Skólavarðan - 01.12.2012, Page 9

Skólavarðan - 01.12.2012, Page 9
9 Skólavarðan 2. tbl. 2012sjóðir þá yrði hann fl jótlega uppurinn ef hann greiddi niður líkamsrækt félaganna. „Stjórn sjóðsins metur það svo að mikilvægara sé að standa við bakið á sjóðfélögum þegar veikindi herja á þá. Dæmi eru um að sum sveitarfélög styrki starfsmenn sína, t.d. með fríum sundkortum ,“ sagði Kristín. Umsóknir í sjúkrasjóð Sjóðfélagar sem hyggjast sækja um styrk í Sjúkrasjóð verða að halda kvittunum og öðrum nauðsynlegum gögnum til haga. Hægt er sækja um styrki rafrænt með því að fara inn á Mínar síður á heimasíðu KÍ. Kvittanir er hægt að skanna og senda á myndrænu formi með umsókninni. Einnig er hægt að koma í Kennarahúsið á fund Maríu og Sigrúnar og fylla út þar til gerð eyðublöð og sýna kvittanir og gögn. Umsóknir eru afgreiddar í hverjum mánuði og eru upplýsingar um umsækjendur dulkóðaðar. Staðgreiðsla skatta er tekin af öllum styrkfjárhæðum sjúkrasjóðs nema útfararstyrkjum . Frá 1. janúar 2012 er skattlagt skv. skattþrepi 2, þar sem skattprósentan er 40,24% af öllum skattskyldum styrkjum og sjúkradagpeningum. Sjúkrasjóðurinn var stofnaður á stofnþingi KÍ árið 1999. Stjórn hans skipa fi mm manns sem kosnir eru á þingi KÍ. Formaður er kjörinn sérstaklega. María og Sigrún veita upplýsingar um sjúkrasjóð á skrifstofutíma en á vef KÍ eru allar upplýsingar aðgengilegar. Með því að fara inn á Mínar síður geta félagsmenn skoðað hver staða þeirra sjálfra er í hverjum styrkfl okki. Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460 www.belladonna.is Verslunin Belladonna á Facebook Stærðir 40 – 58 Full búð af flottum fötu m fyrir flottar konur Flestallir styrkir hækkuðu talsvert enda hefur verð- lag hækkað verulega undanfarin misseri án þess að launahækkanir haldi í við það. Nú stendur yfir skráning í einingabært nám fyrir starfandi kennara og fleiri starfsstéttir á vorönn 2013. dæmi um nokkur námskeið: • Forysta í opinberri stjórnsýslu • Mannréttindanálgun í þjónustu: Breytt hlutverk fagstétta • Virðing og fagmennska • Menntun og kyngervi: Orðræðan um drengi og stúlkur • Náttúruvísindi á 21. öld • Leiðsögn og starfsmenntun - rannsóknir, kenningar og stefnur Skráning fer fram áheimasíðu SRR Upplýisngar ísíma 525 - 5983 http://vefsetur.hi.is/srr einingabært nám Skráningarfrestur er til 30. nóvember

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.