Skólavarðan - 01.12.2012, Síða 14
14
Skólavarðan 2. tbl. 2012
Réttindi þín í veikindum
Ingibjörg Úlfarsdóttir
Launafulltrúi KÍ
Ljósmynd: Steinunn Jónasdóttir
kjaramál
Veikindaréttur þinn miðast við starfsaldur og verður mest
360 dagar eftir 18 ár í starfi. Við mat á ávinnslurétti skal
auk starfsaldurs hjá viðkomandi launagreiðanda einnig
telja starfsaldur hjá stofnunum ríkis, sveitarfélögum og
sjálfseignarstofnunum sem kostaðar eru að meirihluta til
af almannafé. Veikindaréttur flyst með starfsmanni milli
sveitarfélaga. Til að geta flutt veikindarétt með sér þarf
starfsmaður að hafa unnið einhvern tíma í 12 mánuði samfellt
hjá sama vinnuveitanda. Á fyrstu 3 mánuðum samfelldrar
ráðningar er þó fyrri þjónustualdur ekki metinn nema
viðkomandi starfsmaður hafi samfelldan þjónustualdur hjá
fyrri launagreiðendum í 12 mánuði eða meira. Starfsaldur getur
verið vegna annarra starfa en kennslu hjá ríki og sveitarfélögum
og ber að telja þann starfsaldur einnig. Það er því mikilvægt
að starfsmaður haldi utan um starfsaldur sinn og biðji um
starfsvottorð þar sem hann hefur starfað.
Allir dagar telja í veikindum. Ef starfsmaður er veikur í
hálfan dag telst það sem einn veikindadagur og þá skiptir ekki
máli hvort starfsmaður er í hlutastarfi eða ekki. Sama á við ef
starfsmaður er með 50% vottorð og 50% í starfi. Sá sem er veikur
á föstudegi og mánudegi telst því veikur í fjóra daga, en sá sem
er veikur á föstudegi og kemur til vinnu á mánudegi telst veikur
í einn dag.
Laun í veikindum eru ekki greidd lengur en ráðningu er
ætlað að standa nema þegar um vinnuslys er að ræða en þá
heldur starfsmaður greiðslum þar til hann telst vinnufær
eða hann tæmir rétt sinn til launa, hvort sem fyrr næst.
Auk mánaðarlauna greiðast í veikindum föst yfirvinna og
meðaltal tilfallandi yfirvinnu. Í veikindum kennara skal
greiða samkvæmt þeirri stundaskrá sem í gildi er eða síðast
gilti miðað við upphaf veikinda hans. Ný vinnuskýrsla er
ekki undirrituð fyrr en starfsmaður kemur til starfa á ný. Ef
starfsmaður fullnýtir veikindarétt sinn á hann rétt á að sækja
um sjúkradagpeninga til Sjúkrasjóðs KÍ.
Starfsmaður getur að læknisráði og með leyfi yfirmanns
unnið skert starf, t.d. 50% starf og 50% veikindi og er greiðsla
veikindalauna miðað við það starfshlutfall sem vantar á
að hann vinni fullt starf. Taki viðkomandi starfsmaður
að sér meiri vinnu en vottorð læknis gerir ráð fyrir er litið
svo á að hann sé vinnufær að stærri hluta en talið var og
taki því veikindalaun að sem því nemur minni hluta, allt
að fullum dagvinnulaunum. Hver dagur í veikindum telst
sem einn veikindadagur þó starfsmaður sé með 50% vottorð
og 50% í starfi. Ef starfsmaður fullnýtir veikindarétt sinn í
hlutaveikindum, kviknar ekki réttur fyrir ónýttan hluta nema
starfsmaður verði veikur að fullu.
Ef slys verður á vinnustað skal launagreiðandi greiða öll
útgjöld sem starfsmaður hefur orðið fyrir og slysatryggingar
almannatrygginga bæta ekki. Þetta getur t.d. verið kostnaður
vegna læknisheimsókna, vottorða, sjúkraþjálfunar o.þ.h.
Ef starfsmaður verður óvinnufær vegna veikinda eða slyss,
skal hann þegar tilkynna það yfirmanni sínum sem ákveður
hvort læknisvottorðs skuli krafist og hvort það skuli vera frá
trúnaðarlækni hlutaðeigandi stofnunar. Ef starfsmaður er
óvinnufær vegna veikinda eða slyss um langan tíma, verður
viðkomandi að endurnýja læknisvottorð sitt eftir nánari
ákvörðun yfirmanns en þó ekki sjaldnar en mánaðarlega.
Yfirmaður getur krafist vottorðs hvenær sem er, ef þörf þykir
á, og skiptir þá ekki máli hvort heldur er, skammtíma- eða
langtímaveikindi. Skylt er starfsmanni sem er óvinnufær
vegna veikinda eða slyss að gangast undir hverja þá venjulega
og viðurkennda læknisrannsókn sem trúnaðarlæknir kann að
telja nauðsynlega til þess að skorið verði úr um hvort forföll
séu lögmæt. Starfsmaður þarf ekki að gefa yfirmanni nákvæma
lýsingu á veikindum sínum ef hann kýs svo, en yfirmaður getur
nýtt sér rétt sinn til að senda starfsmann til trúnaðarlæknis
og fá vottorð sé talin þörf á því. Veikindi starfsmanns eru hans
einkamál en fjarveru frá vinnu þarf að ræða við yfirmann.
Ef um almenna læknisheimsókn á vinnutíma er að ræða
er ekkert í kjarasamningi sem tekur á því. Almennt getur
fólk fengið leyfi til þess að fara til læknis án þess að það hafi
einhverjar afleiðingar í för með sér líkt og að dregið sé af því
einn veikindadagur. Ef starfsmaður hefur vottorð frá lækni þá
getur viðkomandi verið á launum vegna veikinda, þó svo að