B
a
ld
u
r
s
d
ó
t
tir
EKKI MEIR
EK
K
I M
EIR
Bók um eineltismál
B
ó
k
u
m
e
in
e
ltis
m
á
l
Bókin EKKI MEIR er leiðarvísir ásamt því að vera verkfæri til að
nota í fyrirbyggjandi vinnu gegn einelti eða gríp til í úrvinnslu
mála. Hún hefur að geyma ráðgjöf fyrir skóla, íþrótta- og
æsk lýðsfélög, foreldra og börn.
Í bókinni er umfjöllun um hin r örgu tegundir forvarna og
tengsl þeirra við uppbyggingu jákvæðs starfsanda í skóla- og
frístundaumhverfinu. Jákvæður staðarbragur og almenn
vellíðan kennara, leiðbeinenda íþrótta- og æskulýðsfélaganna
og annars starfsfólks skilar sér til barnanna og foreldra þeirra
eftir ýmsum leiðum.
Bókin er ekki eingöngu hugsuð fyrir fullorðna. Í henni eru
einnig leiðbeiningar til barna um hvað einkennir jákvæða
samskiptahætti ásamt skilaboðum til þeirra barna sem eru
annars vegar þolendur eineltis og hins vegar gerendur eineltis.
Hægt er að miðla efni bókarinnar til barna með ýmsum hætti.
Ein leiðin er að lesa úr bókinni fyrir barnið sitt eða bekkinn/
hópinn.
Kolbrún Baldursdóttir hefur sem sálfræðingur
komið að málefnum barna og unglinga með fjöl-
breyttum hætti svo sem með fræðslu, ráðgjöf
og meðferð. Hún hefur jafnframt reynslu af
kennslu á öllum skólastigum. Lengst af hefur
Kolbrún verið sálfræðingur barnaverndar ála
og skólasálfræðingur. Hún hefur rekið eigin
sálfræðistofu frá 1992.
Leiðarvísir í aðgerðum gegn einelti
fyrir starfsfólk skóla, íþrótta- og æskulýðsfélög,
foreldra og börn
EKKI MEIR
Bók um eineltismál
strikamerki