Skólavarðan - 01.12.2012, Blaðsíða 29
UMSÓKNARFRESTIR 2013
COMENIUSARSTYRKIR
ENDURMENNTUN KENNARA
Styrkir veittir til kennara á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi til
endurmenntunar í viðkomandi fagi í 1-6 vikur. Einnig er hægt að fara og fylgjast
með kennslustarfi í evrópskum skólum („job-shadowing“). Meðalupphæð styrkja
er 1750 € fyrir eina viku.
Umsóknarfrestir eru ófrávíkjanlegir:
16. janúar fyrir námskeið eftir 1. maí
30. apríl fyrir námskeið eftir 1. september
17. september fyrir námskeið eftir 1. janúar 2014
SKÓLASAMSTARFSVERKEFNI
Comeniusarverkefni byggja á þriggja landa samstarfi á tveggja ára tímabili sem
fela í sér starf nemenda og fundaferðir kennara til þátttökulanda. Einnig er um
að ræða tvíhliða nemendaskiptaverkefni fyrir 12 ára og eldri, minnst 10 í hóp.
Heimsóknir standa yfir í a.m.k. 10 daga. Verkefni með 12 ferðum eru styrkt um
18.000 €.
Umsóknarfrestur er til 21. febrúar 2013
COMENIUS REGIO
Comenius regio er tveggja landa samstarf þar sem þrjár stofnanir frá hverju landi
vinna saman. Verkefnin tengja saman skóla og skólaskrifstofur og félög tengd
þeim. Hámarksstyrkur er 45.000 €.
Umsóknarfrestur er til 21. febrúar 2013
COMENIUS AÐSTOÐARKENNSLA
Kjörið tækifæri fyrir kennara að sækja um að fá aðstoðarkennara frá landi í
Evrópu eða verðandi kennara til að fara utan í 3-8 mánuði. Aðstoðarkennarar eru
styrktir frá sínu heimalandi. Aðstoð getur nýst í flestum fögum á leik-, grunn og
framhaldsskólastigi.
Umsóknarfrestur er til 31. janúar 2013
Nánari upplýsingar veitir Þorgerður, teva@hi.is hjá Landskrifstofu
Menntaáætlunar ESB, Dunhagi 5, 107 Reykjavík. www.comenius.is
LANDSKRIFSTOFA MENNTAÁÆTLUNAR ESB
COMENIUS
Háskólatorgi, Sæmundargötu | 101 Reykjavík | 525 4311
www.lme.is
FYRIR LEIK-, GRUNN- OG FRAMHALDSSKÓLA
COMENIUS